Barnabarn Idi Amin keppir á Samveldisleikunum: „Verð nýr konungur Skotlands“ Aziz Abdul er ekki bara barnabarn fyrrverandi einræðisherra Úganda, hins alræmda Idis Amin, heldur einnig boxari sem keppir á Samveldisleikunum sem nú standa yfir í Glasgow í Skotlandi. Sport 27.7.2026 09:02
Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó Ekkert lát virðist vera á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó. Að minnsta kosti 37 létu lífið á laugardaginn, sem er með því mesta frá því faraldurinn hófst. Í heildina hafa að minnsta kosti 930 dáið í Austur-Kongó eftir að hafa smitast af ebólu, svo vitað sé, en 2.344 hafa greinst smitaðir. Erlent 20.7.2026 09:10
Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Hundruð ungmenna mótmæltu fyrir utan bandaríska herstöð í bænum Nanyuki í morgun. Þar hafa Bandaríkjamenn sett upp einangrunarmiðstöð fyrir bandaríska ríkisborgara sem eru smitaðir af ebólu eða gætu hafa smitast. Hæstiréttur Keníu komst nýverið að þeirri niðurstöðu að miðstöðin mætti ekki vera þar í landi. Erlent 1.6.2026 13:00
Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Einar Sindri Ásgeirsson er nýfluttur heim eftir margra ára dvöl í Hollandi og það fyrsta sem hann ætlar að gera er að ganga hringinn í kringum landið. Á meðan ferðinni stendur safnar hann pening fyrir vannærð börn í Afríku en hann leggur af stað í fyrramálið. Ferðalagið muni taka hann um sex vikur með hvíldardögum . Innlent 19. júní 2025 22:13
Óttast að átök verði að stóru stríði Uppreisnarmenn M23 hafa hótað því að gera árás á borgina Bukavu, höfuðborg Suður-Kivu héraðs í Austur-Kongó. Óttast er að átökin milli hersins og uppreisnarmannanna, sem njóta stuðnings Rúanda, muni leiða til umfangsmikils stríðs. Erlent 11. febrúar 2025 17:09
Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Íslensk kona á sextugsaldri hefur stefnt úgönskum eiginmanni sínum til lögskilnaðar en hún hefur hvorki heyrt frá honum né séð frá árinu 2007, skömmu eftir að þau gengu í hjónaband. Innlent 20. september 2024 10:53
Kom út og sá alelda Rebeccu hlaupa í áttina að sér „Þegar ég kom út sá ég Rebeccu hlaupa alelda í áttina að húsinu mínu hrópandi ‚hjálpaðu mér‘,“ segir Agnes Barabara, nágranni úgöndsku hlaupakonunnar Rebeccu Cheptegei sem lést eftir að fyrrverandi kærasti kveikti í henni. Erlent 8. september 2024 17:21
Kveikti í afrekshlaupara og fyrrverandi kærustu Maraþonhlauparinn Rebecca Cheptegei er í lífshættu á spítala í Kenía eftir að fyrrverandi kærasti hennar reyndi að myrða hana. Sport 3. september 2024 15:31
Bætt skólaeldhús fyrir íslensk fjárframlög Ný og betri skólaeldhús sem greidd eru af íslensku þróunarfé hafa verið sett upp í tuttugu grunnskólum á Karamoja-svæðinu í Úganda undanfarna mánuði. Til stendur einnig að endurbæta rúmlega fimmtíu skólaeldhús til viðbótar á svæðinu áður en árið er liðið fyrir fjárframlög frá Íslandi. Innlent 12. júní 2024 13:19
Austur-Kongó og Rúanda á „barmi styrjaldar“ Hundruð þúsunda hafa þurft að flýja undan sífellt harðnandi átökum milli hers Austur-Kongó og M23 uppreisnarmanna í austurhluta Kongó. Uppreisnarmennirnir hafa barist gegn hernum í áratugi, með stuðningi yfirvalda í Rúanda, en líkur á almennu stríði milli Kongó og Rúanda hafa aukist verulega. Erlent 21. febrúar 2024 13:33
Varlega skal farið í að „skipta um þjóð í þjóðinni“: Seinni saga Ég starfaði í Afríku á árunum 1992-1998. Þessi saga fjallar um innflutning á fólki til nýs lands en af öðrum toga en fyrri grein en fjallar hún um að skipta um þjóð í þjóðinni. Skoðun 18. janúar 2024 07:01
Gaf allt sem hún var með á sér og fór berfætt heim Hrefna Bachmann, forstjóri og frumkvöðull, ræddi við Einar Bárðarson um verkefni sín í Úganda undanfarinn áratug, stórfellda innviðauppbyggingu í bænum Banda og fólkið sem hún hefur aðstoðað þar. Innlent 1. janúar 2024 18:17
Dauðaleit að uppreisnarmönnum sem myrtu nýgift hjón Forseti Úganda segir að dauðaleit standi yfir að mönnum sem taldir eru hafa myrt nýgift hjón, ferðamenn í brúðkaupsferð. Hann segir að öryggissveitir séu komnar á sporið. Bresk yfirvöld ráðleggja ríkisborgurum sínum að ferðast til tiltekinna svæða í Úganda. Erlent 19. október 2023 21:24
Mæðrum haldið föngnum ef þær geta ekki borgað sjúkrahúsreikninginn Mannréttindasamtök og aðgerðasinnar í Úganda vonast til þess að dómsmál sem tekið verður fyrir nú í ágúst verði til þess að binda enda á það verklag sjúkrahúsa að halda einstaklingum föngum sem ekki hafa gert upp reikninginn vegna dvalar sinnar. Erlent 22. ágúst 2023 08:16
Saka yfirmann hjá Intel um herferð gegn hinsegin fólki í Afríku Yfir tugur mannréttindasamtaka í Afríku hefur efnt til undirskriftasöfnunar og kallað eftir því að bandaríska fyrirtækið Intel Corporation láti háttsettan yfirmann fjúka, vegna meintrar framgöngu hans gegn réttindum hinsegin fólks í álfunni. Erlent 7. júlí 2023 07:27
Myrtu hátt í fjörutíu nemendur í skóla í Úganda Uppreisnarmenn með tengsl við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams eru sakaðir um að myrða 41 mann, þar af 38 nemendur, í heimavistarskóla í Úganda nærri landamærunum að Austur-Kongó á föstudagskvöld. Sum fórnarlambanna voru brennd til bana. Erlent 18. júní 2023 08:51
Dauðarefsing við samkynhneigð Á dögunum undirritaði forseti Úganda löggjöf sem gengur lengst allra landa í andstöðu við réttindi hinsegin fólks. Þannig liggur nú m.a. dauðarefsing við samkynhneigð í ríkinu, en lögin voru samþykkt á þingi Úganda í mars með yfirgnæfandi meirihluta. Löggjöfin hefur þegar vakið upp hörð viðbrögð og fordæmingu, bæði innan Úganda og frá lýðræðisríkjunum. Skoðun 7. júní 2023 07:31
Hræðileg afturför fyrir réttindi hinsegin fólks Framkvæmdastjóri Samtakanna '78 segir nýsamþykkt lög um samkynhneigða í Úganda þau hættulegustu í heimi í dag fyrir hinsegin fólk og geri það nánast réttdræpt. Ísland á í þróunarsamstarfi við Úganda, en utanríkisráðherra segir samskipti við ríki þar sem grundvallarmannréttindi eru ekki virt, alltaf vera flókin. Erlent 29. maí 2023 23:33
Dauðarefsingar og tuttugu ára dómar við samkynhneigð í Úganda Yoweri Museveni, forseti Úganda, hefur skrifað undir lög sem fela í sér eina mestu skerðingu á réttindum hinsegin fólks í heiminum. Með lögunum geta þeir sem „auglýsa“ samkynhneigð átt yfir höfði sér tuttugu ára fangelsi og þeir sem stunda samkynja kynlíf sýktir af HIV geta hlotið dauðarefsingu. Erlent 29. maí 2023 10:20
Óttast dreifingu ebólu í höfuðborg Úganda Sex börn úr sömu fjölskyldunni í Kampala, höfuðborg Úganda, hafa greinst með ebólu. Yfirvöld óttast að útbreiðslan verði hraðari nú þegar hún hefur náð til þéttbýlli svæða landsins. Erlent 26. október 2022 20:45
Stökkið: Flutti til Úganda í starfsnám hjá sendiráðinu Vaka Lind Birkisdóttir er starfsnemi í íslenska sendiráðinu í Kampala, Úganda. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri hjá Stúdentaráði Háskóla Íslands. Hún lærði félagsfræði og hagfræði á Íslandi áður en hún flutti til Dublin þar sem hún útskrifaðist með MSc í alþjóðlegum stjórnmálum frá Trinity College. Lífið 12. september 2022 08:05
Sextán látin vegna aurskriðu í Úganda Miklar rigningar á þriðjudag í Úganda ollu aurskriðu í Kasese héraði snemma á miðvikudag sem varð sextán manns að bana. Sex glíma við meiðsli vegna skriðunnar og eru sögð fá hjálp á sjúkrahúsi í grenndinni. Erlent 8. september 2022 18:26
Hátíðarstemning þegar ný kvenna- og fæðingardeild var opnuð Ný kvenna- og fæðingardeild var formlega opnuð á skólalóð ABC barnahjálpar í bænum Rockoko í norðurhluta Úganda fyrr í mánuðinum. Framkvæmdin var fjármögnuð með stuðningi íslenska utanríkisráðuneytisins, nytjamarkaðar ABC og sömuleiðis annarra styrktaraðila. Lífið 25. ágúst 2022 14:01
Bæta námsmöguleika barna með fatlanir til muna Kristrún Friðsemd Sveinsdóttir fór um miðjan júlí til Úganda ásamt Valdísi Önnu Þrastardóttur fyrir hönd samtakanna CLF á Íslandi. Þar gerðu þær lokaúttekt á verkefni sem var styrkt af utanríkisráðuneytinu og hófu í leiðinni annað verkefni, sem einnig er styrkt af ráðuneytinu. Lífið 16. ágúst 2022 16:15