Tölvuárásir
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Rússar gera umfangsmikla töluvárás í Bandaríkjunum Sérfræðingar Microsoft og aðrir netöryggissérfræðingar vestanhafs segja Leyniþjónustu Rússlands standa fyrir umfangsmikilli netárás á Bandaríkin. Rússneskir tölvuþrjótar séu að reyna að brjóta sér leið inn í tölvukerfið þúsunda stofnan, fyrirtækja og hugveita í Bandaríkjunum. Erlent 25.10.2021 13:15
Netárás truflaði sölu miða á uppistand Ara Eldjárn Nokkuð öflug netárás var gerð á miðasölusíðuna Tix.is á miðvikudag og stóð hún yfir í um þrjár til fjórar klukkustundir. Um var að ræða svokallaða dreifða álagsárás (e. DDos) þar sem gríðarmikilli netumferð frá hinum ýmsu löndum var beint að netþjónum Tix á sama tíma. Viðskipti innlent 17.10.2021 00:11
Ellefu netárásir á íslensk fjármálafyrirtæki Ellefu netárásir hafa verið gerðar á íslensk fjármálafyrirtæki á þessu ári sem haft hafa áhrif á starfsemina fyrirtækjanna. Varabankastjóri Seðlabankans segir ógnina af netárásum vaxandi. Innlent 8.10.2021 18:03
Kortanúmerum og lykilorðum ekki stolið frá Twitch Forsvarsmenn Twitch, vinsællar streymisveitu, segja að fullum kreditkortanúmerum notenda hafi ekki verið stolið. Þá hafi ekkert sést sem bendi til þess að lykilorðum hafi einnig verið stolið í umfangsmiklum gagnaleka. Erlent 7.10.2021 12:01
Tölvuþrjótur ræðst á streymisveituna Twitch Tölvuþrjótur lak 125 gígabætum af upplýsingum um streymisveituna Twitch í morgun. Í lekanum má meðal annars finna upplýsingar um tekjur þeirra sem dreifa efni á síðunni. Erlent 6.10.2021 22:32
Fyrst til að selja netöryggistryggingu á Íslandi Tryggingafélagið TM hefur hafið sölu á netöryggistryggingum, fyrst tryggingafélaga hér á landi. Eru tryggingar hugsaðar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem vilji lágmarka fjárhagslegt tap, verði þau fyrir netárás. Viðskipti innlent 5.10.2021 09:48
Tugmilljóna króna tjón vegna tölvuárásar Rússneskir tölvuþrjótar hafa síðan á föstudag haft allt tölvukerfi hátæknifyrirtækis í gíslingu. Þeir krefjast tuga milljóna króna lausnargjalds. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins ætlar ekki að verða við kröfum þeirra. Hann býst við að hægt verði að hefja einhverja starfsemi á ný í fyrirtækinu í dag. Innlent 23.9.2021 14:41
Rússneskir tölvuþrjótar með tölvukerfi íslensks fyrirtækis í gíslingu Hakkarar frá Rússlandi hafa náð tökum á tölvukerfi íslenska fyrirtækisins Geislatækni. Tölvuþrjótarnir brutust inn í kerfið aðfaranótt föstudags og krefjast þeir tuga milljóna í lausnargjald. Innlent 22.9.2021 21:45
Netárás skýri truflanir á þjónustu SaltPay Fjármálafyrirtækið SaltPay segir að síðdegis í dag hafi verið gerð tölvuárás á fyrirtækið sem varð til þess að talsverðar truflanir hafa orðið á þjónustufyrirtækisins. Þetta segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 3.9.2021 22:46
Pegasus verkefnið veldur usla í stjórnmálaheiminum Um helgina kom upp á yfirborðið að stjórnvöld um allan heim noti ísraelska njósnaforritið Pegasus til að njósna um borgara sína. Meðal þeirra sem njósnað hefur verið um eru forseti Mexíkó og helsti andstæðingur forsætisráðherra Indlands. Rúmlega áttatíu blaðamenn frá sextán miðlum hafa unnið úr gagnaleka um málið síðustu mánuði. Erlent 20.7.2021 13:22
Saka kínversk yfirvöld um umfangsmikla tölvuárás á Microsoft Evrópusambandið og yfirvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum hafa sakað kínversk yfirvöld um að hafa staðið að baki umfangsmikilli tölvuárás á bandaríska tæknirisann Microsoft, fyrr á þessu ári. Viðskipti erlent 19.7.2021 20:55
Njósnabúnaðinum Pegasus beitt gegn aðgerðasinnum Símanúmer aðgerðasinna, blaðamanna og stjórnmálamanna eru meðal þeirra sem eru á lista yfir fimmtíu þúsund símanúmer sem var lekið til fjölmiðla í gær. Talið er að símanúmerin tengist ísraelska fyrirtækinu NSO Group sem selur stjórnvöldum um allan heim búnaðinn Pegasus sem breytir símum fólks í eftirlitstæki. Erlent 19.7.2021 12:25
Biden hótar Pútín aðgerðum vegna rússneskra hakkara Hvíta húsið tilkynnti í dag að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefði varað kollega sinn Vladimír Pútín við því að Bandaríkin myndu „verja þegna sína“ gegn rússneskum tölvuárásum. Erlent 9.7.2021 23:47
Krefjast milljarða til leysa gögn úr haldi Tölvuþrjótar sem tóku gögn hundraða fyrirtækja víða um heim í gíslingu fyrir helgi krefjast nú jafnvirði um 8,7 milljarða króna í lausnargjald. Sænska verslanakeðjan Coop þurfti að loka hundruðum verslana sinna þegar kassakerfi þeirra læstist. Erlent 5.7.2021 09:04
Tölvuþrjótar segjast hafa komist yfir grunnkóða Electronic Arts Tölvuþrjótar brutust inn í kerfi Electronic Arts, eins stærsta tölvuleikjaframleiðanda í heimi, og tókst að stela grunnkóða nokkurra leikja fyrirtækisins. Erlent 11.6.2021 08:15
Stærsti kjötframleiðandi heims greiðir lausnargjald í kjölfar netárásar Stærsti kjötframleiðandi í heimi, brasilíska stórfyrirtækið JBS, hefur neyðst til að greiða tölvuþrjótum lausnargjald upp á um 11 milljónir dollara. Erlent 10.6.2021 06:53
Ekkert bendir til netárásar Bilun hjá fyrirtækinu Fastly olli því að mikill fjöldi vefsíðna lá niðri um heim allan í morgun. Forstöðumaður netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunnar segir bilunina áhyggjuefni. Innlent 8.6.2021 11:32
Fjöldi vefsíðna lá niðri Vefsíður breska ríkisútvarpsins, CNN, New York Times sem og Amazon, Reddit og Twitch hafa legið niðri í morgun ásamt fjölmörgum öðrum. Þá má sjá röskun á virkni Twitter og Youtube. Erlent 8.6.2021 10:30
Stálu bandarísk yfirvöld lausnargjaldinu til baka? Bandaríska dómsmálaráðuneytið segir að þar á bæ hafi mönnum tekist að ná til baka mest öllu lausnargjaldinu sem greitt var á dögunum til tölvuþrjóta sem höfðu lokað Colonial eldsneytislínunni á austurströnd Bandaríkjanna. Erlent 8.6.2021 06:43
Rússneskir tölvuþrjótar ráðast á hjálpar- og mannréttindasamtök Rússneskir tölvuþrjótar, sem taldir eru bera ábyrgð á SolarWinds árásinni svokölluðu, hafa nú gert árás á rúmlega 150 stofnanir og samtök í minnst 24 löndum víðsvegar um heiminn, með því að notast við tölvukerfi ríkisstofnunar sem sér um þróunaraðstoð Bandaríkjanna (USAID). Sérfræðingar Microsoft segja um þrjú þúsund tölvupósta úr tölvukerfi USAID hafa verið senda í árásinni. Erlent 28.5.2021 11:14
Írska heilbrigðisþjónustan á hnjánum vegna tölvuvíruss Stjórnendur opinberu heilbrigðisþjónustunnar á Írlandi hafa lokað öllum tölvukerfum og afbókað fjölda læknisheimsókna í kjölfar netárásar. Erlent 14.5.2021 11:58
Tölvuárás gerð á stærstu eldsneytisleiðslu Bandaríkjanna Bandarísk yfirvöld gáfu í gær út neyðarheimild eftir að stærsta eldsneytisleiðsla landsins varð fyrir netárás. Um það bil 2,5 milljónir tunna af eldsneyti flæða um Colonial-leiðsluna daglega en það jafngildir um 45 prósent eldsneytisnotkunar austurstrandarinnar. Erlent 10.5.2021 07:34
Önnur tölvuárás gerð á norska þingið Tölvuþrjótar komust inn í tölvukerfi norska þingsins og stálu þaðan gögnum. Hálft ár er frá því að yfirvöld greindu frá annarri slíkri árás á þingið. Erlent 10.3.2021 16:02
Bankaeftirlitsstofnun á meðal fórnarlamba Microsoft-árásar Óttast er að tölvuþrjótar kunni að hafa komist yfir persónuupplýsingar Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA) þegar árás var gerð á tölvupóstkerfi tæknirisans Microsoft. Stofnunin þurfti að loka tölvupóstkerfi sínu á meðan tjónið af árásinni var metið. Viðskipti erlent 8.3.2021 15:33
Sendi teikningar af þinghúsi Þýskalands til rússnesks njósnara Þýskir alríkissaksóknarar hafa ákært þýskan ríkisborgara fyrir að hafa útvegað rússneskum manni, sem grunaður er um að vera njósnari, teikningar og önnur gögn um þinghús Þýskalands. Erlent 25.2.2021 16:20
Hakkari reyndi að eitra fyrir heilli borg Embættis- og löggæslumenn í Pinellassýslu í Flórída í Bandaríkjunum tilkynntu í kvöld að hakkari hefði náð stjórn á tölvukerfi vatnshreinsistöð borgarinnar Oldsmar og reynt að eitra fyrir borgarbúum. Erlent 8.2.2021 22:03
Vara við svikaskilaboðum sem virðast koma frá Skattinum Lögreglan á Austurlandi varar við sviksamlegum SMS-skilaboðum þar sem óprúttnir aðilar fara undir fölsku flaggi og reyna að leiða viðtakendur skilaboðanna inn á falska heimasíðu Skattsins. Innlent 2.2.2021 21:20
Ráðgjafi vissi af og varaði við hættunni á tölvuárás Fyrrverandi öryggisráðgjafi hjá SolarWinds, fyrirtæki sem selur fjölmörgum bandarískum stofnunum og fyrirtækjum hugbúnaðartól til stjórnunar tölvukerfa, segist hafa varað við þeim göllum sem tölvuþrjótar nýttu sér til þess að fremja gífurlega umfangsmikla tölvuárás, sem talið er að Rússar beri ábyrgð á. Erlent 21.12.2020 23:30
Segir Biden ætla að refsa Rússum fyrir tölvuárásina umfangsmiklu Þegar Joe Biden verður forseti Bandaríkjanna í næsta mánuði, mun hann refsa yfirvöldum Rússlands vegna gífurlega umfangsmikillar tölvuárásar sem Rússar eru taldir bera ábyrgð á. Ron Klain, starfsmannastjóri Bidens, segir að þeim sem beri ábyrgð á árásinni verði refsað. Erlent 21.12.2020 09:36
Lýst sem verstu tölvuárás í sögu Bandaríkjanna Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa sífellt meiri áhyggjur af tölvuárás sem virðist hafa staðið yfir gegn bandarískum stofnunum í marga mánuði, án þess að einhver hafi orðið þess var. Netöryggisstofnun Bandaríkjanna sagði í kvöld að árásin væri alvarleg ógn gagnvart hinu opinbera og fyrirtækjum. Erlent 17.12.2020 22:14