Fjölmiðlar

Auglýsendur þurfa greiðan aðgang að útbreiddum innlendum miðlum
Andstætt skoðun ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, Lilju Daggar Alfreðsdóttur, er ég þeirrar sannfæringar að RÚV eigi að vera áfram á auglýsingamarkaði.

Reynir segir dóminn víkka tjáningarfrelsið til mikilla muna
Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs segir nýfallinn dóm í Hæstarétti vera þess eðlis að nú geti menn nánast látið nánast hvað sem er flakka.

Arnþrúður hafði betur gegn Reyni í Hæstarétti
Ummæli Arnþrúðar Karlsdóttur, útvarpskonu á Útvarpi Sögu, um Reyni Traustason ritstjóra standa. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar sem staðfesti dóm Landsréttar þess efnis. Reynir hafði höfðað mál á hendur Arnþrúði og sakað hana um ærumeiðandi ummæli.

Lofa loks lausn á eilífðarmáli sem hreyfðist þó ekkert á síðasta kjörtímabili
Formenn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna taka undir með menningarmálaráðherra um að taka beri Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Fjármálaráðherra vill þar að auki taka til umræðu hvort ekki rétt sé að draga úr umsvifum fjölmiðilsins.

Síminn furðar sig á tilhæfulausri pillu frá ráðherra
Orri Hauksson, forstjóri Símans, vísar ummælum Lilju Alfreðsdóttur, menningarmálaráðherra, á bug en ráðherra beindi því til Símans að skila fjölmiðlastyrkjum í ríkissjóð ef fyrirtækið teldi sig „of fínt“ fyrir styrkina. Síminn hefur ekki fengið neina styrki af þessu tagi. Hann fagnar þó breyttum áherslum ráðherra sem hyggst taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði.

Viðbragðsaðilar segja frétt um leitargögn ranga
„Þetta er alfarið rangt,“ segir Guðbrandur Örn Arnarson, yfirmaður aðgerða hjá Landsbjörg, um frétt sem birtist í Fréttablaðinu í morgun, þar sem meðal annars sagði að gögn er vörðuðu leit að flugvélinni sem hvarf á fimmtudag hefðu ekki borist lögreglu fyrr en á föstudag.

Stefnir enn ótrauð á að taka RÚV af auglýsingamarkaði
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra er ákveðin í afstöðu sinni að Ríkisútvarpið hverfi af auglýsingamarkaði. Þetta kom fram í máli hennar á málþingi í húsakynnum Blaðamannafélagsins sem nú stendur yfir.

Friðrik Ómar tekinn við af Loga
Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson er tekinn við af Loga Bergmanni Eiðssyni, fjölmiðlamanni, í Síðdegisþættinum á útvarpsstöðinni K100.

Biðjast afsökunar á því að hafa sagt að innrás Rússa væri hafin
Bandaríski miðilinn Bloomberg News baðst á laugardagskvöld afsökunar á því að hafa fyrir mistök birt fyrirsögnina „Rússland gerir innrás í Úkraínu.“

Auglýsingatekjur fjölmiðla drógust saman um sextán prósent
Tekjur innlendra fjölmiðla af birtingu og flutningi auglýsinga árið 2020 drógust saman um 16% frá árinu áður reiknað á föstu verðlagi. Sambærilegur samdráttur sást einnig í auglýsingagreiðslum til erlendra miðla. Heildartekjur innlendra fjölmiðla rýrnuðu um 6% frá fyrra ári en tekjur af notendum jukust um 2%.

Sögur um meint vændisviðskipti trufla Kára ekki en börnum hans er ekki skemmt
Kára Stefánssyni þykir einkennilegt að þurfi að sverja af viðskipti við vændiskonu en engu slíku sé til að dreifa.

Gunna Dís komin aftur á RÚV
Guðrún Dís Emilsdóttir, betur þekkt sem Gunna Dís, hefur störf hjá RÚV á ný eftir að hafa kvatt vinnustaðinn 2019 og flutt til Húsavíkur.

Karlmennirnir voru fimm en ekki fjórir
Þrír einstaklingar sóttu um stöðu fréttastjóra RÚV og dagskrárstjóra Rásar 2 til viðbótar við þá sem greint var frá í gær. Umsækjendurnir þrír drógu umsókn sína til baka áður en listinn var birtur en venja er fyrir því að RÚV hafi samband við umsækjendur áður en nöfn þeirra eru gerð opinber.

Forseti CNN hættir vegna ástarsambands við samstarfskonu
Forseti fjölmiðilsins CNN í Bandaríkjunum sagði af sér í morgun eftir að upp komst um ástarsamband hans við samstarfskonu.

Af hverju svona fáir og hvar eru konurnar?
Hópur umsækjenda um frétta- og dagskrárstjórastöðu á Ríkisútvarpinu ohf. er þannig vaxinn og svo fámennur að vakið hefur nokkra furðu.

Fjórir vilja verða næsti fréttastjóri RÚV
Fjórir sækjast eftir því að verða næsti fréttastjóri RÚV. Meðal þeirra eru Heiðar Örn Sigurfinnsson, varafréttastjóri RÚV og Þórir Guðmundsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Yngsti ritstjóri landsins á höttunum eftir fréttariturum
Yngsti ritstjóri landsins, hinn tíu ára Auðunn Sölvi Hugason, ætlar að glæða fréttaflóruna með jákvæðum fréttum frá krökkum um allan heim. Hann stefnir á að verða leikari í framtíðinni en gæti hugsað sér að sinna blaðamennskunni í hlutastarfi.

New York Times kaupir orðaleikinn vinsæla
Bandaríska stórblaðið New York Times hefur keypt orðaleikinn Wordle, sem slegið hefur í gegn í netheimum undanfarin misseri.

Fréttablaðið og RÚV féllu í gildru Twitter-trölls
Fréttablaðið og Ríkisútvarpið féllu í gildru Twitter-trölls þegar miðlarnir greindu frá því í gærkvöldi að bandaríski leikarinn og Íslandsvinurinn Will Ferrell hefði áhuga á að keppa fyrir Íslands hönd í Eurovison.

Jón Þórisson snýr aftur og tekur við sem forstjóri Torgs
Jón Þórisson hefur tekið við sem forstóri Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins, DV, Hringbrautar og tengdra miðla. Jón er fyrrverandi aðalritstjóri Torgs og tekur við af Birni Víglundssyni sem sagði starfi sínu lausu í nóvember síðastliðnum.

Lengjubikarinn sýndur á Stöð 2 Sport
Knattspyrnusamband Íslands og Stöð 2 Sport hafa gert samkomulag um að sýnt verði frá A-deildum deildarbikarkeppni karla og kvenna, Lengjubikarnum, á Stöð 2 Sport.

Segir Mannlíf hafa brotið fjölmiðlalög
Félag Róberts Wessman fullyrðir að Halldór Kristmannsson hafi greitt fjölmiðlinum Mannlífi háar fjárhæðir í þeim tilgangi að halda úti „níðskrifum“ um Róbert. Hann hefur tilkynnt meint brot til Fjölmiðlanefndar, Skattrannsóknarstjóra og Neytendastofu.

„Fyrir mig er þetta áfall og mér líður illa með þetta“
Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, segir ekkert að frétta af rannsókn á innbroti á ritstjórnarskrifstofur Mannlífs en áður hafði verið brotist inn í bíl hans. Lögreglan segir að rannsókn sé á frumstigi.

RÚV keypti kostað kynningarefni og sýndi sem heimildarmynd
Ríkisútvarpið sendi í gær út þátt um jarðgöng á Norðurlandi sem kostaður er af Vegagerðinni og Sóknaráætlun Norðurlands eystra, verkefni sem meðal annars er ætlað að efla byggðaþróun. Varaformaður Blaðamannafélagsins segist líta á þáttinn sem kynningarefni en ekki heimildarþátt.

Vissi ekki af vændiskaupunum og furðar sig á umfjöllun Stundarinnar
Starfsfólk embættis landlæknis var ekki kunnugt um vændiskaup fráfarandi formanns SÁÁ. Talsmaður embættisins furðar sig á að það sé dregið inn í þetta mál í umfjöllun Stundarinnar.

Ragnhildur Steinunn breytir til hjá RÚV
Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir hefur sagt upp sem aðstoðardagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV. Hún segist ætla að snúa sér aftur að dagskrárgerðinni.

Fer fram á bætur vegna brottreksturs úr Allir geta dansað
Javier Fernández Valiño, hefur stefnt RVK Studios til greiðslu eftirstöðva samnings sem gerður var við hann þegar hann var einn atvinnudansara í þáttunum Allir geta dansað. Javi, eins og hann er kallaður, var á sínum tíma látinn fara frá þáttunum „vegna óviðráðanlegra aðstæðna.“

Segir fráleitt að hann hafi komið að innbrotinu
Róbert Wessman segir fráleitt að hann hafi með nokkrum hætti komið að innbroti á skrifstofu Mannlífs. Hann segist vonast til þess að lögreglan taki málið föstum tökum og nái sökudólgunum allra fyrst. Árásir á fjölmiðla séu aðför að lýðræðinu og eigi ekki að líðast.

Aðgerðum gegn fjölmiðlum á Íslandi fari fjölgandi
Vefurinn Mannlíf.is lá niðri fram á miðjan dag eftir að brotist var inn á skrifstofur miðilsins í nótt og öllu eytt út af síðunni. Formaður Blaðamannafélags Íslands segir innbrotið eitt alvarlegasta dæmið um atlögu gegn fjölmiðlum hér á landi um nokkra hríð.

Skrifstofa Mannlífs eftir harðsvírað innbrot: „Ekki menn ruglaðir af dópi, þetta eru útsendarar“
Vefurinn Mannlíf.is lá niðri fram á miðjan dag eftir að brotist var inn á skrifstofur miðilsins í nótt og öllu eytt út af síðunni. Reyni Traustasyni ritstjóra er illa brugðið; honum líður eins og honum hafi verið misþyrmt, stunginn í bakið. Hér sé um verk útsendara að ræða.