Fjölmiðlar

Með óaðfinnanlega hnýtta þverslaufu á Kvíabryggju
Vinjettuhöfundurinn Ármann Reynisson á að baki einstakt lífshlaup. Í þessu höfundatali segir hann meðal annars af dvölinni á Kvíabryggju en þar var hann eins og hvítur hrafn. Þá kemur hann inn á þá útskúfun sem hann telur sig hafa mátt sæta af hálfu þeirra sem tilheyra menningarelítunni.

Þegar valdakarlar iðrast
„Við þurfum réttlæti, sanngirni og viðurlög við lögbrotum en líka umræðu, fræðslu og leiðir til að leyfa fólki að bæta ráð sitt, sýni það iðrun og eftirsjá.“

Tekjur Sýnar hækkuðu um rúmar 470 milljónir milli ára
Tekjur Sýnar námu 5.533 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi og hækkuðu um 471 milljón króna milli ára. Tekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins voru 15.822 milljónir króna sem er 2,2 prósenta aukning frá sama tímabili árið 2020.

Gjaldþrota stefna
Kastljós er mikilvægur umræðuþáttur þar sem stóru þjóðmálin eru oft tekin fyrir og viðmælendur geta yfirleitt búist við að vera spurðir gagnrýninna spurninga þegar þeir standa fyrir máli sínu.

Jólastöðin er komin í loftið
Jólabörn landsins geta glaðst yfir því að Jólastöð LéttBylgjunnar er komin í loftið. Líkt og á hverju ári breytist LéttBylgjan 96,7 í Jólastöðina nokkrum vikum fyrir jól þar sem jólalögin hljóma allan sólarhringinn.

Skopmyndari Moggans ekki frétt af því að hann sé hættur
Ekki birtist mynd eftir hinn mjög svo umdeilda skopmyndateiknara Morgunblaðsins í blaði dagsins eins og venja er til. Þegar fóru á flug sögusagnir um að hann væri hættur og rötuðu þær kenningar að sjálfsögðu inn á ritstjórnarskrifstofur Vísis. En Helgi Sigurðsson teiknari kannast ekki við að hann sé hættur og farinn.

„Mánudagsmorgnar alltaf í sérstöku uppáhaldi“
Kristján Sigurjónsson hefur haldið úti Túrista í tólf ár, en búið erlendis allan tíman og gerir enn.

Öryggisverðir Bolsonaro í Róm sakaðir um ofbeldi gegn blaðamönnum
Öryggisverðir Jair Bolsonaro, forseta Brasilíu, hafa verið sakaðir um að beita brasilíska blaðamenn sem voru viðstaddir nýafstaðinn G20 fund í Róm ofbeldi. Á götum borgarinnar var forsetinn harðlega gagnrýndur fyrir framgöngu sína í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn.

Ráðning Andra framlengd og Stefán Hrafn snúinn aftur
Tímabundin ráðning Andra Ólafssonar í starf upplýsingafulltrúa hjá Landspítalanum hefur verið framlengd til 1. febrúar. Stefán Hrafn Hagalín, sem er deildarstjóri samskiptadeildar, hefur snúið aftur til starfa.

Páll ekki rekinn en hlýtur ákúrur frá skólameistara
Kristinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ hefur sent nemendum og aðstandendum skólans bréf þar sem hann fer yfir mál Páls Vilhjálmssonar kennara við skólann sem varða afar umdeild bloggskrif hans um Helga Seljan fréttamann. Skólameistari lýsir sig afar ósáttan við skilaboð Páls til geðsjúkra.

„Lifði erfiðara lífi heldur en nokkur maður getur ímyndað sér“
Sigmundur Ernir Rúnarsson er Akureyringur, sex barna faðir, blaðamaður, ljóðskáld, fyrrum alþingismaður og margt fleira. Í dag er hann ritstjóri Fréttablaðsins.

H.M.S. Hermann ekki Hermann Stefánsson nema síður sé
Guðni Elísson rithöfundur og prófessor segir það hreina og klára dellu að ein aðalpersónan í bók hans Ljósgildrunni, H.M.S Hermann sé byggður á Hermanni Stefánssyni rithöfundi.

Ríkarður Örn Pálsson fallinn frá
Ríkarður Örn Pálsson, tónskáld, bassaleikari og tónlistargagnrýnandi, er látinn, 75 ára að aldri.

Eyþór segir hlut sinn í Mogganum verst geymda leyndarmálið í íslenskri pólitík
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segist engar beinagrindur hafa í skápum sínum. Hann keypti hlutabréf í fjölmiðlum Árvakurs fyrir fjórum árum síðan en hlutabréfin keypti hann af Samherja.

Sekta Ríkisútvarpið, Sýn og Hringbraut vegna auglýsinga
Fjölmiðlanefnd birti undir kvöld nokkrar ákvarðanir þar sem fyrirtæki og fólk var sektað vegna ólögmætra auglýsinga. Ríkisútvarpið, Sýn og Hringbraut voru sektuð en nefndin ákvað að sekta ekki forsvarsmenn tveggja hlaðvarpa þar sem lög voru brotin.

Dr. Football sektaður um hálfa milljón
Fjölmiðlanefnd sendi stefnuvott að heimili Hjörvars Hafliðasonar, eiganda hlaðvarpsins Dr. Football, því hann svaraði ekki ítrekuðum erindum nefndarinnar.

Kvöldfréttir lengri um helgar
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar býður nú upp á lengri fréttatíma á Stöð 2 um helgar. Fréttatíminn, sem samanstendur af kvöldfréttum og sportpakka, verður nú 25 mínútur alla daga vikunnar.

Eiríkur á Omega dæmdur til greiðslu 109 milljóna sektar fyrir meiriháttar skattsvik
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt sjónvarpsmanninn Eirík Sigurbjörnsson, oftast kenndur við kristilegu stöðina Omega, í tíu mánaða fangelsi og greiðslu 108,9 milljóna króna sektar fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum.

Þegar hin þybbna Salka Valka var sölluð niður
Man þegar ég gaf út fyrstu skáldsöguna mína, sirka 24 ára, þá bauð pabbi mér að lesa upp á vinnustaðnum sínum.

Anna Sigrún lætur í veðri vaka að Páll Vilhjálmsson sé siðblindur
Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítala, ritar grein þar sem hún lætur að því liggja að Páll Vilhjálmsson bloggari og framhaldsskólakennari sé siðblindur.

Greindi frá því í beinni að hann væri með MS
John King, einn af helstu fréttaþulum bandarísku sjónvarpstöðvarinnar CNN, greindi frá því í dag í miðjum umræðuþætti hans á sjónvarpstöðinni að hann væri með taugasjúkdóminn MS. Hann segist vera þakklátur fyrir það að samstarfsfélagar hans séu bólusettir gegn Covid-19.

Fanney Birna hætt í Silfrinu eftir allt saman
Fanney Birna Jónsdóttir er hætt sem stjórnandi í umræðuþættinum Silfrinu á RÚV, sem hún hefur stjórnað ásamt Agli Helgasyni um nokkurt skeið. Þetta staðfestir Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV í samtali við fréttastofu.

Skrif Páls Vilhjálmssonar til skoðunar hjá skólanum
Kristinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ segir að þegar hafi á annan tug erinda borist skólanum vegna skrifa Páls Vilhjálmssonar.

Páll Vilhjálmsson sér ekkert bogið við umdeildan pistil um Helga Seljan
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar, fordæma skrif Páls Vilhjálmssonar framhaldsskólakennara við Fjölbrautarskólann í Garðabæ. Sjálfur segir Páll hugleiðingar sínar fullkomlega eðlilegar.

Segir umfjöllun Kveiks jaðra við áróður og varar fólk við að mæta í viðtal
Jón Ívar Einarsson, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla, sakar fréttaskýringaþáttinn Kveik um að hafa sýnt hlutdrægni í umfjöllun um gagnrýnendur sóttvarnaraðgerða og finnst framsetning þáttarins til þess fallin að kasta rýrð á málflutning sinn.

Stundar Kveikur rannsóknarblaðamennsku?
Því miður markast fréttaflutningur í dag m.a. af því hver heldur um pyngjuna hjá viðkomandi fjölmiðli. Kveikur er hins vegar framleiddur af Ríkissjónvarpinu og því bjóst ég við hlutleysi og vinnubrögðum í anda Bob Woodward. Sú var þó ekki raunin.

Útgáfufélag Fréttablaðsins og DV tapaði tæplega 600 milljónum
Fjölmiðlafyrirtækið Torg tapaði upp undir 600 milljónum króna á seinasta ári. Þetta er haft eftir Helga Magnússyni, stjórnarformanni og stærsta eiganda félagsins, í Fréttablaðinu í dag. Tapið hafi allt verið fjármagnað með nýju hlutafé.

Birgir fer til Play
Birgir Olgeirsson hefur verið ráðinn sérfræðingur í almannatengslum hjá flugfélaginu Play.

Fjölmiðillinn 24 - þínar fréttir kominn í loftið
Fjölmiðillinn 24 - þínar fréttir er kominn í loftið en hann er nýr frétta- og mannlífsmiðill í ritstjórn Kristjóns Kormáks Guðjónssonar, fyrrverandi ritstjóra Pressunnar, DV, Hringbrautar og Fréttablaðsins.

Nennir ekki neikvæðum fréttum og segir aðra geta séð um þær
Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður á Stöð 2, er þekktur fyrir sinn einstaka fréttastíl, en hann leggur það ekki í vana sinn að segja fréttir sem almennt myndu teljast neikvæðar. Þvert á móti þefar hann uppi léttar og jákvæðar fréttir af dýrum og mönnum. Hann segist vilja láta aðra um að gera neikvæðar fréttir.