Evrópusambandið
Banna hvítrússneskum flugfélögum að fljúga í evrópskri lofthelgi
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hafa bannað flugfélögum frá Hvíta-Rússlandi að fljúga í lofthelgi ESB eftir að þarlend stjórnvöld neyddu flugvél til að lenda í Minsk, þar sem einn farþega var handtekinn.
Hafa sent þúsundir aftur til Marokkó
Rúmlega 6.500 af þeim um átta þúsund farand- og flóttamönnum sem hafa gert sér leið til Ceuta, yfirráðasvæðis Spánar í Norður-Afríku, í þessari viku hafa verið sendir aftur til Marokkó. Þetta tilkynnti Fernando Grande-Marlaska, innanríkisráðherra Spánar í morgun.
QR-kóðar til að ferðast á milli landa
Evrópusambandsríki hafa komist að samkomulagi um hvers konar kórónuveirupassa þau ætla að nota til þess að opna fyrir ferðalög á milli sambandsríkja í sumar.
ESB opnar landamærin fyrir bólusettum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur tekið þá ákvörðun að opna landamæri ríkjasambandsins fyrir ferðamönnum sem hafa verið bólusettir að fullu. Þessi ákvörðun var tekin í morgun en hefur ekki verið tilkynnt opinberlega þar sem ákvörðunin hefur ekki verið staðfest af erindrekum aðildarríkja ESB.
Umdeildur dómari vill dæma í miðju framboði
Arnar Þór Jónsson héraðsdómari vill starfa áfram sem dómari þrátt fyrir að vera þátttakandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir sæti á lista í þingkosningum í haust.
ESB gerir risasamning við Pfizer um kaup á bóluefni
Evrópusambandið gæti fengið allt að 1,8 milljarða skammta af bóluefni gegn kórónuveirunni næstu þrjú árin samkvæmt nýjum risasamningi sem það hefur gert við Pfizer og BioNTech. Ísland tekur þátt í bóluefnasamstarfi Evrópusambandsins og nýtur því góðs af samningnum.
Skiptar skoðanir á afnámi einkaleyfa á bóluefnum
Leiðtogar Evrópuríkja eru ósammála um ágæti þess að afnema einkaleyfi á framleiðslu bóluefna gegn kórónuveirunni. Málið er nú til umræðu innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
EES-ríkin ekki lengur á „bannlista“ Evrópusambandsins
Ísland er ekki lengur á lista Evrópusambandsins yfir þau ríki sem hefta á flutning bóluefnis gegn covid-19 til. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu í gær.
Fyrstu skammtar Novavax verða afhentir Evrópusambandinu fyrir árslok
Lyfjaframleiðandinn Novavax hefur tilkynnt Evrópusambandinu að fyrstu skammtar covid-19 bóluefnis framleiðandans verði afhentir sambandinu fyrir lok þessa árs. Þetta gæti orðið til þess að Evrópusambandið geri formlega samning við fyrirtækið um kaup á bóluefni, jafnvel í þessari viku.
Leiðtogi norðurírsku heimastjórnarinnar segir af sér
Arlene Foster, oddviti heimastjórnar Norður-Írlands, sagði af sér vegna innanflokksátaka í Lýðræðislega sambandsflokksins (DUP) um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu í dag. Hún ætlar jafnframt að stíga til hliðar sem leiðtogi flokksins.
Mikill meirihluti þingmanna samþykkir fríverslunarsamninginn við Breta
Evrópuþingið hefur staðfest nýjan fríverslunarsamning milli Evrópusambandsins og Bretlands í kjölfar Brexit. Samningurinn hefur verið í gildi frá því í janúar en var samþykktur í morgun með 660 atkvæðum.
Covid-pakki ESB í óvissu vegna erja á finnska stjórnarheimilinu
Deilur innan finnsku ríkisstjórnarinnar tefla nú efnahagsaðgerðapakka Evrópusambandsins vegna kórónuveirufaraldursins í tvísýnu. Öll aðildarríkin þurfa að samþykkja pakkann en finnska stjórnin er sögð ramba á barmi falls.
Grískur Evrópuþingmaður sviptur friðhelgi og handtekinn
Belgíska lögreglan handtók Ioannis Lagos, grískan Evrópuþingmann, sem var sakfelldur fyrir aðild að hægriöfgaflokknum Gullinni dögun í heimalandi sínu í dag. Lagos á yfir höfði sér þrettán ára fangelsisvist.
ESB í mál við AstraZeneca
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sagðist í dag hafa höfðað mál gegn lyfjaframleiðandanum AstraZeneca vegna vanefnda á samningum.
Bólusettum Bandaríkjamönnum hleypt í frí til Evrópu á næstunni
Bólusettir Bandaríkjamenn munu geta heimsótt aðildarríki Evrópusambandsins í sumar. Forseti framkvæmdaráðs ESB tilkynnti í gær að sambandið myndi líklega breyta stefnu sinni eftir viðræður við ráðamenn í Washington um fyrirkomulag svokallaðra bólusetningar-vegabréfa.
ESB og íslenskt fullveldi
Í liðinni viku voru á Alþingi ræddar tillögur Viðreisnar um að ganga í Evrópusambandið (ESB) og að taka upp evruna sem gjaldmiðil á Íslandi. Í sjálfu sér er ágætt er að efna til umræðu um þessi mál til að draga fram helstu sjónarmið og skerpa línur um afstöðu stjórnmálaflokka til þessara málefna.
Íslendingar andvígir inngöngu í ESB en telja góðar líkur á hagstæðum samningi
Fleiri eru andvígir inngöngu Íslands í Evrópusambandið en hlynntir samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu. Aftur á móti telur ríflega helmingur þjóðarinnar að Ísland gæti náð hagstæðum samningi við sambandið.
ESB stefnir á kolefnishlutleysi með nýju loftslagsmarkmiði
Aðildarríki Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um að stefna að enn frekari samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á þessum áratug sem á að gera Evrópu að fyrstu kolefnishlutlausu álfunni um miðja öldina. Íslensk stjórnvöld hafa þegar sagst ætla að taka þátt í nýja markmiðinu.
Um sautján börn á flótta hverfa daglega í Evrópu
Að minnsta kosti 180 þúsund börn á flótta hafa horfið eftir að hafa komið til Evrópulanda á borð við Grikkland, Ítalíu og Þýskaland. Alls var 18.292 flóttabarna, sem voru ekki í fylgd með fullorðnum, saknað árin 2018 til 2020.
Telja um 150.000 hermenn við landamæri Úkraínu
Rússar hafa safnað saman um 150.000 hermönnum við landamæri Úkraínu og á Krímskaga, að sögn utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Hann telur hættuna á frekari stigmögnun átaka í Austur-Úkraínu augljósa.
ESB: Við bönnuðum ykkur ekki að borða Cocoa Puffs og Lucky Charms
Mörgum brá í brún um síðustu mánaðamót þegar þær fréttir bárust að morgunkornið Cocoa Puffs og Lucky Charms yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Fregnirnar vöktu mikla athygli og sátu margir aðdáendur hins vinsæla morgunkorns eftir með sárt ennið eða byrjuðu að hamstra vörurnar í stórum stíl.
Rökræddu stöðuna í stjórnmálum: „Eigum að ná miklu meiri árangri sem sjálfstæð þjóð“
Íslenskir stjórnmálamenn standa sig betur á krepputímum og stjórnvöldum er vel treystandi til að takast á við áföllin af völdum heimsfaraldurs innanlands að mati Guðna Ágústssonar. Þorsteinn Pálsson vill hins vegar hefja gjaldmiðlasamstarf við Evrópusambandið samhliða endurreisn ríkisfjármála.
Pfizer flýtir afhendingu bóluefna til Evrópu
Lyfjafyrirtækin Pfizer og BioNTech ætla að senda Evrópusambandinu 50 milljónir fleiri skammta af bóluefni fyrirtækjanna á þessum ársfjórðungi en áður stóð til. Það er til viðbótar við þá 200 milljónir skammta sem ESB býst við að fá fyrir lok júnímánaðar.
Framlengja ekki samninga sína við AstraZeneca og Johnson & Johnson
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hyggst ekki framlengja samninga sína við framleiðendur bóluefna á borð AstraZeneca og Johnson & Johnson sem renna út í árslok.
Klúður í Tyrklandsheimsókn rænir forseta leiðtogaráðsins svefni
Charles Michel, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, segist missa svefn vegna þess að hann lét hjá líða að mótmæla því að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, fengi ekki sæti með þeim Recep Erdogan, forseta Tyrklands, í heimsókn þeirra í vikunni.
Kanna tilkynningar um blóðtappa eftir Janssen-bólefni
Lyfjastofnun Evrópu rannskara nú tilkynningar um sjaldgæfa tegund blóðtappa hjá fólki sem fékk bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni. Ekki er ljóst hvort að orsakasamhengi sé á milli bóluefnisins og blóðtappanna.
Ráðherra hleypur apríl
Aðild Íslands að Evrópusambandinu er eitt af mörgum skýrum stefnumálum Viðreisnar. Ég er einn af þeim sem myndi ganga svo langt að segja að hún væri einn af burðarásum í stefnu flokksins og ein af grundvallarástæðum þess að Viðreisn varð til og mun vera til um ókomna framtíð.
Tyrkir neita því að þeir hafi snuprað von der Leyen
Utanríkisráðherra Tyrklands segir fráleitt að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hafi verið sýnd óvirðing vegna kynferðis hennar á fundi með Recep Erdogan forseta á þriðjudag. Von der Leyen var látin sitja á sófa til hliðar við Erdogan og Charles Michel, forseta leiðtogaráðs ESB.
Bandaríkjamenn og Íranir hefja viðræður um kjarnorkusamning
Óformlegar viðræður milli Bandaríkjanna og Íran til þess að endurvekja kjarnorkusamning ríkjanna frá 2015 munu hefjast á þriðjudag í Vín. Yfirvöld í Teheran hafa neitað að setjast formlega við samningsborðið en Bandaríkin segja fundinn marka jákvætt skref.
Vill fullan þunga í viðræður um tengingu krónunnar við evru
Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögur um endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið og samstarf í gjaldeyrismálum. Formaður Viðreisnar segir þjóðina eiga að fá að ákveða næstu skref í þjóðaratkvæðagreiðslu.