Danmörk

Danmörk

Höfuðborg: Kaupmannahöfn. Mannfjöldi: 6,0 milljónir (2025). Flatarmál: 43.094 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Þið vitið full­kom­lega hvað er í pakkanum“

„Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum,“ sagði Uffe heitinn Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, við mbl.is í marz 2017 en hann var mikill hvatamaður þess að Ísland gengi í Evrópusambandið, var hér oft í veiði og þekkti umræðuna hér vel.

Skoðun
Fréttamynd

Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðar­við­ræður“

Talsmaður rekstraraðila veitingahúsa segir svör borgarinnar vegna stöðumælasekta starfsfólks veitingahúsa við affermingar ekki standast fulla skoðun. Gert sé ráð fyrir undanþágum fyrir litlar sendingar í miðborgum nágrannalandanna. Talsmaðurinn kallar eftir samtali, auglýsir eftir stjórnmálamönnum og býður sig fram í „friðarviðræður“ vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lensk hjón búa um­kringd öryggis­vörðum

Snorri Sigurðsson og Kolbrún Anna Örlygsdóttir bjuggu ásamt börnum sínum á Hvanneyri þegar þau ákváðu að taka sér ársleyfi fyrir 15 árum af því að Snorra langaði til Danmerkur í endurmenntun. Þar leið fjölskyldunni vel, Snorri endurmenntaði sig við Háskólann í Árósum, Kolbrún fékk vinnu og krakkarnir undu sér vel. Þegar árið var á enda vildi Snorri heim, en ekki Kolla. Þau héldu atkvæðagreiðslu við eldhúsborðið heima - sem Snorri tapaði.

Lífið
Fréttamynd

Segist ætla senda spítalaskip til Græn­lands

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu.

Erlent
Fréttamynd

Þjálfari danska dýnamítsins fallinn frá

Sepp Piontek, fyrrum landsliðsþjálfari Danmerkur, er látinn. Undir hans stjórn frá 1979-90 umbreyttist danska landsliðið og fyrir Dönum er þetta ein mesta goðsögn í þeirra knattspyrnusögu.

Fótbolti
Fréttamynd

Stofnaði kökufyrirtæki 21 árs í Köben og fyrstu árin voru erfið

„Fyrstu árin voru rosalega erfið,“ segir Ynja Mist Aradóttir, 28 ára stofnandi og framkvæmdastjóri kökufyrirtækisins Bake My Day í Kaupmannahöfn. Hún var rétt liðlega tvítug, nýflutt til Kaupmannahafnar og ótalandi á dönsku þegar hún ákvað að stofna kökufyrirtæki. Upprunalega hugðist hún fara í nám í Kaupmannahöfn en þegar hún komst ekki inn í skólann datt henni í hug að stofna þetta fyrirtæki - sem henni tókst þegar mamma hennar ákvað að taka lán á Íslandi til að hjálpa henni með stofnkostnaðinn.

Lífið
Fréttamynd

Telur Trump enn girnast Græn­land

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, telur að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, girnist enn Grænland, þó hann hafi dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Þessu var hún spurð að á öryggisráðstefnunni í München í gær og sagðist hún því miður telja að lítið hefði breyst hjá Trump.

Erlent
Fréttamynd

Fjölga verslunum í Danaveldinu

66°Norður opnaði nýja verslun í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. Um er að ræða svokallað archive-verslun þar sem hægt er að festa kaup flíkum frá fyrri vörulínum.

Neytendur
Fréttamynd

Taki þátt í skipu­lagningu frá Litla-Hrauni

Lögreglan telur sig hafa upprætt alþjóðleg glæpasamtök sem bera ábyrgð á stórum hluta þess kókaíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi á síðustu árum. Meðlimir samtakanna eru taldir hafa skipulagt innflutning á meðan þeir sátu inni á Litla-Hrauni. Tveimur hefur verið sleppt úr haldi.

Innlent
Fréttamynd

Að vera neitað um lista­manna­laun reyndist al­gjör frelsun

Fyrir tveimur árum sléttum tók Vísir viðtal við rithöfundinn Mikael Torfason sem var þá fluttur til Bandaríkjanna eftir að hafa verið búsettur bæði í Vín og Berlín. Hann fór yfir Atlantsála til fyrirheitna landsins. Hann sagðist aldrei ætla að koma aftur til Íslands.

Lífið
Fréttamynd

Um­ferðin í klessu vegna mikillar snjó­komu í Dan­mörku

Óvenjumikill snjór, á danskan mælikvarða, hefur fallið síðasta sólarhringinn í Danmörku og hefur ríkislögreglustjóri varað íbúa í nokkrum lögregluumdæmum landsins við því að fara út í umferðina nema nauðsyn krefji. Samgöngur hafa verið í uppnámi og nokkuð mikið um umferðaróhöpp vegna snjókomunnar, sem er sú mesta í Kaupmannahöfn í fimmtán ár. 

Erlent
Fréttamynd

Fór í flug­tak af ak­braut og hafnaði úti á grasi

Flugvél SAS, sem átti að leggja af stað frá Brussel í Belgíu til Kaupmannahafnar í Danmerkur í gærkvöldi, fór aldrei í loftið eftir að vélin hafnaði í grasi utan brautar eftir tilraun til flugtaks af akbraut en ekki flugbraut. Farþegar voru um borð í vélinni sem var rýmd laust fyrir miðnætti í gærkvöldi og var farþegum útvegað pláss með öðru áætlunarflugi félagsins síðar.

Erlent
Fréttamynd

Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári

Jóakim Danaprins og konan hans María prinsessa ætla að flytja heim til Danmerkur á næsta ári. Parið er búsett í Washington DC í Bandaríkjunum en stefna á flutninga heim þegar samningur Jóakims rennur út í ágúst á næsta ári, en hann starfar við danska sendiráðið í Bandaríkjunum.

Lífið
Fréttamynd

Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“

Danska ríkisstjórnin kynnti á föstudaginn umfangsmiklar breytingar á löggjöf um brottvísanir frá landinu sem stjórnvöld þar í landi hafa boðað. Meðal annars hyggjast stjórnvöld lækka þröskuldinn fyrir brottvísanir frá Danmörku vegna glæpa, enduropna sendiráð sitt í Sýrlandi til að liðka fyrir endursendingum Sýrlendinga þangað og efla fjárhagslega hvata fyrir erlenda ríkisborgara til að snúa aftur til baka. Áformin hafa sætt gagnrýni af hálfu þeirra sem vilja meina að þau standist ekki alþjóðlega sáttmála á borð við Mannréttindasáttmála Evrópu, en dönsk stjórnvöld segjast tilbúin að „taka sénsinn“ til að flýta fyrir breyttri túlkun á mannréttindasáttmálanum.

Erlent