Albanía

Albanía

Höfuðborg: Tírana. Mannfjöldi: 2,8 milljónir (2025). Flatarmál: 28.748 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Neitaði að sam­þykkja af­sögn vegna mót­mælanna

Emanuel Macron Frakklandsforseti neitaði að samþykkja afsögn innanríkisráðherrans Laurent Nunez í gær eftir gríðarleg mótmæli víða um landið um helgina. Alda skemmdarverka og rána hélt áfram í gærkvöldi og í nótt og yfir hundrað manns voru handteknir í höfuðborginni París í nótt.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Eldur í ráðu­neyti og banka í ó­eirðum í Tirana

Tugþúsundir námsmanna flykktust út á götur Tírana, höfuðborgar Albaníu, í gær til að mótmæla enn á ný. Mótmælin urðu ofbeldisfull og var kveikt í stjórnarráðsbyggingu og tveimur bönkum. Samkvæmt frétt Guardian eru 23 lögreglumenn slasaðir og sex mótmælendur. Þá kemur fram að 35 hafi verið handteknir.

Erlent
Fréttamynd

Ein mat­skeið og þá er dauðinn vís

„Ég hef lesið það að ef menn borða sem samsvarar einni matskeið af soðinni eða eldaðri viðarkveif (galerina marginata) sem er lítill brúnn sveppur sem er oft í kurlbornum göngustígum, þá er dauðinn nokkuð vís.“

Innlent
Fréttamynd

Ís­lendingar meðal sak­borninga en enginn í varð­haldi

Rannsókn lögreglu á meintum fíkniefnahring á Raufarhöfn og víðar er enn í fullum gangi að sögn rannsóknarlögreglumanns sem sér enn ekki fyrir endann á málinu. Íslenskir ríkisborgarar eru meðal sakborninga en fjórum sakborningum hefur verið vísað til Albaníu. Á sumum stöðum hafi kannabisframleiðsla staðið yfir í nokkur ár.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að bragð­bæta ban­eitruðu mál­tíðina

Áströlsk kona sem er sökuð um að hafa myrt skyldmenni sín með baneitruðum sveppum viðurkenndi fyrir dómi að villtir sveppir kynnu að hafa verið í banvænni máltíð sem hún gaf þeim. Hún hefði bætt þurrkuðum sveppum út í réttinn vegna þess að hann hefði verið of bragðlaus.

Erlent
Fréttamynd

Segir sveppa­eitrunina hafa verið „hörmu­legt ó­happ“

Verjendur ástralskrar konu sem er sökuð um að hafa drepið tengdafjölskyldu sína með eitruðum sveppum segja að hún muni halda því fram að það hafi verið „hörmulegt óhapp“. Réttarhöld yfir konunni hófust í dag en hún er ákærð fyrir þrjú morð og tilraun til manndráps.

Erlent
Fréttamynd

Einn helsti rit­höfundur Albaníu er allur

Albanski rithöfundurinn Ismail Kadare er látinn. Hann er fæddur 1936 og lést 1. júlí á þessu ári. Kadare hefur verið talinn eitt helsta skáld og hugsuður 20. og 21. aldarinnar, en hann hefur barist mjög gegn alræði í skrifum sínum.

Erlent
Fréttamynd

12 tonn af sveppum í hverri viku frá Flúðasveppum

Eitt öflugasta fyrirtæki í Uppsveitum Árnessýslu, Flúðasveppir á Flúðum framleiðir nú 12 tonn af sveppum á viku og hefur varla undan að framleiða sveppi ofan í landsmenn. Fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli í ár en á fyrstu árunum voru aðeins framleidd 500 kíló af sveppum á viku, sem þótti mjög gott þá.

Innlent