Ísrael
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 43 ›
Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Króatíska framlagið var í uppáhaldi hjá íslenskum áhorfendum á Eurovision sem haldið var í Malmö í kvöld. Það franska hlaut 10 stig og Ísrael fékk 8 stig frá íslenskum áhorfendum. Lífið 11.5.2024 23:15
Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Ísraelsher hefur fyrirskipað þúsundum að yfirgefa Rafah en búist er við því að herinn ráðist þangað inn af fullum þunga á næstunni. Erlent 11.5.2024 18:05
Kvartar yfir Ísrael og vill að þeim verði vísað úr keppni Bambi Thug, sem flytur lag Írlands í Evrópsku söngvakeppninni í kvöld, hefur lagt fram kvörtun til stjórnenda keppninnar. Hán vill að Ísraelum verði vísað úr keppninni vegna orðræðu um atriði háns í undankeppninni á þriðjudagskvöldið. Lífið 11.5.2024 14:29
Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Bandaríkjastjórn telur líklegt að ísraelsk stjórnvöld hafi brotið alþjóðleg mannúðarlög með notkun sinni á bandarískum vopnum í hernaði sínum á Gasa. Ekki hafi þó verið hægt að staðfesta það og hún trúi fullyrðingum Ísraela um að þeir fari að lögum. Erlent 10.5.2024 22:27
Spáir Ísrael sigri í Eurovision Eden Golan frá Ísrael er skyndilega talin næstlíklegust til að bera sigur úr býtum í Eurovision í ár með laginu Hurricane. Eurovision-aðdáandi segir þetta ekki koma á óvart og telur raunar að keppnin verði haldin í Tel Aviv að ári. Lífið 10.5.2024 21:01
Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns Bashar Murad sendir í dag frá sér smáskífuna, Stone, af væntanlegri plötu sem hann er að vinna með Einari Stef. Lagið er endurgerð af lagi sem hljómsveit föður hans gaf út. Lífið 10.5.2024 08:45
Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Hópurinn Háskólafólk fyrir Palestínu krefst þess að Háskóli Íslands beiti sér fyrir friði á Gasa og taki skýra afstöðu gegn þjóðarmorði og stríðsglæpum. Hópurinn vill að HÍ beiti sér með sama hætti og hann gerði þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Rektor segir árásirnar ekki sambærilegar. Innlent 10.5.2024 06:47
Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna „Ég ávarpa óvini Ísrael og einnig okkar bestu vini og segi; Ísraelsríki verður ekki haldið niðri,“ sagði Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, eftir að greint var frá því að Bandaríkjamenn hygðust láta af vopnasendingum til landsins. Erlent 10.5.2024 06:21
Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Hin tvítuga Eden Golan frá Ísrael er talin næstlíklegust til að standa uppi sem sigurvegari í Eurovision í ár með laginu Hurrycane. Ísrael rauk upp í veðbönkum í kvöld eftir að framlagið tryggði sér sæti á úrslitakvöldinu á laugardag. Lífið 10.5.2024 00:08
Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Hótanir hafa borist ísraelska Eurovision-teyminu og keppandinn hefur varla yfirgefið hótelherbergi sitt vegna þessa. Baulað var á hana á æfingu í gær en hún stígur á svið í Malmö í kvöld, á síðara undanúrslitakvöldi keppninnar. Lífið 9.5.2024 16:30
Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Reyk lagði yfir landamæraborgina Rafah á Gasaströndinni og sprengingar heyrðust í morgun eftir að Ísraelsher gerði árás á austurhluta borgarinnar. Heilbrigðisstarfsmenn í borginni segja þrjá hafa verið skotna til bana í skriðdrekaárás við mosku í morgun. Erlent 9.5.2024 13:37
Siðferðileg heilindi Háskóla Íslands á tímum þjóðarmorðs Alda stúdentamótmæla hefur brotist út um allan heim og hafa stúdentar slegið upp tjaldbúðum og skipulagt mótmæli til að vekja athygli á þjóðarmorði Ísraelsríkis á palestínsku þjóðinni. Kennarar og stúdentar hafa verið handteknir, m.a. við Colombia háskóla í New York og Science Po í París. Skoðun 9.5.2024 10:00
Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Forseti Bandaríkjanna lýsti því yfir í gær að hann muni stöðva vopnasendingar á sprengjum og skotvopum til Ísrael ef forsætisráðherra Ísrael Benjamin Netanyahu fyrirskipar árás inn á Rafah. Það sagði Biden í viðtali við CNN í gær. Hann sagði Bandaríkin enn munu styðja Ísrael með öðrum hætti. Erlent 9.5.2024 08:02
Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Joe Biden Bandaríkjaforseti stöðvaði vopnasendingu til Ísraelsmanna í síðustu viku til að koma í veg fyrir að innihaldið, um 3.500 sprengjur, yrðu notaðar á Rafah. Erlent 8.5.2024 06:30
Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Ísraelsher sendi eldsnemma í morgun skriðdreka inn í Rafah-borg og tugir létust í loftárásum þeirra. Alþjóðastjórnmálafræðingur er svartsýn á að vopnahlé sé í nánd þrátt fyrir yfirstandandi viðræður. Innlent 7.5.2024 19:49
Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir að gera þurfi þá kröfu á ráðamenn í Bandaríkjunum að þeir beiti ríkisstjórn Ísraels mun meiri þrýstingi um að leggja niður vopn. Það sé besta leiðin til að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Erlent 7.5.2024 16:28
Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Ekki tókst að selja í öll auglýsingaplássin sem í boði eru á RÚV á meðan fyrri undankeppni Eurovision fer fram í Malmö í kvöld. Færri auglýsingar hafa selst fyrir keppnina en búist var við. Lífið 7.5.2024 15:29
Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Ísraelsher stendur nú í aðgerðum í Rafah og hefur tekið yfir landamærastöðina í borginni, sem aðskilur Egyptaland og Gasa. Landamærin virðast vera lokuð eins og er. Erlent 7.5.2024 06:40
Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ísraelsher hóf loftárásir á Rafah-borg á Gasa stuttu eftir að í ljós kom að Ísraelar kæmu ekki til með að samþykkja þá vopnahléstillögu sem Hamas-samtökin samþykktu fyrr í dag. Erlent 6.5.2024 23:26
Hamas samþykkir vopnahléstillögu Leiðtogar Hamas-samtakanna hafa samþykkt vopnahléstillögu erindreka frá Egyptalandi og Katar. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að Ismail Haniyeh, leiðtogi Hamas, hafi hringt í forsætisráðherra Katar og upplýsingaráðherra Egyptlands í dag og tilkynnt þeim að tillagan hefði verið samþykkt. Erlent 6.5.2024 16:55
Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Ísraelsher segist þurfa að flytja 100.000 manns frá Rafah inn á nærliggjandi svæði, al Mawasi, sem Ísraelsmenn hafa skilgreint sem „mannúðarsvæði“. Þetta hefur Associated Press eftir talsmanni hersins. Erlent 6.5.2024 06:45
Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Hluti útsendingarbúnaðar katarska miðilsins Al Jazeera var gerður upptækur þegar lögregla réðst inn á hótelherbergi útsendara í Jerúsalem í dag. Miðlinum hefur verið bannað að starfa í landinu í að minnsta kosti 45 daga. Erlent 5.5.2024 19:50
Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að, þó Ísraelsmenn séu tilbúnir til þess að gera hlé á átökunum til að Hamasliðar afhendi þá gísla sem enn eru í þeirra haldi, komi það ekki til greina að binda endanlegri enda á átökin. Erlent 5.5.2024 13:17
Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Ríkisstjórn Ísraels ákvað í dag að reka katörsku sjónvarpsstöðina Al Jazeera úr landi. Forsætisráðherra Ísraels segir fréttamenn hennar stríðsæsingamenn. Erlent 5.5.2024 11:42
Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Öfgahópur innan Repúblikanaflokksins hefur mótmælt þverpólitísku frumvarpi sem var samþykkt í fulltrúadeildinni á miðvikudag og miðar að því að útrýma hatursáróðri gegn gyðingum. Erlent 3.5.2024 07:40
Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael Tyrkir hafa ákveðið að hætta öllum viðskiptum við Ísrael vegna innrásar þeirra á Gasa svæðið. Erlent 3.5.2024 07:14
Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Háttsettur embættismaður innan Hamas sagði í samtali við AFP í nótt að viðbrögð samtakanna við þeim vopnahléstillögum sem nú lægju fyrir væru „neikvæð“ en viðræður stæðu enn yfir. Erlent 2.5.2024 06:59
Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Hópur tónlistarmanna kemur fram á samstöðutónleikum með Gasa í Háskólabíó þann 7. maí klukkan 19.30. Á sama tíma keppir Ísland í fyrri undankeppni Eurovision í Malmö í Svíþjóð. Söngkonan Elísabet Eyþórsdóttir, Beta, er ein þeirra sem kemur að skipulagningu tónleikanna. Lífið 30.4.2024 11:08
Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Hamas það eina sem stendur á milli íbúa Gasa og vopnahlés. Hann hvetur samtökin til að ganga að „ótrúlega rausnarlegum“ tillögum Ísraelsmanna. Erlent 30.4.2024 06:58
Vopnahlé í sjónmáli? Háttsettur embættismaður innan Hamas hefur sagt við AFP að samtökin geri engar meiriháttar athugasemdir við nýjar tillögur Ísraelsmanna um vopnahlé á Gasa. Erlent 29.4.2024 06:54