Kjaramál

Hljóðfæraleikarar landa kjarasamningi við ríkið
Samningar hafa náðst í kjaradeilu hljóðfæraleikara Sinfoníuhljómsveitar Íslands við ríkið. Skrifað var undir samninga hjá ríkissáttasemjara á sjöunda tímanum í kvöld.

Það taki enga stund að hola menningarstofnanir að innan sem tók áratugi að byggja
Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, tekur upp hanskann fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands sem stendur í kjarabaráttu. Hann segir að það yrði hræðilegt ef hljómsveitin færi í verkfall sem nú stefnir í. Víkingur biðlar til stjórnvalda að meta hljóðfæraleikarana að verðleikum. Það taki áratugi að byggja upp menningarstofnanir en stuttan tíma að hola þær að innan.

Tekur landsstjórnin ekkert mark á lögum um almannatryggingar?
„Greiðslur almannatrygginga (…) skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.“

Framleiðni stendur í stað og það „mun hafa áhrif í komandi kjaraviðræður“
Hagfræðingar segja að það sé áhyggjuefni að framleiðni á mann hafi ekki vaxið undanfarin ár og benda á að sú fjölgun starfa á vinnumarkaði sem hafi orðið sé að stórum hluta lágframleiðnistörf. Þessi staða mun hafa áhrif í komandi kjaraviðræðum, að sögn aðalhagfræðings Samtaka iðnaðarins, sem varar við því að með sama framhaldi verði ekki innstæða fyrir auknum lífsgæðum.

„Þóttist oft vera veik til að sleppa við skólann“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar segir það undarlega lífsreynslu að vita af því að einhver vilji drepa hana. Sólveig, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar segir síðustu ár hafa tekið mikið á. Það hafi svo náð ákveðnu hámarki þegar upplýsingar láku um að ungir menn hefðu hug á að fremja hryðjuverk og lífláta Sólveigu Önnu.

Þurfa að greiða fyrir tímann sem starfsmaður varði í flugvél
Landsréttur hefur viðurkennt að starfsmaður hafi átt að fá greitt fyrir þann tíma sem hann varði í flugvélum í vinnuferð.

Fangar á Litla-Hrauni mættir til starfa á ný
Fangar á Litla hrauni mættu allir til vinnu í dag eftir að helmingur þeirra lagði niður störf í gær til að mótmæla bágum kjörum. Fangelsismálastjóri segir aðstæður sem sköpuðust hafa aukið álag á alla.

Óttast að allt logi í verkföllum eftir áramót
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, óttast að verkföll verði tíð á næsta ári og að stjórnvöld þurfi að koma að gerð kjarasamninga. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, segir að semja þurfi af skynsemi.

Munu ekkert gefa eftir í kjarasamningsviðræðum
Forseti ASÍ segir nýtt fjárlagafrumvarp ekki gefa mikið inn í kjarasamningsviðræður. ASÍ hefði viljað sjá meira gert fyrir heimilin í landinu. Hann segir mögulega hörku framundan í viðræðum.

Raungengi krónu miðað við laun hækkaði um tíu prósent á hálfu ári
Árstíðarleiðrétt er raungengi krónunnar á mælikvarða launakostnaðar um 30 prósent yfir langtímameðaltali. „Það segir okkur að í samhengi við verðmætasköpun og okkar viðskiptalönd séu laun 30 prósent hærri en sögulega séð,“ segir hagfræðingur hjá Arion banka.

Fjárlögin afhjúpa þau
Ríkisstjórnin hefur ítrekað lofað bót og betrun. Þannig hafa þau svarað gagnrýni Samfylkingarinnar á stjórn efnahags- og velferðarmála í landinu. En fjárlögin afhjúpa þau.

Barist um flugmenn á heimsvísu
Barist er um flugmenn á heimsvísu og dæmi eru um að flugfélög þurfi að draga saman flugáætlanir þar sem ekki tekst manna áhafnir. Fjórtán flugmenn Play sögðu upp í gær eftir að hafa fengið atvinnutilboð hjá Icelandair.

Viljaleysi eða verkleysi ríkisstjórnar Íslands?
Hér á landi ríkir algert ráðleysi og athafnaleysi gagnvart hópum sem standa höllum fæti i samfélaginu, ef ekkert verður gert munum við horfa upp á enn alvarlega stöðu í samfélaginu í byrjun næsta árs. Þegar horft er yfir sviðið þá sjáum við að algjört viljaleysi er að létta undir þeim sem verða mest fyrir barðinu vegna hækkunar vaxta á sama tíma er algjört viljaleysi að taka á fyrirtækjum sem nýta sér verðbólguna til að hækka álagningu og auka hagnað sinn.

Buðu flugmönnum miklar launahækkanir í gær
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, staðfestir að flugmönnum félagsins og flugstjórum hafi verið boðnar launahækkanir í gær. Samkvæmt Túrista.is eru hækkanirnar allt að 53 prósent.

Ekki ein uppsögn borist
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segir engan flugmann hafa sagt upp störfum nú fyrir mánaðamótin. Ef átján flugmenn myndu segja upp störfum á einu bretti yrði félagið að tilkynna það á markaði.

Kvöldfundur vegna atvinnutilboðs Icelandair til átján flugmanna Play
Átján flugmenn Play sem voru á biðlista eftir störfum hjá Icelandair fengu símtal í gær þar sem þeim var boðið að hefja störf hjá félaginu. Þeir sem hyggjast þiggja boðið verða að segja upp hjá Play í dag.

Vaxtahækkun fyrir fjármálaelitu
Með nýjustu vaxtahækkun svipti seðlabankinn endanlega af sér gærunni, bæði er það orðið algjörlega ljóst að seðlabankastjóri er strengjabrúða fjármagnseigenda og á fullu að reka alla inn í verðtryggð óhagstæð lán, lán sem stuðla að því að eigið fé launafólks hverfur í húsnæði á mjög stuttum tíma.

Fólk að bugast vegna aukinnar greiðslubyrði
Veruleg fjölgun hefur orðið á því að fólk leitar til Hagsmunasamtaka heimilanna vegna greiðsluerfiðleika og fer þeim enn fjölgandi. Útlit er fyrir að fólk gæti farið að missa heimili sín vegna aukinnar greiðslubyrði.

Skilur gagnrýnina en Seðlabankinn þurfi að ná niður háum verðbólguvæntingum
„Við erum að beita peningastefnunni svona harkalega af því að við erum ekki að fá mikla aðstoð frá öðrum,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, en viðurkennir um leið að þegar vextirnir eru hækkaðir svona skarpt þá sé hætta á að það valdi harðri lendingu í efnahagslífinu. Fjórtánda vaxtahækkun peningastefnunefndar Seðlabankans í röð á rétt rúmlega tveimur árum, nú síðast í morgun um 50 punkta, var nánast alfarið réttlætt með vísun til hárra verðbólguvæntinga til lengri tíma á meðan flestir hagvísar sýna að farið er að hægja hraðar á umsvifum í hagkerfinu en áður var spáð.

Dekur við bankana og atlaga að íslenskum heimilum
Ýmis samtök og verkalýðsforingjar lýsa þungum áhyggjum vegna stýrivaxtahækkunar Seðlabankans í morgun. Hækkunin er sögð atlaga að íslenskum heimilum.

„Það er ekkert nýtt í þessu“
„Það er ekkert nýtt í þessu,“ segir Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf. um nýja skýrslu ráðgjafafyrirtækisins Intellecon um efnahagsleg áhrif hvalveiða, sem unnin var að ósk matvælaráðherra.

Markaðurinn klofinn hversu langt verður gengið við næstu vaxtahækkun
Skiptar skoðanir eru á því hvort lækkandi verðbólga og kólnun á húsnæðismarkaði, ásamt vísbendingum um minnkandi einkaneyslu, séu nægjanlegt tilefni fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans til að fara í minnstu mögulegu vaxtahækkun eftir þann harða tón sem hún sendi frá sér í lok maí. Naumur meirihluti markaðsaðila væntir þess, samkvæmt könnun Innherja, að vextir bankans verði hækkaðir um 25 punkta á miðvikudaginn á meðan aðrir telja að hann eigi engra annarra kosta völ en að ráðast í 50 punkta hækkun með hliðsjón af óbreyttu verðbólguálagi og mikilvægi þess að ná upp raunstýrivöxtum.

Háar verðbólguvæntingar knýja herskáan Seðlabanka í 50 punkta vaxtahækkun
Fyrri yfirlýsingar peningastefnunefndar gefa skýrt til kynna að nefndin sé í „kapphlaupi við tímann“ um að ná niður verðbólgu og verðbólguvæntingum, sem hafa lítið breyst frá síðustu vaxtahækkun, áður en kjaraviðræður hefjast og því er útlit fyrir að vextir Seðlabankans hækki um 0,5 prósentur í næstu viku, að mati greiningar Arion banka. Misvísandi merki eru um að farið sé að hægja á innlendri eftirspurn en hagfræðingar Arion vara við því að hætta sé á að vaxtahækkanir „gangi of langt“ og nefndin vanmeti mögulega skaðlegu áhrifin af þeim á hagkerfið.

Launamunur kynjanna á fjármálamarkaði 26 prósent
Óleiðréttur launamunur karla og kvenna var 9,1 prósent árið 2022 og dróst saman frá fyrra ári úr 10,2 prósent. Munurinn er mestur í fjármála- og vátryggingastarfsemi, 26,2 prósent, en minnstur í rafmagns- gas og hitaveitum eða 4,1 prósent.

Vísitala íbúðaverðs lækkar áfram og kaupsamningum fækkar
Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,8 prósent milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölu hefur ekki mælst jafn lítil síðan 2011. Undirritaðir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu í júní voru sautján prósentum færri en í sama mánuði í fyrra.

Kynbundinn launamunur kom framkvæmdastjóranum á óvart
Kærunefnd jafnréttismála komst nýverið að þeirri niðurstöðu að Rauði krossinn hefði gerst sekur um kynbundinn launamun gagnvart konu sem starfaði sem talsmaður hælisleitenda. Heimildir herma að það hafi gerst í fleiri tilvikum.

Tvær konur til viðbótar upplifðu kynbundinn launamun en fengu ekki leiðréttingu
Tvær konur sem störfuðu sem lögfræðingar hjá Rauða krossinum þegar karlkyns samstarfsmaður þeirra sem sinnti sambærilegum stöfum og þær var hækkaður í launum umfram þær hafa ekki fengið leiðréttingu líkt og þriðja konan sem kærði málið til kærunefndar jafnréttismála.

Eðlilegt að skoða hvalrekaskatt til að koma til móts við heimilin í landinu
Starfandi formaður efnahags- og viðskiptanefndar tekur undir með viðskiptaráðherra og segir eðlilegt að skoða að setja svokallaðan hvalrekaskatt á bankana til að bregðast við stöðu heimilanna í landinu. Bankarnir séu að hagnast gríðarlega vegna vaxtahækkana.

Rauði krossinn sekur um kynbundna mismunun
Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að Rauði kross Íslands hafi brotið gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna þegar laun karls sem starfaði hjá samtökunum hækkuðu umfram laun konu sem sinnti áþekkum störfum.

Hvalrekaskattur á bankana kemur til greina
Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra segir koma til greina að leggja svokallaðan hvalrekaskatt á bankana vegna ofurhagnaðar sem má rekja til hærri vaxta. Það liggi þó ekkert fyrir um það innan ríkisstjórnar.