

Meta, móðurfélag Facebook, ákvað að hafna áliti eigin ráðgjafanefndar um að banna fyrrverandi forsætisráðherra Kambódíu sem notaði miðillinn til þess að hóta andstæðingum sínum ofbeldi. Ráðherrann hótaði að banna Facebook í landinu ef hann yrði sjálfur settur í straff.
Sjálfstæð eftirlitsnefnd Meta leggur til að Facebook-aðgangi forsætisráðherra Kambódíu verði lokað í sex mánuði vegna myndbands sem hann birti þar sem hann hótaði pólitískum andstæðingum ofbeldi. Innan við mánuður er til kosninga í Kambódíu.
Að minnsta kosti tíu eru látnir og tugir hafa særst í eldsvoða sem braust út í spilavíti í Poipet í Kambódíu seint í gærkvöldi. Hundruð björgunarmanna börðust við að hemja eldinn.
Þorpsbúar í kambódísku þorpi við Mekong-ána veiddu í síðustu viku það sem talið er vera stærsta ferskvatnsfisk sögunnar. Um er að ræða þrjú hundruð kílóa stingskötu sem hefur verið nefnd „Boramy“, eða „fullt tungl“.
Kínverjinn Qi Xiao hefur endurheimt ljónið sitt eftir að forsætisráðherra Kambódíu fyrirskipaði yfirvöldum að skila honum gæludýrinu og endurgreiða honum hverja þá sekt sem hann kynni að hafa greitt.
Rottan Magawa, sem hlotið hefur gullna medalíu fyrir hetjudáðir sínar, hefur sest í helgan stein og lætur af störfum sem sprengjuleitarrotta.
Söngkonan Cher er nú stödd í Pakistan þar sem hún tekur þátt í björgun fílsins Kaavan, sem hefur verið kallaður sá fíll heimsins sem er mest einmana. Kaavan hefur varið 35 árum í dýragarði í Pakistan en maki hans dó árið 2012 og síðan þá hefur hann verið einn.
Næstum fjörutíu hafa látið lífið í Víetnam og í Kambódíu og fjölda er saknað eftir miklar rigningar og skyndiflóð í löndunum.
„Félagi Duch“, einn af æðstu yfirmönnum rauðu Kmeranna sem héldu Kambódíu í heljargreipum um árabil á áttunda áratug síðustu aldar, er látinn. Hann varð 77 ára.
Bakarí í eigu Kristínar Báru Haraldsdóttur og Adrian Cowen í Kambódíu brann til kaldra kola þann 11. júní síðastliðinn.
Björgunaraðgerðum hefur verið hætt við rústir sjö hæða gistiheimilis sem var í byggingu í kambódíska strandbænum Kep en húsið hrundi á föstudag á meðan að iðnaðarmenn voru að störfum.
Sjö hæða bygging í Kambódíska strandbænum Kep hrundi í dag með þeim afleiðingum að hið minnsta tíu eru látnir og 23 slösuðust.
Lík breskrar konu, sem hvarf á bakpokaferðalagi um Kambódíu, fannst í sjó úti fyrir ströndum eyjunnar Koh Rong. Lögregla greindi frá þessu í dag.
Um er að ræða eitt versta byggingaslys sem átt hefur sér stað þar í landi í fleiri ár.
Leit stendur enn yfir.
Tveir af leiðtogum Rauðu Kmerana, sem stjórnuðu Kambódíu af skelfilegri hörku á áttunda áratugi síðustu aldar, hafa verið fundnir sekir um þjóðarmorð.
Afgerandi kosningasigur Kambódíska þjóðarflokksins tryggir honum öll 125 þingsætin á kambódíska þinginu að sögn talsmanns flokksins og verður Kambódía þannig eins flokks ríki.
Kambódískur prins slasaðist og eiginkona hans lést þegar leigubíll ók í veg fyrir bifreið þeirra hjóna.
Tíu ferðamenn dúsa nú í fangelsi í Kambódíu og gætu átt árs refsingu yfir höfði sér, en fólkið er sagt hafa verið að dansa á klámfenginn hátt í veislu.
Forseti hæstaréttar er einnig háttsettur í stjórnarflokki Hun Sen forsætisráðherra sem hefur ráðið ríkjum í Kambódíu í 32 ár.
Fornleifafræðingar komu auga á styttuna á laugardaginn er þeir voru við rannsóknir á Angkor-svæðinu.