Samfylkingin
44 45 46 47 48 49 50 51 … 51 ›
Nýr bæjarstjóri á Hornafirði Hjalti Þór Vignisson hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra í sveitafélaginu Hornafirði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að það hafi verið samdóma álit nýs meirihluta framsóknarmanna og Samfylkingar að ráða Hjalta í starfið. Innlent 31.5.2006 16:11
Sjálfstæðismenn og frjálslyndir mynda meirihluta á Akranesi Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir mynduðu meirihluta í bæjarstjórn á fundi í gærkvöldi. Fréttavefurinn Skessuhorn punktur is greinir frá því að samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá verði Gísli S. Einarsson fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar næsti bæjarstjóri. Innlent 30.5.2006 08:24
Meirihlutaviðræður halda áfram í dag Fulltrúar Fjarðarlistans og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram, en nú stækkar sveitarfélagið um Austurbyggð, Mjóafjarðarhrepp og Fáskrúðsfjörð. Innlent 30.5.2006 06:53
Sjálftæðismenn og Frjálslyndir funda á Akranesi í dag Sjálfstæðisflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn funda í dag um myndun nýs meirihluta á Akranesi. Á Akranesi féll meirihluti Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra menn í kosningunum. Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri-grænir einn hver og Samfylkingin tvo menn. Innlent 29.5.2006 10:26
Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn áfram í meirihluta í Kópavogi Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn í Kópavogi náðu undir miðnætti samkomulegi um að halda meirihluta samstarfi sínu áfram í bæjarstjórn. Innlent 29.5.2006 07:01
Segir slit R-listans hafa verið mistök Vel kemur til greina að endurvekja Reykjavíkurlistann fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 2010, að mati Katrínar Jakobsdóttur, varaformanns Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs. Þetta kom fram í umræðum forystumanna stjórnmálaflokkanna á NFS og Stöð 2 í gærkvöldi. Innlent 29.5.2006 06:42
Meirihlutinn hélt óvænt velli Meirihlutinn hélt á Ísafirði, þvert á það sem skoðanakannanir höfðu gefið ástæðu til að ætla. Bæjarstjórinn og oddviti Sjálfstæðismanna vill halda áfram samstarfinu við Framsóknarflokkinn undir sinni forystu. Innlent 28.5.2006 08:44
Straumurinn lá til vinstri Straumur kjósenda lá til vinstri í nótt í stærstu sveitarfélögum landsins þar sem Vinstri-grænir og Samfylkingin bættu við sig fjölda sveitarstjórnarmanna. Sjálfstæðismenn bættu lítillega við sig en Framsóknarmenn töpuðu miklu. Innlent 28.5.2006 08:30
Óánægja milli sjálfstæðismanna og minnihluta í Mosfellsbæ Óánægja er komin upp milli sjálfstæðismanna og minnihlutans í Mosfellsbæ. Ekki náðist samkomulag um tilhögun sameiginlegs framboðsfundar sem vera átti í gær og því varð ekkert úr fundinum. Innlent 25.5.2006 18:48
Atvinnumál og velferðarmál í öndvegi Samfylkingin býður fram í fyrsta sinn á Hornafirði í komandi sveitastjórnakosningnum. Bæði Framóknarmenn og Sjálfstæðismenn spá því að Samfylkingin muni ná tveimur mönnum inn í sveitastjórn. Innlent 24.5.2006 20:15
Sjálfstæðismenn til valda í Kópavogi Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS. Sjálfstæðismenn fengju 46,8 prósent atkvæða og það dygði þeim til að fá sex bæjarfulltrúa af ellefu í Kópavogi. Innlent 23.5.2006 19:25
Deila um styrkveitingu til Fram Samstaða Sjálfstæðismanna og Alfreðs Þorsteinssonar um styrkveitingu til Fram sýnir að fyrirgreiðslupólitíkin ræður völdum í Reykjavík ef Sjálfstæðismenn komast til valda segir borgarfulltrúi Samfylkingar. Ómerkilegur málflutningur segja hvort tveggja oddviti Sjálfstæðisflokks og formaður Fram. Innlent 19.5.2006 17:03
D-listi með meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn fengi annað hvert atkvæði í kosningum til borgarstjórnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Frjálslyndi flokkurinn mælist í fyrsta sinn í sögu flokksins með nógu mikið fylgi í skoðanakönnun til að ná manni inn í borgarstjórn. Innlent 19.5.2006 11:58
Elsti frambjóðandinn 92 ára Elsti frambjóðandinn í sveitarstjórnarkosningunum í vor er 92 ára. Sá er Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi menntamálaráðherra frá Brekku í Mjóafirði. Hann er í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í Fjarðabyggð. Innlent 19.5.2006 08:33
Vinstri grænir tvöfalda fylgi sitt Fylgi hrynur af Framsóknarflokknum á Akureyri en Vinstri grænir nánast tvöfalda fylgi sitt frá síðustu kosningum, samkvæmt þeim, sem tóku afstöðu í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Sjáflstæðisflokkurinn héldi sínum fjórum bæjarfulltrúum. Innlent 15.5.2006 08:51
Brosi allan hringinn "Ég brosi auðvitað allan hringinn," sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, þegar kynntar voru niðurstöður könnunar fyrir NFS um fylgi flokkanna sem eru þar í framboði. Tveir af hverjum þremur kjósendum í Reykjanesbæ myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú. Innlent 9.5.2006 21:14
Ekkert athugavert við endurgreiðsluna Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ segir ekki hægt að bera ákvörðun um endurgreiðslu á hluta fasteignagjalda skömmu fyrir kosningar saman við það að borgarstjórinn í Reykjavík auglýsi viðtalsfundi fáeinum vikum fyrir kosningar. Lækkunin er kosningadúsa upp í kjósendur segir oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ. Erlent 8.5.2006 22:08
Hálfur annar milljarður í nefndir Nefndir ráðuneytanna kostuðu ríkissjóð nær einn og hálfan milljarð króna á síðasta ári. Rúmlega helmingur þeirrar upphæðar er vegna starfa einkavæðingarnefndar. Innlent 5.5.2006 11:56
Sakar stjórnarandstöðu um verðbólguna Stjórnarandstæðingar sökuðu stjórnarliða um að flýja af hólmi fyrir sveitarstjórnarkosningar og forðast að ræða efnahagsmál. Þingmaður Framsóknarflokksins svaraði með því að segja að stjórnarandstaðan hefði talað upp verðbólguna. Innlent 4.5.2006 15:06
Litlu flokkarnir sækja í sig veðrið Sjálfstæðisflokkur tapar töluverðu fylgi og litlu flokkarnir sækja á í Reykjavík samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem birtist í dag. Innlent 23.4.2006 10:02
Gísli biðst lausnar sem varaþingmaður Gísli S. Einarsson hefur ákveðið að biðjast lausnar undan skyldum sínum sem varaþingmaður Samfylkingarinnar. Gísli þáði á dögunum boð Sjálfstæðismanna á Akranesi um að verða bæjarstjóraefni þeirra í sveitarstjórnarkosningunum í næsta mánuði. Innlent 21.4.2006 15:58
Stefna á meirihluta í bæjarstjórn Sjálfstæðismenn á Akranesi vonast til að ná meirihluta í bæjarstjórn í fyrsta skipti í meira en 60 ár. Til að auka möguleika sína á því hafa þeir fengið Gísla S. Einarsson, fyrrum þingmann Samfylkingarinnar, til að vera bæjarstjóraefni sitt. Innlent 19.4.2006 18:07
Gísli verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokks Gísli S. Einarsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, í bæjarstjórnarkosningum á Akranesi í vor. Innlent 19.4.2006 10:43
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn tapa fylgi á Akureyri Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi, mælast með 36,5% fylgi, en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu. Innlent 19.4.2006 06:50
Vilja sleppa skatti af sjúkrastyrkjum Fjórir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram lagafrumvarp um að styrkir úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga verði ekki lengur skattskyldir. Fram hefur komið að nær ellefu þúsund einstaklingar greiddu rúmar 260 milljónir króna í skatta af sjúkrastyrkjum árið 2004. Innlent 11.4.2006 21:30
Sjálfstæðisflokkurinn í stórsókn Sjálfstæðisflokkurinn tvöfaldar fylgi sitt í Árborg og nær hreinum meirihluta samkvæmt nýrri skoðanakönnun NFS. Þrjátíu prósent kjósenda í Árborg hafa snúið baki við Samfylkingunni og Framsóknarflokknum samkvæmt könnuninni. Innlent 11.4.2006 20:20
Óttast ekki andstöðu við frumvarpið Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar verði að lögum núna í vor. Þetta segir hún þrátt fyrir að allir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í iðnaðarnefnd Alþingis geri athugasemdir við frumvarpið. Innlent 3.4.2006 16:58
Bjartsýn á að frumvarpið verði að lögum Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um Nýsköpunarmiðstöð verði að lögum í vor. Þetta sagði hún í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Valgerður svaraði þá fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingar, sem taldi að hún hefði stefnt í voða samkomulagi sem hafi verið að myndast um byggðastefnu. Innlent 3.4.2006 15:54
Sjálstæðismenn með vísan meirihluta Sjálfstæðismenn ættu næstan vísan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðaðið birtir í dag. Samfylkingin fengi fimm borgarfulltrúa og Vinstri grænir einn. Framsóknarflokkurinn mælist minnstur flokka í Reykjavík, og nær ekki inn manni frekar en Frjálslyndir, sem þó bæta við sig fylgi. Innlent 26.3.2006 11:46
Varamaður fyrir varamann Jón Kr. Óskarsson tók sæti á Alþingi sem varamaður við upphaf þingfundar í dag. Það væri ef til vill ekki í frásögur færandi nema fyrir það að hann tekur sæti á þingi í stað varaþingmannsins Söndru Franks, sem hafði áður verið kölluð inn á þing sem varamaður Rannveigar Guðmundsdóttur. Innlent 2.3.2006 10:33