Samfylkingin
Úrslit í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði Innlent 5.11.2005 23:38 Lúðvík heldur 1. sætinu Innlent 5.11.2005 20:36 Prófkjör Samfylkingar í Hafnarfirði Næstkomandi laugardag fer fram lokað prófkjör hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði. Nú þegar eru tvö þúsund manns á kjörskrá og leyfilegt er að skrá sig í flokkinn fram að kjörfundi. Kjörfundur hefst klukkan tíu og stendur til sex og kjörgengir eru þeir sem orðnir eru sextán ára á kjördag. Innlent 3.11.2005 16:42 « ‹ 45 46 47 48 49 50 51 … 51 ›
Tólf vilja sæti á Í-lista Tólf eru í framboði í prófkjöri Í-listans, sameiginlegs framboðs Frjálslynda flokksins, Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Ísafirði sem fram fer í dag. Innlent 25.2.2006 09:59
Mikil endurnýjun í borgarstjórn Útlit er fyrir mikla endurnýjun í borgarstjórn eftir kosningarnar í vor. Miðað við uppröðun á lista og niðurstöður skoðanakannana að undanförnu má búast við að átta af fimmtán borgarfulltrúum komi nýir inn. Innlent 13.2.2006 11:57
Dagur fékk 47 prósent atkvæða Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi vann öruggan sigur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík og fékk 47 prósent atkvæða í fyrsta sæti. Í næstu sætum eru Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og borgarfulltrúarnir Stefán Jón Hafstein og Björk Vilhelmsdóttir. Innlent 13.2.2006 09:03
Á áttunda hundrað hafa kosið Um 740 manns höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar atkvæðagreiðslu utan kjörfundar lauk klukkan átta. Þar af hafði um helmingur greitt atkvæði í dag. Innlent 10.2.2006 20:49
Löngu tímabær yfirlýsing Það var tími til kominn segir formaður Samfylkingar um yfirlýsingu forsætisráðherra um að Ísland verði komið í Evrópusambandið árið 2015. Utanríkisráðherra vill ekkert tjá sig um yfirlýsingu forsætisráðherra. Innlent 8.2.2006 16:58
Vilja lækka skatta á eftirlaun Sex þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að skattar á eftirlaun og ellilífeyri verði lækkaðir. Í rökstuðningi við tillöguna segir að eftirlaun og ellilífeyrir séu tvö- og jafnvel þrísköttuð og því sé réttast að lækka skatta á þeim. Innlent 3.2.2006 07:00
Sjálfstæðisflokkurinn með mesta fylgið Tæp 44% Reykvíkinga segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn yrði boðað til Alþingiskosninga núna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, en kjörfylgi flokksins í Reykjavík var 37% í síðustu kosningum. Innlent 26.1.2006 07:30
Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa af fimmtán í Reykjavík ef gengið væri til kosninga nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hvorki Framsóknarflokkurinn né Frjálslyndi flokkurinn næði inn borgarfulltrúa. Innlent 22.1.2006 12:03
Sautján vilja á lista Samfylkingar Sautján gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar í vor, tíu karlmenn og sjö konur. Innlent 21.1.2006 17:29
Ráða ráðum sínum gegn Norðlingaölduveitu Stjórnarandstæðingar komu saman til fundar á tólfta tímanum til að ræða sameiginlegan málflutning gegn því að ráðist yrði í framkvæmdir við Norðlingaölduveitu. Innlent 16.1.2006 12:06
Stefán Jón og Dagur vinsælastir Stefán Jón Hafstein og Dagur B. Eggertsson njóta mest trausts af þeim sem hafa gefið kost á sér í 1. sæti á lista Samfylkingar fyrir borgarstjórnarkosningar samkvæmt nýrri könnun Frjálsrar verslunar fyrir vefsvæðið heimur.is. Hvor um sig nýtur stuðnings um 40 prósenta aðspurðra en Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri nýtur stuðnings fjórðungs aðspurðra. Innlent 12.1.2006 15:36
Of lágt boðið í hlut borgarinnar. Borgarfulltrúar allra flokka í borgarstjórn Reykjavíkur eru ósáttir við það verð sem ríkisvaldið er reiðubúið að greiða fyrir hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Stjórnvöld eru reiðubúin að greiða 56 milljarða króna en það eru fulltrúar R-lista, Sjálfstæðisflokks og Frjálslynda flokksins sammála um að sé of lágt. Innlent 12.1.2006 14:45
Vilja leggja Kjaradóm niður Ungir jafnaðarmenn vilja að Kjaradómur verði lagður niður og að laun stjórnmálamanna og annarra þeirra sem Kjaradómur hefur ákveðið breytist hér eftir í takt við almenna launavísitölu. Innlent 9.1.2006 18:17
Vill hætta við framkvæmdur við Þjórsárver Samfylkingin vill að hætt verði við öll áform um orkuframkvæmdir á Þjórsárverasvæðinu og vill að friðland Þjórsárvera verði stækkað verulega. Þetta kemur fram í yfirlýsingu þingflokks Samfylkingar sem telur áætlanir um framkvæmdir við Norðlingaöldu og víðar í nágrenni Þjórsárvera komnar í öngstræti. Innlent 9.1.2006 14:56
Flumbrugangur Geirs vítaverður Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra verður að ganga fram og biðjast afsökunar á flumbrugangi Geirs H. Haardes utanríkisráðherra segir Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Innlent 3.1.2006 12:00
Ættu að reka stjórnarformanninn Hluthafar í FL Group ættu að reka stjórnarformann fyrirtækisins fyrir að gera nærri 300 milljóna króna starfslokasamninga við tvo fyrrum forstjóra fyrirtækisins, þau Ragnhildi Geirsdóttur og Sigurð Helgason, segir Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Innlent 3.1.2006 06:41
Ríkisstjórnin klúðraði málinu Klúður er orðið sem stjórnarandstæðingar nota yfir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við úrskurði kjaradóms. Þeir eru afar ósáttir við að forystumenn ríkisstjórnarinnar vildu ekki kalla þing saman til að fresta gildistöku launahækkunar þingmanna og ráðherra. Innlent 30.12.2005 16:32
Vill þingfund fyrir áramót Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir flokkinn tilbúinn til að tilnefna fulltrúa í nefnd forsætisráðherra vegna niðurstöðu Kjaradóms, að því gefnu að þing verði kallað saman á morgun eða á gamlársdag, til að setja lög sem fresta gildistöku launahækkana æðstu embættismanna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, telur enn hægt að kalla þing saman fyrir áramót. Innlent 29.12.2005 13:21
Skattbyrði lækkar aðeins hjá þeim tekjuhæstu Skattbyrði hefur aukist hjá öllum síðustu tvö árin, nema þeim tekjuhæstu. Hjá þeim hefur skattbyrðin lækkað. Skattbyrði þeirra sem hafa hæstar tekjur hefur lækkað um 1,7 prósentustig en skattbyrði þeirra tekjulægstu hækkað um tæp þrjú prósent. Innlent 17.12.2005 12:28
Skattbyrði allra nema þeirra tekjuhæstu eykst Skattbyrði hefur aukist hjá öllum síðustu tvö árin, nema þeim tekjuhæstu. Hjá þeim hefur skattbyrðin lækkað. Skattbyrði þeirra sem hafa hæstar tekjur hefur lækkað um 1,7 prósentustig en skattbyrði þeirra tekjulægstu hækkað um tæp þrjú prósent. Innlent 16.12.2005 19:44
Jónarnir báðir álitleg ráðherraefni Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Sigurðsson koma sterklega til álita sem ráðherraefni Samfylkingarinnar, ef sú staða kemur upp að leita þurfi út fyrir þingflokkinn. Þetta segir formaður flokksins, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Hún telur að stór hópur framsóknarmanna eigi samleið með Samfylkingunni en telur umræðu um sameiningu flokka ekki tímabæra. Innlent 12.12.2005 19:01
Dagur genginn í Samfylkinguna Dagur B. Eggertsson, hefur skráð sig í Samfylkinguna samkvæmt heimildum fréttastofu. Í samtali við fréttastofuna rétt í þessu vildi Dagur sjálfur þó ekki staðfesta þetta, en neitaði því ekki heldur. Innlent 9.12.2005 15:29
Trúnaðarbrestur milli stjórnvalda og bótaþega Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir að trúnaðarbrestur hafi orðið milli stjórnvalda, aldraðra og öryrkja. Umræður um öryrkjaskýrslu Stefáns Ólafssonar endurspeglaði það. Hún vildi vita á Alþingi í dag hvort forsætisráðherra vildi beita sér fyrir fimm ára áætlun í samvinnu við fulltrúa lífeyrisþega í málefnum þessara hópa. Innlent 9.12.2005 12:48
Yfir 400 í mjög brýnni þörf 402 eldri borgarar eru í mjög brýnni þörf eftir dvöl á hjúkrunarheimili og 53 í brýnni þörf. Þetta kemur fram í svari Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingar. Innlent 8.12.2005 07:13
Mótsagnakenndar klisjur Yfirlýsingar formanns Samfylkingar um að íhaldsmenn og frjálshyggjumenn reyni að skreyta sig fjöðrum jafnaðarmennsku eru mótsagnakenndar og klisjukenndar segir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Innlent 13.11.2005 13:37
Frjálshyggjan á hröðu undanhaldi Frjálshyggjan er á hröðu undanhaldi um allan heim, líka á Íslandi, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar á flokksstjórnarfundi í morgun. Hún sagði stjórnmálabaráttuna á Íslandi standa milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Innlent 12.11.2005 12:10
Byrjaður að auglýsa Prófkjörsbaráttan er hafin hjá Samfylkingunni í Reykjavík þrátt fyrir að prófkjörið sjálft fari ekki fram fyrr en í febrúar á næsta ári. Stefán Jón Hafstein er með heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu í dag þar sem birtast myndir af 46 einstaklingum sem segjast vilja fá Stefán Jón sem næsta borgarstjóra. Innlent 7.11.2005 08:49
Prófkjör Samfylkingar í Hafnarfirði Næstkomandi laugardag fer fram lokað prófkjör hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði. Nú þegar eru tvö þúsund manns á kjörskrá og leyfilegt er að skrá sig í flokkinn fram að kjörfundi. Kjörfundur hefst klukkan tíu og stendur til sex og kjörgengir eru þeir sem orðnir eru sextán ára á kjördag. Innlent 3.11.2005 16:42