Reykjavík

Er ég upp á punt?
Ímyndum okkur hvernig okkur myndi líða ef við ættum að mæta fimm daga í viku í aðstæður þar sem við værum í sífelldri baráttu við að fylgja eftir fyrirmælum. Er einhver möguleiki á að þróa með sér gott sjálfstraust, lífshamingju og gleði við þessar aðstæður? Svarið er „nei“.

Verslunarmannahelgin 2023: Hvað er í boði?
Verslunarmannahelgin, stærsta ferðahelgi ársins, nálgast nú óðfluga. Hjá mörgum er það fastur liður að skella sér á útihátíð og það er svo sannarlegu úr ýmsu að velja.

Brýnt að finna þyrluflugi í Reykjavík nýjan stað
Borgarstjóri segir brýnt að finna útsýnisflugi þyrlna nýjan stað og tryggja að flugleiðir í lágflugi séu almennt ekki yfir íbúabyggð. Borgaryfirvöld skoði nú Hólmsheiði sem mögulegan kost sem nýst gæti til útsýnisflugs, bæði tímabundið og til frambúðar. Stjórnir sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki rætt málið á sínum vettvangi.

Náði að koma sér út á svalir þegar eldur kviknaði út frá rafhlaupahjóli
Eldur kviknaði í íbúð á 3. hæð við Hringbraut í Reykjavík í nótt og er talið að hann hafi kviknað út frá rafhlaupahjóli sem var í hleðslu innandyra. Íbúi komst út á svalir en nágranni sem kom til aðstoðar var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og skoðunar.

„Ef það eru ekki mávar þá er það seðlabankastjóri“
Fuglafræðingur segir aukinn ágang máva á höfuðborgarsvæðinu og kvartanir vegna þeirra vera árlegan viðburð. Ungar séu að komast á legg og þeir stundi gjarnan áhættusamari hegðun en eldri mávar. Hann segir máva eiga erfitt uppdráttar, líkt og aðra sjófugla, þeir þurfi á sínu plássi og gjarnan verða fyrir barðinu á því sem hann kallar tegundarasisma.

Tóku málin í eigin hendur og hreinsuðu sóðalega grenndarstöð
Íbúar Vesturbæjar hafa síðustu daga farið með ógrynni af sorpi, sem safnast hefur upp við grenndargámana, í Sorpu, í von um að borgaryfirvöld bregðist við. Þeir segja að enginn hvati sé til þess að setja pappa í pappagám þegar ruslið flæði um allt.

Sinubruni við Móskarðshnjúka
Eldur kviknaði í sinu við rætur Móskarðshnjúka á fjórða tímanum í dag. Slökkvilið er á svæðinu og segir varðstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu að um mjög rólegan bruna sé að ræða.

Starfsfólk í áfalli eftir furðulegt rán í Húsasmiðjunni
Uppi varð fótur og fit í verslun Húsasmiðjunnar í Skútuvogi á mánudag þegar maður gekk inn með lambhúshettu og tók upp öxi sem var þar til sölu. Að sögn starfsfólks ógnaði hann því á leið út og hafa tveir þurft á áfallahjálp að halda. Lögregla náði manninum, sem segir verknaðinn hafa átt að vera hluta af Tik-Tok myndbandi. Hann hafi ekki ætlað að vera ógnandi. Rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Skútuvogi segir skipulagðan þjófnað hafa færst í aukana og öryggisráðstafanir hertar.

Reykjavíkurborg biðst velvirðingar á töfum á sorphirðu
Reykjavíkurborg hefur beðist velvirðingar á töfum á sorphirðu sem áttu sér stað fyrr í mánuðinum. Vegna viðgerða á sorphirðubílum Terra seinkaði sorphirðu grenndargáma um sex til sjö daga.

Börn úr öðrum leikskólum fá að vera með
Öllum börnum sem hefja nám í þremur grunnskólum í Reykjavík í ágúst gefst kostur á að taka þátt í tilraunaverkefni borgarinnar. Ekki aðeins þeim sem eru að ljúka leikskóla í viðkomandi hverfum grunnskólanna sex.

Gekk um staðinn eins og hann væri heima hjá sér
Sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsay var óvæntur gestur á veitingastaðnum OTO á Hverfisgötu í gærkvöldi. Eigandinn vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann sá nafn kokksins á lista yfir bókanir.

Innbrotahrina á öllu höfuðborgarsvæðinu
Þessa dagana stendur yfir innbrotahrina á öllu höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Skar eins og hálfs metra gat á ærslabelg
Skemmdarverk voru unnin á ærslabelg í frístundagarðinum við Gufunesbæ fyrr í þessum mánuði. Eins og hálfs metra gat var skorið á belginn með dúkahníf. Verkefnastjóri segist vonast til þess að ærslabelgurinn fái að vera í friði í framtíðinni. Þetta sé ekki fyrsta tilfellið þar sem skemmdarverk séu unnin á svæðinu. Þau séu gjarnan árstíðabundin.

Vill að borgin sekti eða rifti samningi við Terra
Íbúi í Vesturbæ segir það hafa verið vandamál svo árum skipti að grenndargámar fyllist á augabragði og rusl safnast við þá í marga daga. Hann hvetur borgina til að segja upp samningi við Terra um tæmingu gámanna og beita dagsektum þegar sorp safnast við þá.

Fálkaorðuhafi setur sjarmerandi íbúð á sölu
Tónlistarkennararnir Kristinn Örn Kristinsson og Lilja Hjaltadóttir hafa sett afar sjarmerandi hæð sína í Norðurmýrinni í Reykjavík til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 102,9 milljónir.

Reyndi að stela tveimur farsímum og réðist svo á starfsmann
Það var nokkuð rólegt miðað við oft áður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ef marka má dagbók hennar. Þó bárust henni þrjár tilkynningar vegna líkamsárása.

Segir þyrlur nánast ofan í kaffibollum íbúa
Íbúi í Skerjafirði segir að gríðarleg umferð þyrlna, sem nýttar eru til að flytja ferðamenn að eldgosinu við Litla-Hrút, sé hreinlega skerðing á lífsgæðum.

Vill stíg nefndan eftir sér en ekki dauðum karli: „Þetta ætti að vera stelpuhverfi“
Rithöfundurinn Elísabet Jökulsdóttir berst núna fyrir því að nýr stígur í Vesturbænum verði nefndur eftir henni í stað Péturs Hoffmanns. Við Elísabetarstíg yrði minnisvarði um allar gömlu sjómannskonurnar í hverfinu.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið flytur í Norðurhús
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið flytur í haust í framtíðarhúsnæði ráðuneytisins í Norðurhúsi við Austurbakka. Ráðuneytið mun þar deila húsnæðinu með utanríkisráðuneytinu og Landsbankanum.

„Ég leigi íbúð, borga skatta og geri allt sem venjulegur maður gerir“
Ganverskur maður sem búið hefur hér á landi um árabil segist ekki skilja hvers vegna vísa eigi honum úr landi. Hann borgi sína skatta og lifi hér eðlilegu lífi. Í Gana bíði hans hins vegar ekkert nema gatan.

Ein fallegasta eign Vesturbæjar til sölu
Sjö herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Hagamel er til sölu. Ásett verð fyrir fermetrana 169 eru rúmlega 127 milljónir króna.

Loka götubútum í stutta stund meðan á dreifingu stendur
Loka þarf stöku götubútum í stutta stund í miðborg Reykjavíkur í dag á meðan dreifing á nýju sorptunnunum stendur yfir vegna þrengsla. Verkefnastjóri biður íbúa um að sýna biðlund rétt á meðan tunnuskiptum stendur.

Fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur í Sundahöfn
Ökumaður mótorhjóls var fluttur á bráðamóttöku Landspítala á ellefta tímanum í morgun eftir árekstur við sendiferðabíl.

Eftirlýstur maður með barefli, bílvelta og brennandi kofi
Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt ef marka má dagbók lögreglu. Þar segir að sjö manns hafi gist fangaklefa fyrir hin ýmsu brot.

Tveir á slysadeild eftir bílveltu á Grensásvegi
Tveir voru fluttir á slysadeild á níunda tímanum í kvöld vegna áreksturs sem olli bílveltu á gatnamótum Grensásvegar, Sogavegar og Miklubrautar í Reykjavík.

Dagur og Arna saman í aldarfjórðung
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Arna Dögg Einarsdóttir, læknir, hafa verið saman í aldarfjórðung. Dagur deilir þessu á samfélagsmiðlinum Facebook.

Maður reyndi að stela reiðhjóli með öxi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tilraun til hjólaþjófnaðar sem átti sér stað við reiðhjólaverslunina Ellingsen á Granda. Öxi var notuð við tilraunina.

Maturinn kláraðist á fyrri degi Götubitahátíðar
Götubitahátíðin fer fram í fjórða sinn nú um helgina. Skipuleggjandi hátíðarinnar segir alla geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Matur sem átti að duga alla helgina kláraðist í gær og þurftu starfsmenn vagnanna að eyða nóttinni í að undirbúa meiri mat.

Neituðu að segja til nafns eða gefa upp kennitölu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði nóg að gera í gærkvöldi og nótt. Í Vesturbænum voru skötuhjú í annarlegu ástandi handtekin og vistuð í fangaklefa vegna líkamsárásar og eignaspjalla.

„Leysum við þetta ekki bara í góðu?“
Smiður skarst í leikinn á gatnamótum Túngötu og Suðurgötu í miðborg Reykjavíkur í gær í pattstöðu á milli rútubílstjóra og bílstjóra sendiferðabíls, en hvorugt vildi hleypa hinu áfram sína leið.