
Akranes

Laðar fjárfesta að til að halda Skaganum á Skaganum
Bæjarstjóri Akraness segir bæjarstjórn gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að halda Skaganum 3X í bænum.

Annað tilboð borist í Skagann 3X
Tvö tilboð hafa nú borist í rekstur og eignir úr þrotabúi Skagans 3X á Akranesi, samkvæmt heimildum fréttastofu. Helgi Jóhannesson skiptastjóri fundaði með Íslandsbanka í gær varðandi áður komið tilboð.

Búið að bjóða í Skagann 3X
Formlegt tilboð barst í þrotibú Skagans 3X í gærkvöldi. Þetta staðfestir Helgi Jóhannesson skiptastjóri í þrotabúsins í samtali við fréttastofu, en Skessuhorn greindi fyrst frá.

Sérnám í bæklunarlækningum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna hefur viðurkennt Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem kennslustofnun til að annast sérnám lækna í bæklunarlækningum, í samvinnu við bæklunarlækningar á Landspítala.

Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X
Helgi Jóhannesson, skiptastjóri þrotabúsins Skagans 3X, segir að mikill áhugi sé á fyrirtækinu. Margir hafi sett sig í samband við hann og viðrað verðhugmyndir og önnur tilboð. Tilboð hafa borist í hluta eignanna, en ekki hefur borist heildartilboð í allar eignirnar og reksturinn.

Segir Akranes verða svefnbæ
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir nánast alla atvinnustarfsemi á Akranesi vera farna og að stefni í að bærinn verði aðeins náttstaður íbúa. Rúmur fjórðungur Skagamanna sæki þegar atvinnu til Reykjavíkur og þörf sé á aðgerðum til að sporna við þessari þróun.

Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga
Annríkt var hjá lögreglunni á Vesturlandi í nótt og fram eftir morgni og sinnti hún um sjötíu málum.

Rauðhærðir í brennidepli á vel sóttum írskum dögum
Írskir dagar fóru fram í dag í blíðskaparveðri á Akranesi. Hátíðin var gríðarlega vel sótt. Rauðhærðasti Íslendingurinn var valinn og í kvöld fara fram tónleikar og annars konar skemmtun.

30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“
Mjög erilsamt var hjá lögreglunni á Vesturlandi í nótt en um þessar mundir fara fram Írskir dagar á Akranesi. Um 30 tilvik voru skráð hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt.

Búast við blíðu á Írskum dögum
Írskr dagar fara fram á Akranesi um helgina en hátíðardagskrá fór af stað fyrr í vikunni. Skipuleggjandi segir fjölbreytta skemmtidagskrá og gott veður vera í vændum sem vonandi muni þjappa fólki saman á erfiðum tímum í kjölfar fjöldauppsagnar hjá stóru fyrirtæki í bænum.

Viðrar vel til hátíða víðs vegar um helgina
Stór ferðahelgi er í vændum á Íslandi og eru margir að undirbúa sig fyrir ferðalag um þessar mundir. Mikið er um að vera víðs vegar á landinu en þar má helst nefna Írska daga á Akranesi, fjölskylduhátíðina Allt í blóma á Hveragerði og Goslokahátíð í Vestmannaeyjum.

Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni
Næstum hundrað og þrjátíu manns misstu vinnuna hjá fyrirtækinu Skaganum 3x, sem óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í dag. Uppsagnirnar eru áfall fyrir Akranesbæ segir bæjarstjórinn en starfsmaður segir fréttirnar hafa komið flatt upp á sig þegar hann vaknaði í morgun.

Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára
Rakel Mirra Njálsdóttir hóf veitingarekstur á Akranesi í sumar aðeins átján ára að aldri. Hún vildi bjóða upp á hollan skyndibita og sá engan tilgang í því að bíða eftir því að verða eldri.

Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg
Haraldur Benediktsson segir gjaldþrot Skagans 3X sem sagði upp öllum 128 starfsmönnum sínum í morgun vera mikið áfall, ekki bara fyrir bæinn heldur íslenskan sjávarútveg í heild sinni.

Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota
Öllum 128 starfsmönnum Skagans 3x var sagt upp í dag. Skaginn 3x er hátæknifyrirtæki sem framleiðir tæki fyrir matvælaframleiðslu aðallega í sjávarútvegi. Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness, segir ekkert sveitarfélag hafa orðið fyrir jafnmiklum hamförum í atvinnumálum undanfarið, að Grindvíkingum undanskildum.

Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á
Karlmaður á Akranesi hefur verið ákærður fyrir fjölda grófra kynferðisbrota gegn andlega fatlaðri konu. Hann er einnig ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn syni konunnar og annarri konu. Þau eru bæði andlega fötluð. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa nauðgað konunni og neytt son hennar til þess að fylgjast með.

Banaslys á byggingarsvæði á Akranesi
Banaslys varð á byggingarsvæði á Akranesi þann tólfta júní síðastliðinn. Karlmaður á sextugsaldri var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 23. júní síðastliðinn.

Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði
Páll Pálsson fasteignasali segir enga dramatík á fasteignamarkaði eins og er. Það sé um 30 prósent meiri sala en í fyrra, á sama tíma, en síðasta ár hafi verið lélegt. Hann segir að það hafi orðið um 8,4 prósenta hækkun á fasteignaverði síðasta árið en að stór hluti hækkunarinnar sé tilkomin á þessu ári.

Umtalsvert tjón og tveimur bjargað úr húsinu
Slökkvistarfi vegna bruna í fjölbýlishúsi á Akranesi er lokið. Slökkvilið sótti tvo í húsið með stigabíl, en þeim var þó ekki búin bráð hætta.

Eldur í fjölbýlishúsi á Akranesi
Töluverður viðbúnaður er á Akranesi vegna elds í fjölbýlishúsi. Eldurinn var á fyrstu hæð í þriggja hæða blokk á Akranesi. Enginn var heima í íbúðinni sem eldurinn var í. Tveir voru heima í öðrum íbúðum en eru ekki slasaðir. Slökkvilið vinnur nú að því að reykræsta húsið.

„Tiltekin atvik“ varðandi stúlku orsök bardaga á Akranesi
Karlmaður hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Vesturlands á dögunum fyrir að taka steypuklump og slá annan mann ítrekað í höfuðið.

Biluð rúta í Hvalfjarðargöngum og lokað næstu tvær nætur
Biluð rúta olli því að loka þurfti Hvalfjarðargöngum um sexleytið í kvöld. Hvalfjarðargöngin verða einnig lokuð vegna vinnu frá miðnætti í kvöld þangað til 6:30 í fyrramálið. Göngin verða einnig lokuð á sama tíma aðfararnótt fimmtudags 6. júní. Hjáleið er um Hvalfjarðarveg (47).

Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti
Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir ritar afar athyglisverða grein um einelti sem dóttir hennar Íris Anna mátti sæta á Stykkishólmi. Fjölskyldan flutti í febrúar til Akraness og við það eitt leystust ýmsir hnútar sem höfðu virst óleysanlegir.

Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi
Það iðar allt af lífi og fjöri á Akranesi þessa dagana þegar diskó er annars vegar því nemendur Brekkubæjarskóla eru að sýna söngleikinn „Diskóeyjan“ í Bíóhöllinni.

Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar
Björgunarbátar af suðvesturhorninu drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna á Faxaflóa til hafnar í gærkvöldi. Þokkalegt veður var og ekkert amaði að áhöfn bátsins.

Mikil gleði þegar Bergur komst í mark
Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, lauk um klukkan 14 í dag 100 kílómetra göngu sinni frá Akranesi til Reykjavíkur. Bergur gekk alla þessa leið til styrktar Píeta samtökunum.

25 þjóðerni í Grundaskóla á Akranesi
Það er búið að vera meira en nóg að gera hjá nemendum og starfsfólki Grundaskóla á Akranesi síðustu daga því þar voru haldnir fjölmenningardagar en nemendur frá tuttugu og fimm löndum eru í skólanum. Einn nemandi kemur frá Arúba, sem er eyja í Karíbahafi.

Bauð öllum bæjarbúum í matarboð
Íbúi á Akranesi tók sig til í kvöld og hélt opið matarboð þar sem allir bæjarbúar voru boðnir velkomnir. Stefnan er sett á að halda slíkt matarboð mánaðarlega og gestgjafinn leggur áherslu á mikilvægi þess að fólk setjist niður og borði saman.

Gengur hundrað kílómetra með hundrað kílóa sleða
Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, ætlar á sumardaginn fyrsta ganga 100 kílómetra til styrktar Píeta samtökunum. Á eftir sér mun hann draga 100 kílóa sleða sem hann léttir á tíu kílómetra fresti.

Önnur sjónarmið ráði en vilji íbúa
Bæjarstjóri Akraness fagnar áhuga Miðbæjarsamtakanna á að auka líf í miðbænum en ráðhúsið verði ekki fært þangað í þeim tilgangi. Þegar sé búið að ákveða að byggja bæjarskrifstofur á öðrum stað og ráðgert að húsnæðið verði tilbúið eftir fimm ár.