Keflavíkurflugvöllur

Stundvísi komin yfir níutíu prósent
Flutningatölur flugfélagsins Icelandair frá nóvembermánuði sýna aukningu á farþegum í mánuðinum á milli ára. Einnig var stundvísi félagsins 91 prósent.

Delta hefur flugferðir til Detroit frá Íslandi
Borgin Detroit í Michigan-ríki í Bandaríkjunum bætist við sem áfangastaður Delta Air Lines á Íslandi frá og með 15. maí næstkomandi. Um er að ræða þriðja áfangastaðinn sem fólk getur ferðast til frá Íslandi með Delta.

Varaflugvallargjaldi einnig ætlað að kosta framkvæmdir í Reykjavík
Tvöhundruð króna varaflugvallargjald verður lagt á bæði innanlands- og millilandaflugfarþega, samkvæmt frumvarpi sem innviðaráðherra boðar. Gjaldinu er ætlað að standa undir framkvæmdum við flugvellina á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík.

Hefja áætlunarflug til Varsjár
Flugfélagið Play hyggst hefja sölu á miðum á áætlunarflugi til Varsjár, höfuðborgar Póllands í apríl.

Sigríður segir Boeing 757 vera uppáhaldsflugvélina
Sigríður Einarsdóttir varð fyrst íslenskra kvenna til að gegna störfum atvinnuflugmanns. Þegar hún er spurð, að loknum 38 ára starfsferli sem flugmaður og flugstjóri, hver sé uppáhaldsflugvélin er svarið: Boeing 757.

Svona verður ný álma Keflavíkurflugvallar
Ný álma á Keflavíkurflugvelli verður tekin í notkun í áföngum frá lokum næsta árs. Áætluð verklok eru árið 2024. Isavia spáir því að 2,2 milljónir ferðamanna komi til Íslands á næsta ári.

Bein útsending: Farþegaspá Keflavíkurvallar fyrir 2023
Isavia stendur fyrir morgunfundi í dag þar sem farið verður yfir farþegaspá Keflavíkurflugvallar fyrir árið 2023 sem og uppbyggingu og framkvæmdir sem framundan eru á flugvellinum.

Búnar að sýna og sanna það að þetta er ekki karlastarf lengur
Hún ruddi brautina fyrir íslenskar konur í flugmannastétt sem sú fyrsta sem var ráðin sem atvinnuflugmaður. Í dag var komið að síðustu lendingu Sigríðar Einarsdóttur í flugstjórasætinu hjá Icelandair og hlaut hún heiðursmóttöku á Keflavíkurflugvelli.

Leggur til tvö hundruð króna gjald á hvern farþega til að byggja upp varaflugvelli
Lagt verður varaflugvallagjald sem nemur 200 krónum á hvern farþega ef frumvarp innviðaráðherra sem lagt var fram í samráðsgátt stjórnvalda í dag nær fram að ganga. Sé miðað við sex milljón farþega gætu tekjur ríkissjóðs orðið allt að einn og hálfur milljarður króna. Isavia og Icelandair hafa mótmælt gjaldtökunni.

Um þrjú hundruð flugmenn vantar á næstunni
Um þrjú hundruð flugmenn mun vanta til starfa á Íslandi á næstu tveimur til þremur árum, og því er mikill áhugi á að læra flug hjá Flugakademíu Íslands hjá Keili á Keflavíkurflugvelli þar sem framtíðar atvinnuflugmenn eru þjálfaðir.

Eyesland með hagkvæmasta tilboðið á Keflavíkurflugvelli
Íslenska gleraugnaverslunin Eyesland átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um rekstur gleraugnaverslunar á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækið mun því opna verslun í flugstöðinni á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.

Ekki á dagskrá ríkisstjórnar að einkavæða Keflavíkurflugvöll
Rekstur flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og tengdrar starfsemi verður ekki boðin út til einkaaðila í tíð núverandi ríkisstjórnar að sögn forsætisráðherra. Hópur þingmanna Sjálfstæðisflokksins hefur hins vegar lagt til að reksturinn verði boðinn út til einkaaðila.

Þrjár brasilískar konur fluttu inn 1,8 kíló af kókaíni
Þrjár brasilískar konur hafa verið ákærðar af héraðssaksóknara fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Konurnar eru grunaðar um að hafa flutt saman til landsins 1.785 grömm af kókaíni með flugi frá París.

Málið undirstriki að samfélaginu stafi ógn af skipulagðri brotastarfsemi
Koma hátt í þrjátíu meðlima vélhjólaklúbbsins Hells Angels til landsins undirstrikar að samfélaginu stafi ógn af skipulagðri brotastarfsemi. Þetta segir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra. Fimm verður vísað frá landinu í fyrramálið til viðbótar við þá tuttugu og tvo sem gert var að yfirgefa landið í morgun.

Fimm til viðbótar yfirgefa landið á morgun
Þeir fimm meðlimir vélhjólagengisins Hells Angels sem komu til landsins seint í gærkvöldi og lögregla hafði til skoðunar í dag munu yfirgefa landið í fyrramálið. Útlendingastofnun féllst á frávísun í tilviki fjögurra vegna tengsla við samtökin Hells Angels í Þýskalandi en sá fimmti mun yfirgefa landið sjálfviljugur.

Öllum tuttugu og tveimur meðlimum Hells Angels vísað frá landi
Öllum þeim tuttugu og tveimur meðlimum vélhjólaklúbba sem komu til landsins í gær hefur verið vísað frá landi. Allir voru þeir meðlimir vélhjólagengisins Hells Angels og undirklúbba þess. Lögregla hefur til skoðunar fimm aðra sem komu til landsins seint í gærkvöldi.

Nokkur fjöldi í haldi lögreglu á flugvellinum grunaður um tengsl við glæpasamtök
Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli þegar meðlimir vélahjólaklúbba komu til landsins. Nokkur fjöldi sem talinn er tengjast slíkum klúbbum er í haldi lögreglu á flugstöðinni á meðan er til skoðunar hvort eigi að hleypa þeim inn í landið eða vísa þeim á brott.

Vatnsþétting olli brotlendingu á Keflavíkurflugvelli
Vatn sem hafði safnast saman í eldsneytiskerfi flugvélar C-GWRJ olli því að hún brotlenti stuttu eftir flugtak á Keflavíkurflugvelli. Vatn fannst í eldsneytissíu vélarinnar þegar hún var skoðuð eftir brotlendingu.

Flestar brottfarir í október voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 159 þúsund í nýliðnum október samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða fjórða fjölmennasta októbermánuðinn frá því mælingar hófust. Brottfarir í ár voru 80% af því sem þær voru í októbermánuði 2018 eða þegar mest var.

Play til Stokkhólms og Hamborgar
Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu í flugferðir frá Keflavíkurflugvelli til Stokkhólms í Svíþjóð og Hamborgar í Þýskalandi. Forstjóri flugfélagsins hefur fulla trú á því að farþegar muni flykkjast til borganna.

Harma að hafa komið í veg fyrir myndatökur af brottvísuninni
Isavia harmar að hafa hindrað störf fjölmiðla þegar lögreglan flutti hælisleitendur af landi brott í leiguflugvél til Grikklands.

Gera eins og Eiríkur leggur til og bjóða starfsfólki upp á íslenskukennslu á vinnutíma
Isavia og dótturfélög hafa ákveðið að bjóða starfsfólki, sem hefur annað tungumál en íslensku að móðurmáli, að sækja íslenskunámskeið í boði félagsins í vinnutíma.

Kanadamenn taka þátt í kafbátaleit frá Íslandi
Flugsveit frá Kanada hefur tekið þátt í eftirliti með hafsvæðinu við Ísland að undanförnu. Það er til viðbótar við flugsveitir Bandaríkjamanna sem hafa vaktað norðanvert Atlantshaf frá Íslandi.

Lengja tímabil flugferða til Rómar og Nice
Icelandair hefur ákveðið að lengja flugtímabilið til Rómar og Nice á næsta ári.

Sagðist vera klæddur sprengjuvesti við Keflavíkurflugvöll
Aðgerðaáætlun lögreglu og Keflavíkurflugvallar var virkjuð síðdegis í dag vegna sprengjuhótunar sem birtist á Twitter. Hótunin reyndist tilhæfulaus.

Meint íslenskt óveður reynst dýrkeypt fyrir Vueling
Spænska flugfélagið Vueling hefur þurft að greiða um sjötíu farþegum flugfélagsins samtals rúmlega fimm milljónir króna í skaðabætur vegna flugferða á vegum félagsins sem var ýmist seinkað eða aflýst vegna veðurs hér á landi. Í öllum tilvikum var það metið svo að veðrið hafi ekki átt að hafa áhrif á ferðir félagsins.

Telja fjölda ferðamanna ná nýjum hæðum á næstu árum
Fjöldi erlendra ferðamanna sem heimsækir Ísland gæti sett nýtt met innan tveggja ára og náð tæpum þremur milljónum árið 2025. Raunhæft er talið að fjöldinn gæti náð þremur og hálfri milljón fyrir lok áratugsins.

Var stöðvaður með kíló af kókaíni í farangrinum
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt austurrískan karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa staðið að innflutningi á tæpu kílói af kókaíni til landsins með flugi frá Amsterdam.

Þyngri dómar í mútumáli vegna bílastæðamiða
Hæstiréttur hefur sakfellt fyrrverandi þjónustustjóra hjá Isavia og framkvæmdastjóra tæknifyrirtækis fyrir hlutdeild í umboðssvikum og mútubrot í tengslum við bílastæðamiðakaup til notkunar á bílastæðum Isavia. Þjónustustjórinn var einnig sakfelldur fyrir peningaþvætti. Dómar yfir mönnunum tveimur voru þyngdir um þrjá mánuði.

Munu fljúga til Aþenu næsta sumar
Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til grísku höfuðborgarinnar Aþenu. Áætlað er að fyrsta ferðin verði farin 2. júní 2023 en flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, út október 2023.