Keflavíkurflugvöllur
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 44 ›
Ákveðin uppgjöf að ætla að takmarka fjölda ferðamanna Ferðamálaráðherra segir það ákveðna uppgjöf að ætla takmarka fjölda ferðamanna til Íslands. Hún telur ekki tímabært að ræða samkomutakmarkanir til margra mánuða, líkt og sóttvarnalæknir hefur lagt til í minnisblaði sínu. Veiran sé komin til að vera og lífið þurfi að komast sem fyrst í eðlilegt horf. Innlent 19.8.2021 18:32
Ætla að herða eftirlit verulega í næstu viku Lögreglan á Suðurnesjan ætlar að herða verulega á eftirliti með því að flugfélög tryggi að farþegar komi ekki til landsins framvísi þeir ekki neikvæðu PCR-prófi við brottför. Forstjóri Play segir það mun betri lausn en að ætla að takmarka fjölda ferðamanna til landsins. Innlent 19.8.2021 18:32
Hefjast handa við að stækka flugvöllinn um tuttugu þúsund fermetra Um tuttugu þúsund fermetra stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hófst formlega í gær. Um er að ræða ríflega tuttugu milljarða króna framkvæmd, sem er sú stærsta sem Isavia hefur ráðist í. Innlent 17.8.2021 19:38
Wizz Air bætir við fjórtán flugleiðum til Íslands Ungverska flugfélagið Wizz Air hefur að undanförnu bætt við sig fjórtán flugleiðum til Íslands og gerir ráð fyrir fleiri ferðum hingað en áður, samkvæmt frétt Túrista.is. Viðskipti erlent 16.8.2021 13:31
Bólusettir með tengsl við Ísland þurfa nú í sýnatöku eftir komu til landsins Bólusettir farþegar og þau sem hafa vottorð um fyrri sýkingu með tengsl við Ísland þurfa frá og með deginum í dag að fara í sýnatöku innan tveggja sólarhringa frá komu til landsins. Börn fædd 2005 og síðar eru undanskilin nýjum reglum. Innlent 16.8.2021 09:25
Jón Gnarr er kominn með Covid-19 Jón Gnarr er einn þeirra 130 sem greindust smitaðir af kórónuveirunni í gær. Hann segist ekki vita hvar hann smitaðist en þó telur hann ekki ólíklegt að það hafi verið í Leifsstöð. Innlent 13.8.2021 16:34
Hætta að skoða öll bólusetningavottorð Bólusetningavottorð verða skoðuð með tilviljanakenndum hætti, í þeim tilgangi að leysa úr þeim flöskuhálsi sem hefur myndast og skapað mannmergð á Keflavíkurflugvelli undanfarnar vikur, segir ferðamálaráðherra. Farþegafjöldi á Keflavíkurflugvelli er nú um þriðjungur af því sem hann var fyrir tveimur árum. Innlent 12.8.2021 11:47
95 komur og brottfarir í dag Fimmtíu og ein brottför er á áætlun frá Keflavíkurflugvelli í dag. Þar ef eru þrjátíu brottfarir með flugvélum Icelandair og þrjár með Play. Innlent 12.8.2021 07:34
„Maður skynjar ósamstöðu milli ráðuneytis og almannavarna“ Fjöldi ferðamanna hefur leitað til flugfélagsins Play undanfarið með fyrirspurnir um reglur á landamærum. Forstjóri Play segir að mikil óvissa ríki um aðgerðirnar og gagnrýnir hann ósamræmi á landamærum. Innlent 11.8.2021 12:00
Furðar sig á því að hafa ekki þurft að sýna rándýrt vottorð á landamærunum Ómar Úlfur Eyþórsson, útvarpsmaður á X-977, borgaði 34 þúsund krónur fyrir hraðpróf á Gardermoen, flugvellinum í Osló, þar sem hann taldi sig munu þurfa að framvísa vottorði um neikvæða niðurstöðu Covid-19 sýnatöku. Þegar á hólminn var komið reyndust útgjöldin óþarfi. Innlent 9.8.2021 20:59
Play stundvísasta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli Flugfélagið Play flutti 9.899 farþega í júlí og var sætanýting 41,7 prósent. Nýtingin er sögð vera í takt við væntingar stjórnenda þennan fyrsta mánuð félagsins í fullum rekstri. Viðskipti innlent 9.8.2021 10:59
„Það verður ekki mikið meira gert þegar öll þjóðin er orðin fullbólusett“ Mikill fjöldi ferðamanna, íslenskra og erlendra, fer í gegnum Keflavíkurflugvöll á degi hverjum. Vegna landamæraaðgerða hefur oft myndast örtröð á vellinum, og forsvarsmenn lögreglu í flugstöðinni bent á að húsnæðið bjóði ekki upp á meiri skilvirkni við afgreiðslu vottorða og annars sem þarf að sinna í tengslum við aðgerðirnar. Innlent 8.8.2021 13:19
Myndband sýnir mikla örtröð í komusal Keflavíkurflugvallar Óhætt er að segja að mikil örtröð hafi myndast í komusal Keflavíkurflugvallar nú síðdegis, þegar tuttugu flugvélar skiluðu af sér farþegum á tveggja tíma tímabili. Innlent 7.8.2021 17:40
Lentu í Keflavík með veikan farþega Vél á leið frá New York í Bandaríkjunum til Mumbai á Indlandi var snúið við þegar hún var á leið sinni yfir Ísland og lenti á Keflavíkurflugvelli rétt upp úr klukkan 5 í morgun. Innlent 6.8.2021 09:48
Bæta þurfi aðstöðu á vellinum ef aðgerðir á landamærum eru til langs tíma Rauður litur Íslands á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu mun ekki hafa bein áhrif á stöðuna á Keflavíkurflugvelli, þó komufarþegum kunni að fækka á næstunni. Yfirlögregluþjónn segir stöðuna þunga og að breytinga sé þörf á vellinum, verði takmarkanir á landamærunum viðvarandi. Innlent 5.8.2021 12:56
„Við erum ekki landamæraeftirlit“ Þeir sem ekki geta framvísað neikvæðu kórónuveiruprófi við byrðingu í flug með flugfélaginu Play, verður ekki hleypt um borð á leið til Íslands. Forstjóri félagsins segir ákvörðunina innan lagalegs ramma enda sinni flugfélagið ekki landamæraeftirliti. Viðskipti innlent 28.7.2021 12:41
Dæmi að fólk missi af flugi vegna ófullnægjandi gagna Talsvert er um að fólk mæti ekki með fullnægjandi gögn á Keflavíkurflugvöll og dæmi eru um að það missi þar af leiðandi af flugi sínu út, segir Arngrímur Guðmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum. Hann hvetur fólk til að fylgjast með þeim reglum sem séu í gildi hverju sinni, sem geti breyst frá degi til dags. Þá sé mikilvægt að ferðalangar mæti snemma í innritun því hún taki lengri tíma nú en áður. Innlent 27.7.2021 12:00
Örtröð á Keflavíkurflugvelli í morgun Fullt var út úr dyrum og gott betur en það á Keflavíkurflugvelli í morgun. Sextán flugvélar hófu sig á loft fyrir klukkan níu í morgun og 34 vélar til viðbótar fljúga utan síðar í dag. Innlent 24.7.2021 09:29
Lögregla steig inn í rifrildi ferðamanna og starfsmanna flugvallarins Lögregla og öryggisverðir þurftu að skerast í leikinn þegar til rifrildis kom milli tveggja tilvonandi flugfarþega annars vegar og þjónustuaðila á vegum Play á Keflavíkurflugvelli hins vegar. Innlent 22.7.2021 16:53
Keflavíkurflugvöllur að nálgast þolmörk Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir flugvöllinn að nálgast þolmörk. Suma daga þurfi lögregla á flugvellinum að taka á móti þrjú þúsund farþegum á einum og hálfum klukkutíma. Innlent 18.7.2021 13:32
Raðir mynduðust á Leifsstöð í morgun og 47 flugvélar fljúga frá vellinum í dag Svakalegar raðir mynduðust á Keflavíkurflugvelli snemma í morgun. Raðir voru margar byrjaðar að myndast fyrir klukkan fimm, en þá voru enn um þrír tímar í að lang flestar flugvélar, á leið til Evrópu, legðu af stað. Innlent 18.7.2021 07:19
Grunaður um manndráp en komst úr landi á nýju vegabréfi Til stendur að gefa út evrópska handtökuskipun vegna rúmensks karlmanns sem flúði land á dögunum þrátt fyrir að vera í farbanni grunaður um manndráp. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögreglu vita hvar maðurinn er niðurkominn en talið er að hann hafi orðið sér út um nýtt vegabréf og þannig komist út landi. Innlent 14.7.2021 11:51
Lögreglan mátti ekki vísa georgískum tannlækni úr landi Kærunefnd útlendingamála hefur fellt ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að vísa georgískum ferðamanni úr landi úr gildi. Innlent 12.7.2021 18:14
Sjöfalt fleiri brottfarir erlendra farþega Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 42.600 í nýliðnum júnímánuði eða sjö sinnum fleiri en í júní 2020, þegar brottfarir voru um sex þúsund. Viðskipti innlent 12.7.2021 15:45
Þungur dagur á Keflavíkurflugvelli Arngrímur Guðmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á Suðurnesjum, segir daginn hafa verið þungan á Keflavíkurflugvelli. Talið sé að þrettán til fjórtán þúsund manns hafi farið í gegnum flugvöllinn en álagstímarnir á morgnanna og seinni partinn séu erfiðastir. Innlent 10.7.2021 19:52
Flugbáturinn flaug hringi yfir öflugum gosstrókum Bandaríski Grumman Goose-stríðsáraflugbáturinn, sem kominn er til landsins vegna flughátíðar á Hellu, flaug hringi yfir eldstöðinni í Fagradalsfjalli um ellefuleytið í morgun á leið sinni frá Keflavíkurflugvelli til Helluflugvallar. Innlent 10.7.2021 12:36
Gömlu góðu en löngu innritunarraðirnar komnar aftur Langar raðir mynduðust við innritunarborð Leifsstöðvar í morgun og varð seinkun á öllu morgunflugi frá vellinum. Svo langar innritunarraðir hafa ekki sést lengi á vellinum, bæði vegna heimsfaraldursins en einnig vegna þess að við ástandið í dag er ekki hægt að nota sjálfsinnritunarvélar, sem var komið fyrir á vellinum fyrir örfáum árum. Innlent 10.7.2021 11:53
Yfir 10 þúsund farþegar á einum degi í fyrsta sinn í fimmtán mánuði Alls fóru 10.580 manns um Keflavíkurflugvöll síðastliðinn laugardag, en svo margir farþegar hafa ekki farið um völlinn á einum degi frá því 13. mars 2020, eða fyrir rúmum fimmtán mánuðum. Viðskipti innlent 5.7.2021 09:01
Fyrsta Chicago-vélin lenti á Keflavíkurflugvelli Bandaríska flugfélagið United Airlines hóf í dag í fyrsta sinn beint flug milli Keflavíkurflugvallar og Chicago. Þetta er í fyrsta sinn sem United býður upp á beint flug milli Íslands og Chicago en bandarískt flugfélag hefur ekki áður boðið upp á beint flug á þessari leið. Viðskipti innlent 2.7.2021 14:49
Segir Íslendinga tuða mest yfir röðum á flugvellinum Lögregla á Keflavíkurflugvelli finnur vel fyrir auknum straumi ferðamanna til landsins. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir Íslendinga tuða mest allra þjóða yfir biðröðum á flugvellinum en fæstir þeir ferðamenn sem fréttastofa ræddi við komu hingað til lands til að sjá eldgosið í Geldingadölum. Innlent 30.6.2021 21:01