Þjóðhátíð í Eyjum
1 2 3 4 5 6 7 … 10 ›
Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Lögreglan í Vestmannaeyjum er eins klár og hægt er fyrir þjóðhátíð en hún fær þó mikla aðstoð lögreglumanna og fíkniefnahunda af fasta landinu. Sjálfboðaliðar eru líka klárir fyrir þjóðhátíð. Innlent 31.7.2024 20:05
Verulega hvasst í Eyjum á laugardaginn Það er hætt við því að þeir sem eiga ferð með Herjólfi til Vestmannaeyja á laugardaginn fái aðeins í magann yfir veðurspánni. Hún hljóðar upp á 23 m/s í hádeginu en á að lægja með deginum þótt töluvert blási. Innlent 31.7.2024 10:51
FM Belfast fékk blessun Greifanna fyrir síðsumarsmelli Gleðigjafarnir í FM Belfast gáfu í dag út nýtt lag, en um er að ræða ábreiðu af einu frægasta lagi Greifanna, Útihátíð. Lagið kom út árið 1986 og hefur allar götur síðan verið stór hluti af sumarstemningunni á Íslandi. Tónlist 30.7.2024 15:00
Lalli töframaður sér börnunum fyrir brekkusöng Brekkusöngur barnanna fer fram i fyrsta sinn á Þjóðhátíð í Eyjum í ár. Hann verður í umsjón Lalla töframanns og fer fram á Tjarnarsviðinu klukkan 14:30 á laugardag. Lalli segist vera spenntur fyrir hinni nýju hefð og reiðubúinn að standa vaktina næstu ár. Tónlist 29.7.2024 15:46
Reiknar með 15 þúsund manns í Herjólfsdal Spenna og eftirvænting fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum vex og vex með hverjum deginum en formaður þjóðhátíðarnefndar reiknar með 15 þúsund manns í dalinn. Bekkjabílar verða á sínum stað og efnt verður til búningakeppni í tilefni af 150 ára afmæli þjóðhátíðar. Innlent 21.7.2024 20:03
Metfjöldi sérsveitarmanna á Þjóðhátíð í sumar Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hefur áhyggjur af því að ofbeldi og vopnaburður muni aukast á Þjóðhátíð í sumar þegar þúsundir ungmenna frá höfuðborgarsvæðinu og víðar streyma til eyjunnar. Hann segir lögregluna hafa gripið til ráðstafana vegna þessa og viðbúnaður á hátíðinni hafi aldrei verið meiri. Innlent 17.7.2024 12:16
„Fólkið er kjarni Þjóðhátíðar og ég vildi sýna það“ Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi Þjóðhátíðarlagsins 2024. Jóhanna Guðrún er flytjandi lagsins og segir að tökudagurinn hafi verið draumi líkastur. Tónlist 25.6.2024 07:01
Tóku svartan mann hálstaki við handtöku og greiða bætur Ríkið hefur fallist á að greiða nítján ára manni, sem er dökkur á hörund, 150 þúsund krónur í bætur vegna handtöku sem hann varð fyrir á Þjóðhátíð á síðasta ári. Lögreglan tók manninn hálstaki í tjaldi. Innlent 6.6.2024 13:27
Svona er Þjóðhátíðarlagið 2024 Tónlistarkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár ásamt karlakórnum Fjallabræður. Lagið heitir Töfrar og var frumflutt í Brennslunni á FM957 í morgun. Hlusta má á lagið neðar í fréttinni. Lífið 5.6.2024 12:32
Jóhanna Guðrún semur og flytur Þjóðhátíðarlagið 2024 Tónlistargyðjan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir flytur og semur Þjóðhátíðarlagið 2024. Þetta var opinberað í skemmtiþætti þjóðarinnar FM95Blö á útvarpsstöðinni FM957 nú síðdegis. Lífið 5.4.2024 17:30
Á enn kaffisíuna sem textinn við Lífið er yndislegt var skrifaður á Það var ekki margt sem að benti til þess að strákurinn í Nike gallanum og með körfuboltann undir hendinni á Hvolsvelli árið 1994 yrði nokkrum árum síðar ein skærasta poppstjarna þjóðarinnar. En sú varð nú samt raunin. Lífið 30.3.2024 15:00
Fyrstu tónlistarmennirnir á Þjóðhátíð í ár tilkynntir Miðasala á Þjóðhátíð í Eyjum er hafin. Þá var greint frá fyrstu tónlistarmönnunum sem munu stíga á svið á hátíðinni í ár í beinni útsendingu í Brennslunni á FM957 í morgun. Lífið 1.3.2024 11:45
Bæjarblaðið sektað fyrir að auglýsa nikótín fyrir Þjóðhátíð Útgefandi bæjarblaðs Vestmanneyinga, Tíguls, hefur verið sektað um 100 þúsund krónur vegna brots á fjölmiðlalögum, með því að birta viðskiptaboð fyrir nikótínpúða og rafsígarettur. Tígull er fyrsti fjölmiðillinn sem sektaður fyrir slíkt brot. Útgefandinn segist hafa prentað heilsíðuauglýsinguna fyrir mistök. Innlent 11.1.2024 14:28
Tilkynnti eiginmanninum óléttuna í Brekkunni í Eyjum Hjónin og eigendur heilsustaðarins Maikai, Elísabet Metta Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, betur þekktur sem Áki, eiga von á sínu öðru barni í byrjun næsta árs. Fyrir eiga þau Viktor, fimm ára. Lífið 18.10.2023 16:01
„Þá verður farið ofan í saumana á þessu“ Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, segir mál 19 ára manns vegna aðgerða lögreglu á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar ekki komið á borð til sín enn sem komið er. Hann eigi þó von á að það berist til sín á næstunni. Innlent 9.10.2023 21:00
„Ég vildi fá að hringja í pabba og þeir bönnuðu mér það“ Nítján ára maður, sem er dökkur á hörund, og var handtekinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar segir húðlit sinn hafa ráðið aðgerðum lögreglu. Hann segir fordóma í samfélaginu hafa færst í aukana. Lögmaður mannsins hefur krafist miskabóta úr hendi ríkisins. Innlent 8.10.2023 20:09
Níu ára strákur í Kópavogi ætlar að verða heimsfrægur söngvari „Ég ætla að verða heimsfrægur söngvari og mjög góður dansari “, segir níu ára strákur í Kópavogi, sem vann söngvakeppni barnanna á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Það er ekki nóg með að strákurinn sé góður að syngja því hann hefur fengið fimmtán bikara og þrjátíu verðlaunapeninga í keppnum í samkvæmisdansi. Lífið 10.8.2023 20:07
Ekkert mál að græja hjólastólapall fyrir næstu Þjóðhátíð Formaður Þjóðhátíðarnefndar tekur vel í hugmyndir manns, sem mætti í hjólastól í Herjólfsdal um helgina, og heitir því að bæta aðgengi fyrir næstu hátíð. Innlent 9.8.2023 14:00
Gáfust upp á troðningi og skora á Eyjamenn Dagur Steinn Elfu Ómarsson skorar á forsvarsmenn Þjóðhátíðar að bæta aðstöðu fyrir þá sem mæta á hátíðina í hjólastól. Dagur og tveir starfsmenn hans gáfust upp á troðningnum í dalnum og fóru heim fyrir síðasta kvöldið. Innlent 8.8.2023 21:55
Þolinmæði í umferðinni skipti miklu máli á degi sem þessum Verslunarmannahelgin er nú yfirstaðin og ferðalangar keppast við að ná heim til sín. Þrátt fyrir þunga umferð að borginni hefur dagurinn gengið stórslysalaust fyrir sig og lítið hefur verið um óhöpp um helgina, samkvæmt varðstjóra hjá umferðardeild lögreglunnar. Innlent 7.8.2023 19:22
Þjóðhátíðin í ár sé með þeim bestu hingað til Verslunarmannahelgin sem nú er að líða undir lok fór að mestu leyti vel fram víðast hvar á landinu. Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir Þjóðhátíðina í ár með þeim bestu hingað til frá löggæslulegu sjónarmiði séð. Hátíðahöld fóru einnig almennt vel fram á Akureyri, Flúðum og í Neskaupstað. Innlent 7.8.2023 12:20
„Ég hlakka mikið til að spila fyrir fólkið í kvöld“ Brekkusöngur þjóðhátíðar í eyjum fer fram í kvöld. Magnús Kjartan Eyjólfsson, stjórnandi brekkusöngsins segist spenntur fyrir kvöldinu. Veðrið lofi góðu og hann hafi trú á að allt gangi vel. Innlent 6.8.2023 20:09
Leita á „vafasömum aðilum“ áður en þeim er hleypt í dalinn Sérstakt átak lögreglunnar í Vestmannaeyjum til að bregðast við auknum hnífaburði virðist hafa skilað góðum árangri. Leitað er að fíkniefnum og vopnum á þeim aðilum sem lögreglu þykja grunsamlegir, áður en þeim er hleypt inn í Herjólfsdal. Innlent 6.8.2023 19:30
Gripinn með fjörutíu grömm af kókaíni í Eyjum Einn hefur verið handtekinn grunaður um umfangsmikla sölu fíkniefna á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Lögreglan lagði hald á fjörutíu grömm kókaíns, sem maðurinn hafði í fórum sínum. Innlent 6.8.2023 11:35
Sló til hunds og var handtekinn Þjóðhátíðargestur var handtekinn eftir að hafa slegið til fíkniefnaleitarhunds lögreglu en var látinn laus að lokinni skýrslutöku. Talsverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt og ekki síður hjá fíkniefnaleitarhundum þar sem fimmtán mál tengd fíkniefnum komu upp. Innlent 5.8.2023 12:49
Þúsund hjörtu slá í takt! Í ár eru 149 ár síðan fyrsta Þjóðhátíðin okkar var haldin. Þjóðhátíð er ein elsta menningarhátíð landsins. Einmitt þessi langa saga og hefð - og þessi órofa tenging við fortíð okkar og þá sem á undan fóru hér í Eyjum - leggur okkur ríkar skyldur á herðar. Við þurfum að hlúa að þessari miklu menningarperlu sem Þjóðhátíðin er. Skoðun 3.8.2023 18:00
„Þurfum engu að kvíða þó það blotni aðeins“ Það skiptast á skin og skúrir um verslunarmannahelgina ef spár ganga eftir. Veðurfræðingur segir að besta veðrið verði líklegast á austanverðu landinu í byrjun helgar en á sunnudeginum verði prýðis veður um land allt. Innlent 2.8.2023 12:00
Rigning á föstudag en síðan hæglætisveður Senn líður að mestu ferðahelgi ársins, Verslunarmannahelginni, og eflaust fjöldi fólks sem hefur hug á því að elta veðrið, sem hefur verið misgott við fólk eftir landshlutum það sem af er sumri. Veður 30.7.2023 21:43
Leifar af fellibyl orsaka óvissu með veðrið um verslunarmannahelgina Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að óvissa sé með það hvernig veðrið verður á Íslandi um verslunarmannahelgina. Leifar af fellibyl orsaka óvissuna en að sögn veðurfræðings koma leifarnar þó ekki til Íslands. Veður 30.7.2023 14:57
Tekur alltaf stresspissið rétt áður en hann stígur á svið Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti trónir staðfastur á toppi Íslenska listans á FM957 fjórðu vikuna í röð með lagið Þúsund hjörtu. Blaðamaður tók púlsinn á honum og fékk að heyra hvernig hann er stemmdur tæpri viku fyrir stóru stundina. Tónlist 29.7.2023 17:01