
Aprílgabb

Ótrúlega vel heppnað aprílgabb hjá leikmönnum Golden State | Myndband
Andre Iguodala, leikmaður NBA-meistara Golden State Warriors, fór illa með liðsfélaga sinn Festus Ezeli í tilefni af 1. apríl og myndbandið fór á flug á netinu.

Aprílgöbbin þetta árið
Að venju fylgdu fjölmiðlar og fleiri þeirri hefð að reyna að láta fólk hlaupa apríl í dag.

Rokkarinn Andrew W.K. að blanda sér í forsetaslaginn?
Hefur opnað vefsíðu fyrir nýjan pólitískan flokk sem heitir The Party Party.

Fjölmargir féllu fyrir aprílgabbi Vísis
Fast 8 bílarnir voru því miður ekki til sýnis í dag – en fólk greip þó ekki í tómt.

Allir héldu að um 1. aprílgabb væri að ræða: Davíð mætti á FM, nuddaði Rikka G og er á leiðinni til Spánar
Einn heppinn hlustandi Brennslunnar á FM957 vann í morgun tvö flugmiða með stöðinni til Magaluf á Spáni í maí.

Ómar Quarashi gabbaði vini sína
Tilkynnti á Facebook að út væri komin fyrsta sóló breiðskífa sín og hvatti alla að hlaupa út í plötubúð.

Sjálfkeyrandi hjól og Snoop Vision: Bestu aprílgöbbin úti í heimi 2016
Öll bestu aprílgöbb dagsins í dag úti í hinum stóra heimi á einum stað.

Fast 8 bílarnir til sýnis í dag
Áhugafólk um bíla er velkomið en nokkrir af fallegustu gripunum verða til sýnis milli klukkan 12 og 14 og bifvélavirkjar svara spurningum.

Ömurlegt aprílgabb: Messi til Real Madrid á 500 milljónir evra
"Maður eins og ég á að eiga 2000 metra langa snekkju sem er alltaf til taks með fullt af starfsfólki.“

Aprílgabb Fréttablaðsins: Vildu næla sér í úlfalda en fengu fiskibollur
"Þetta gekk svo vel upp að pabbi hringdi í mig í morgun og vildi að ég tæki frá úlfaldakjöt fyrir sig,“ segir Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi Fiskikóngsins.

Aprílgöbbin þetta árið: Aprílgöbb eru sko ekkert grín
Logi Bergmann rýnir í aprílgöbb dagsins með Vísi og fer um víðan völl.

Aprílgabb Vísis: María syngur í Eurovision
Páll Óskar Hjálmtýsson og Eurovisionhópurinn tóku þátt í aprílgabbi Vísis.

Friðrik Dór syngur framlag Íslands
Páll Óskar sakar StopWaitGo um "viðvaningshátt af verstu sort“.

Arnar lék Bjarka í gabbfrétt Stöðvar 2
Skipti um föt og veitti annað viðtal.

Yfir hundrað manns vildu hitta Tom Cruise
Ekkert varð úr því að Tom Cruise kæmi til Íslands nú síðdegis, né heldur að myndin Oblivion verði frumsýnd í Smárabíó í kvöld.

Fjölskrúðugt lífríki í Reykjavíkurtjörn og draugur á Vestfjörðum
Það voru líklega fjölmargir sem hlupu 1. apríl í dag enda vantaði ekki göbbin í fréttamiðlum á netinu. Þannig mátti finna þjóðlegt og hrollvekjandi gabb á vestfirska fréttavefnum Bæjarins besta. Þar var sagt frá því að ótrúleg ljósmynd hefði náðst á Hótel Núpi í Dýrafirði í sumar, þar sem svo virtist sem yfirnáttúrulegur svipur hefði náðst á filmu. Hótelstjórinn sagðist ekki óttast minnkandi aðsókn og sagði á vefnum:

Forsetaframbjóðandi hleypur 1. apríl - Páll ekki á leið í framboð
Það eru eflaust einhverjir sem hafa hlaupið 1. apríl í dag, en einn þeirra er Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, sem nú býður sig fram í þriðja skiptið til forseta. Þannig sendi hann pistil á alla fjölmiðla landsins fyrr í dag en ástæðan var frétt Smugunnar um að Páll Magnússon útvarpsstjóri hygðist bjóða sig fram til forseta.

Aprílgöbb: Hulk Hogan, Justin Bieber og frítt bensín
1. apríl er í dag og venju samkvæmt hefur verið mikið um einkennilegar fréttir víða í fjölmiðlum sem og annars staðar. Vísir ætlar að fara yfir nokkur aprílgöbb en mörg þeirra eru mjög skemmtileg.

Aprílgöbb bb.is
Knattspyrnumaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson verður ekki fenginn að láni frá Huddersfield til BÍ/Bolungarvíkur en frétt þess eðlis hér á vefnum fyrr í dag var aprílgabb. Ef einhverjir hlupu af stað til verslunarinnar Núps á Ísafirð, klæddir í hjólreiðastuttbuxum, létu þeir blekkjast þar sem leikur þar sem skíðajakki var í boði var einnig hrekkur af hálfu blaðamanna. Þriðja gabbið var síðan að Lonely Planet hefði ákveðið að draga til baka meðmæli sín um að Vestfirðir væru eitt af tíu áhugaverðustu svæðum heims til að ferðast til vegna slæmra samgangna.

Lukkudýr og pylsugrill voru aprílgabb
Forsvarsmenn KFÍ ætla ekki hafa lifandi lukkudýr á heimaleikjum sínum á næsta tímabili en frétt þess eðlis á bb.is í gær var aprílgabb eins og flestir glöggir lesendur gerðu sér grein fyrir. Ingó og Veðurguðirnir höfðu heldur ekki í hyggju að grilla pylsur ofan í svanga vegfarendur í miðbæ Ísafjarðarbæjar en þar var einnig um hrekk að ræða af hálfu blaðamanna. BB vonar að enginn hafi tekið þessu spaugi illa og allir hafi haft gaman af. Þá er öllum þeim sem tóku þátt í gríninu þakkað kærlega fyrir en bæði Shiran Þórisson og Ingólfur Þórarinsson tóku mjög jákvætt í erindið þegar blaðamaður hafði samband.

Enginn Barthez með KR í gær
Ekkert varð af því að franski markvörðurinn Fabien Barthez spilaði með KR gegn Þrótti í gær. Frétt Vísis um það í gær var aprílgabb en eins og flestir ættu að vita var 1. apríl í gær.

Síminn stoppaði ekki hjá Einari Árna
Karfan.is birti skemmtilegt og vel heppnað aprílgabb á heimasíðu sinni í gær þegar sagt var að Einar Árni Jóhannsson væri tekinn við liði Snæfells. Mikið var lagt í fréttina og meira segja birt stutt viðtöl við bæði Einar og Sæþór Þorbergsson formann körfuknattleiksdeildar Snæfells.

Aprílgabb Vísis
Fréttamenn á Visi leggja sig fram um að segja áreiðanlegar og góðar fréttir af málefnum líðandi stundar á hverjum degi.

Fönklistinn ekki endurvakinn af Kristni
Frétt bb.is í gær um að Kristinn H. Gunnarsson væri að endurvekja Fönklistann var aprílgabb eins og flestir glöggir lesendur gerðu sér grein fyrir. Í tilefni dagsins ákvað Bæjarins besta hins vegar að hrekkja lesendur sína örlítið meira og var með þrjú göbb í gangi. Ef til vill var trúverðugasta gabbið að hljómsveitin Queens of the stone age, sem vestfirski tónlistarmaðurinn Mugison fór í hljómleikaferð með í maí í fyrra, myndi troða upp á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður. En þar var einnig á ferðinni létt grín í tilefni dagsins. Þriðja gabbið var gert í von um að fólk myndi "hlaupa apríl“ eins og það er kallað, en engir háhyrningar voru á stjái í Sundahöfn á Ísafirði í gær heldur voru þeir færðir inn á ljósmynd með aðstoð tækninnar.

Fáir létu glepjast af aprílgabbi
„Nei, þeir voru ekki margir sem bitu á agnið, það komu kannski fimm og annar eins fjöldi spurðist fyrir um þetta í gegnum síma,“ segir Gísli Einarsson, eigandi myndasöguverslunarinnar Nexus.

Umfangsmesta aprílgabb gærdagsins
Bílasalan Bílamarkaðurinn í Kópavogi átti sennilega besta aprílgabbið í ár. Þröstur Karelsson sölustjóri Bílamarkaðsins segir að ákveðið hefði verið að setja hálfsíðu auglýsingu í Fréttablaðið og var hönnuð heimasíða í tilefni þess að nýr fjármögnunaraðili í bílalánum væri komin á Íslenskan markað, Brabus Invest sem byði Íslendingum uppá bílalán á þýskum 4.15% vöxtum, með m.a. möguleika á að taka gamla lánið upp í.

Fjöldi manna féll fyrir aprílgabbi Stöðvar 2
Fjöldi landsmanna hljóp apríl eftir að fréttastofa Stöðvar tvö sagði frá því í gær að Vodafone hefði landað samningi við Apple um sölu á iPhone símanum. Það var aprílgabb. Enginn iPhone sími er til sölu í verslunum Vodafone.

Urmull af aprílgöbbum
Fjölmargir hlupu apríl í gær enda voru aprílgöbb fjölmiðlanna einstaklega fjölbreytt að þessu sinni. Hér á Stöð 2 aðstoðaði Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, við sprellið og er óhætt að segja að hann hafi átt stórleik í hlutverki sínu.

Frétt um úrtökupróf vegna varaliðs var aprílgabb
Vegna fréttar okkar í gær um að úrtökuprófin fyrir nýtt varalið lögreglunnar hefðu farið fram um helgina vill fréttastofan koma því á framfæri að um aprílgabb var að ræða.