Innlendar

Fréttamynd

Pistillinn: Það sem hefur bjargað mér eru íþróttirnar

Að vera sáttur við sjálfan sig er ekki sjálfgefið. Eins og lífslöngunin, andagiftin, innileikinn og auðmýktin verður þessi sátt að koma innan frá og út. Hún kemur ekki af sjálfu sér. Eins og með hamingjuna verðum við að vinna fyrir þessari sátt.

Sport
Fréttamynd

Íslenskir tvíburar til liðs við dönsku meistarana

Blaklandsliðsmennirnir og tvíburarnir, Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir, hafa gengið til liðs við dönsku meistarana í Marienlyst. Bræðurnir hafa undanfarin tvö ár leikið með danska liðinu Aalborg en þar áður léku þeir með KA á Íslandi.

Sport
Fréttamynd

Gullstelpurnar úr Gerplu á ferðinni út á landi

Evrópumeistarar Gerplu í hópfimleikum hafa verið duglegar að kynna fimleika á landsbyggðinni og þær eru nú annað árið í röð á leiðinni í Fimleikahringinn. Í fyrra fóru stelpurnar á fimm staði í kringum landið en nú hafa þær bætt einum stað við og koma því við á sex stöðum.

Sport
Fréttamynd

Æfa sig í 40 stiga hita.

Íslenskt lið frá Crossfit Sport heldur á heimsleikana í CrossFit í Los Angeles í lok mánaðarins. Liðið sigraði í Evrópukeppninni í sömu íþrótt í júnímánuði. Um helgina bíðst gestum og gangandi að prófa stutta æfingu við allra hæfi í Sporthúsinu í Kópavogi.

Sport
Fréttamynd

Einar Daði í 15. sæti þegar tveimur greinum er ólokið

Einar Daði Lárusson frjálsíþróttakappi úr ÍR er í 15. sæti í tugþraut á Evrópumeistaramótinu fyrir 23 ára og yngri í Ostrava í Tékklandi. Átta greinum er lokið en Einar Daði á eftir að keppa í spjótkasti og 1500 metra hlaupi.

Sport
Fréttamynd

Einar Daði í 14. sæti eftir sjö greinar á EM U23

Einar Daði Lárusson frjálsíþróttakappi úr ÍR er í 14. sæti í tugþraut á Evrópumeistaramótinu fyrir 23 ára og yngri í Ostrava. Sjö greinum er lokið en Einar Daði keppti í morgun í 110 metra grindahlaupi og kringlukasti.

Sport
Fréttamynd

Björgvin hættur: Fékk ekki nægan stuðning

Fremsti skíðamaður Íslands undanfarin ár, Björgvin Björgvinsson, hefur lagt skíðin á hilluna. Hann segist ekki hafa fengið þann stuðning sem afreksíþróttamaður þarf að fá.

Sport
Fréttamynd

Anton Sveinn og Eygló Ósk stóðu sig vel á EM unglinga

Sundgarparnir Anton Sveinn McKee og Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi hafa farið á kostum á Evrópumeistaramóti unglinga í sundi í Serbíu. Eygló Ósk fékk silfurverðlaun í 200 metra baksundi en bæði settu þau Íslandsmet í flokki fullorðinna á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Bonifaciusfeðgar sigursælir í Kaliforníu

Íslensku feðgarnir Raj og Rafn Kumar Bonifacius voru sigursælir á tennismóti í Kaliforníu um helgina. Feðgarnir lentu í öðru sæti í tvíliðaleik feðga auk þess sem Raj sigraði í flokki öðlinga 40 ára og eldri.

Sport
Fréttamynd

Fannar Gauti vann silfur og brons á EM öðlinga

Fannar Gauti Dagbjartsson úr Breiðabliki vann til silfur- og bronsverðlauna á Evrópumóti öðlinga í Tékklandi í dag. Fannar Gauti sem keppir í öðlingaflokki 40-49 ára fékk silfur í bekkpressu og brons í réttstöðulyftu og samanlögðu.

Sport
Fréttamynd

Arna Stefanía í 22. sæti á HM 17 ára og yngri

Arna Stefanía Guðmundsdóttir úr ÍR lenti í 22. sæti í sjöþraut á heimsmeistaramóti 17 ára og yngri í Lille í Frakklandi. Arna Stefanía bætti sig í fimm greinum en slakur árangur í langstökki varð henni að falli.

Sport
Fréttamynd

Ragna úr leik í Rússlandi

Badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir er úr leik á Russian White Nights mótinu í morgun. Ragna mætti Mariu Kristinu Yulianti, bronsverðlaunahafanum frá Ólympíuleikunum í Peking 2008, í 8-liða úrslitum mótsins en beið lægri hlut 17-21 og 16-21.

Sport
Fréttamynd

Pistillinn: Ómetanlegur stuðningur

Frjálsar íþróttir flokkast að forminu til sem einstaklingsíþróttir en í mínum huga er það alls ekki svo. Jú vissulega fer ég ein út á hlaupabrautina og inn í kúluvarpshringinn. Ég get ekki stólað á að liðsfélagi minn komi mér til bjargar þegar ég lendi í vandræðum og úrslitin, hversu hratt ég hleyp eða langt ég kasta, velta eingöngu á minni eigin frammistöðu og engum öðrum.

Sport
Fréttamynd

Jón Margeir bætti tvö Íslandsmet

Jón Margeir Sverrisson bætti Íslandsmetið í 100 metra bringustundi á Evrópumóti fatlaðra í sundi í Berlín. Jón Margeir keppir í flokki S14, þroskahamlaðra og var hársbreidd frá því að ná í bronsverðlaun.

Sport
Fréttamynd

Nýr landsliðsþjálfari Íslands í alpagreinum

Árni Þór Árnason hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari fyrir alpagreinar. Árni Þór er íslenskum skíðamönnum kunnur hann var landsliðsmaður skíðasambandsins frá árinu 1978 til 1986 og keppti á Ólympíuleikum í Sarajevo 1984. Þetta kemur fram á heimasíðu skíðasambands Íslands.

Sport
Fréttamynd

Guðrún Gróa skiptir körfunni út fyrir kraftlyftingar

Körfuknattleikskonan Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir hefur ákveðið að söðla um og mun nú einbeita sér að því að æfa og keppa í kraftlyftingum. Hún stefnir á að ná langt á heimsvísu og útilokar ekki að keppa á Ólympíuleikum ásamt systur sinni, frjálsíþróttakonunni Helgu Margréti.

Sport
Fréttamynd

Landsmót UMFÍ 50+, opið áfram fyrir skráningar

Fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið á Hvammstanga um næstu helgi. Vegna fjölmargra fyrirspurna hefur verið ákveðið að áfram verði hægt að skrá sig til leiks á Landsmót UMFÍ 50 +. Keppnisgreinar á mótinu eru: blak, bridds, boccia, badminton, frjálsar íþróttir, fjallaskokk, hestaíþróttir, golf, pútt, línudans, skák, sund, þríþraut, starfsíþróttir (búfjardómar, dráttavélaakstur, jurtagreining, pönnukökubakstur og kökuskeyting).

Sport
Fréttamynd

Ísland í fimmta sæti að loknum fjórum greinum

Ísland er í fimmta sæti í Evrópubikarnum í frjálsum íþróttum þegar fjórum greinum er lokið. Keppnin stendur yfir á Laugardalsvelli. Aserbaídjsan er í efsta sæti með 53 stig en Ísland er í 5.-6. sæti ásamt Lúxemborg með 37 stig.

Sport
Fréttamynd

Bergur Ingi: Eigum ágætis möguleika

Þriðja deild Evrópubikarkeppninnar í frjálsum íþróttum fer fram á Laugardalsvelli um helgina. Fimmtán þjóðir mæta til leiks og er um að ræða fjölmennasta frjálsíþróttamót sem haldið hefur verið hér á landi. Sleggjukastarinn Bergur Ingi Pétursson segir Ísland eiga ágæta möguleika á að tryggja sér sæti í 2. deild.

Sport