Erlent

Fréttamynd

Bandaríkin opna í miklum mínus

Bandarískir fjárfestar eru uggandi yfir því að björgunaraðgerðir bandarískra stjórnvalda muni ekki nægja til að koma á fjármálalegum stöðugleika og auka magn lausafjár í umferð. Þá voru kaup bandaríska bankans Citigroup ekki næg til að róa fjárfesta.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Kosið til þings í Austurríki og Hvíta-Rússlandi

Austurríkismenn og Hvít-Rússar kjósa sér þing í dag. Í Austurríki er útlit fyrir að öfga hægriflokkar bæti við sig fylgi. Forseti Hvíta-Rússlands gerir sér vonir um að kosningarnar í heimalandi hans verði vesturveldunum þóknanlegar.

Erlent
Fréttamynd

Neyðarsjóður að verða til

Demókratar og repúblíkana á Bandaríkjaþingi hafa náð samkomulagi í meginatriðum um stofnun neyðarsjóðs fyrir bágstödd fjármálafyrirtæki í Bandaríkjunum. Eftir er að hnýta lausa enda og stefnt að því að greiða atkvæði um frumvarpið í fulltrúadeild þings í dag.

Erlent
Fréttamynd

Samdráttur á Nýja-Sjálandi

Hagvöxtur jókst um 2,6 prósent á fyrri hluta árs á Nýja-Sjálandi, samkvæmt nýjustu gögnum hagstofu landsins.Samkvæmt þeim dróst hagvöxtur saman um 0,3 prósent á fyrsta ársfjórðungi og um 0,2 prósent á öðrum fjórðungi.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Óvæntur halli á japönskum vöruskiptum

Halli var á vöruskiptum upp á 324 milljarða jena í Japan í síðasta mánuði, samkvæmt útreikningum hagstofu landsins. Niðurstöðurnar komu mjög á óvart en þykja vísbendingar um að harðna muni í ári í landi hinnar rísandi sólar á næstu misserum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Flugrekstrarleyfi Alitalia í hættu

Svo getur farið að punkturinn verði settur aftan við sögu ítalska flugfélagsins Alitalia í dag en ítölsk flugmálayfirvöld hótuðu í dag að fella flugrekstrarleyfi félagsins niður skili stjórnendur þess ekki nýrri rekstraráætlun í lok dags.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Bjartsýni eftir nýjustu kaup Buffetts

Bandarískur hlutabréfamarkaður opnaði í plús í dag. Erlendir fjölmiðlar segja tilkynningu Goldman Sachs um kaup Berkshire Hathaway, fjárfestingafélagsins sem bandaríski auðjöfurinn Warren Buffett hefur stýrt með glans í rúm fjörutíu ár, skýra hækkunina að langmestu leyti.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Þingmenn efast um björgunaraðgerðirnar

Gengi hlutabréfa lækkaði almennt á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en fjárfestar þykja sjá vísbendingar þess efnis að björgunaraðgerðir bandarískra stjórnvalda til að sveigja framhjá samdráttarskeiði vestanhafs muni ekki hljóta brautargengi hjá bandarískum þingheimi.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Paulson og Bernanke: Nauðsynlegt að grípa til aðgerða

„Björgunaraðgerðir stjórnvalda munu kosta bandaríska skattgreiðendur mun minna en eftir ekkert hefði verið gert,“ sagði Henry Paulson, fjármálaráðherra í þingvitnaleiðslu fyrir bankamálanefnd bandaríska þingsins í dag. Þar gerði hann grein fyrir verðfalli á fjármálamörkuðum og þrengingum á fasteignamarkaði vestra ásamt Ben Bernanke, seðlabankastjóra landsins og Christopher Cox, forstjóra bandaríska fjármálaeftirlitsins.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Kaupþing niður í Svíþjóð

Gengi hlutabréfa í Kaupþingi, sem skráð eru á markað í Stokkhólmi í Svíþjóð, hefur lækkað um 0,47 prósent í dag. Fall á bandarískum hlutabréfamarkaði í gær smitaði út frá sér um allan heim í dag.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Mikill skellur á Wall Street

Helstu hlutabréfavísitölur féllu verulega á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Skellurinn skýrist af hagnaðartöku fjárfesta eftir mikla hækkun vestanhafs á föstudag auk þess sem þeir festu fjármuni sína í tryggu skjóli, svo sem í gulli, olíu og annarri hrávöru.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Japanir taka Asíuhluta Lehmans

Japanska fjármálafyrirtækið Nomura Holdings hefur skrifað undir samkomulag um kaup á dótturfyrirtækjum og starfsemi bandaríska fjárfestingabankans Lehman Brothers í Asíu. Starfsemi fyrirtækisins í Suður-Kóreu er þar undanskilin, að sögn breska viðskiptablaðsins Financial Times.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Mikil hækkun á Wall Street

Fjárfestar í Bandaríkjunum tóku fagnandi stórtækum björgunaraðgerðum bandaríska ríkisins sem tilkynntar voru í dag og felast í því að sérstakur sjóður verði settur á laggirnar sem tekur við öllum - eða velflestum - eignum bandarískra banka og fjármálafyrirtækja sem eru orðnar næsta verðlausar og illseljanlegar eftir fall á bandarískum fasteignalánamarkaði.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

„Nauðsynlegar aðgerðir,“ segir Bush

„Þær stundir hafa komið upp í bandarískri sögu að nauðsynlegt hefur verið að grípa til aðgerða. Sú stund er runnin upp,“ sagði George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, á blaðamannafundi fyrir utan Hvíta húsið í Washington í Bandaríkjunum fyrir stundu að loknum fundi með Henry Paulson, fjármálaráðherra landsins, Christopher Cox, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, og fleirum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Evrópskir seðlabankar dæla fé inn á markaði

Seðlabankar á meginlandi Evrópu ákváðu í dag að veita rúmum 60 milljörðum evra, jafnvirði um 8.400 milljarða íslenskra króna, inn í fjármálakerfið til að hífa upp væntingar, blása lífi í millibankalánamarkaðinn og koma í veg fyrir frekari hremmingar á mörkuðum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Myndband af flugslysinu í Madrid

Spænska blaðið El Pais hefur komist yfir myndband sem sýnir þegar Spanair flugvélin fórst í flugtaki í Madrid hinn 20. ágúst síðastliðinn.

Erlent
Fréttamynd

Kaupþing hækkar um 8% í Svíþjóð

Gengi hlutabréfa í Kaupþingi, sem skráð eru í kauphöllina í Svíþjóð, hefur hækkað um tæp átta prósent í dag. Gengi bréfa í Storebrand og Sampo, sem Kaupþing og Exista eiga stóra hluti í, hefur hækkað um tæp tíu prósent. Þetta er í takti við mikla jákvæðni á erlendum hlutabréfamörkuðum eftir fulltrúar Bandaríkjaþings, fjármálaráðherra landsins og seðlabankastjóra, ákváðu í gær að að stofna sérstakan sjóð til að kaupa undirmálslán af bankakerfinu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fjárfestar kættust vestanhafs

Dagurinn endaði með látum á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag eftir að bandaríska viðskiptasjónvarpsstöðin CNBC greindi frá því síðdegis að Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, væri að íhuga að koma á laggirnar sérstökum tryggingasjóði sem bankar gætu sótt í í skiptum fyrir gjaldfallin lán.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rússar vilja selja Írönum loftvarnaflaugar

Rússar eiga í samningum við Írani um að selja þeim nýtt eldflaugavarnakerfi. Það myndi veita Íran meiri vernd en það nú hefur gegn hugsanlegum loftárásum Bandaríkjamanna eða Ísraela á kjarnorkuver landsins.

Erlent
Fréttamynd

Alitalia á leið í gjaldþrot

Ítalska flugfélagið Alitalia verður að líkindum sett í gjaldþrot á næstu dögum, eftir að ítalska samsteypan CAI hætti við að kaupa það.

Erlent
Fréttamynd

Sérstæð sól yfir Kúbu

Þótt nokkrir dagar séu liðnir frá því fellibylurinn Ike herjaði á Kúbu gerast þar enn undarlegir hlutir á himni.

Erlent
Fréttamynd

Fílar flottir í baði

Fílar kunna vel við sig í vatni og börn elska að skoða fíla. Þetta tvennt fer vel saman í dýragarðinum í Leipzig í austur Þýskalandi.

Erlent