Sportpakkinn

Sportpakkinn: Vitum að Flamengo er gott lið en við vitum einnig hve góðir við erum
Liverpool varð í gær fyrsta enska félagið til að komast í tvo úrslitaleiki í heimsmeistarakeppni félagsliða og er einu skrefi nær því að verða heimsmeistarar í fyrsta sinn. Arnar Björnsson skoðaði viðtöl við nokkra Liverpool menn eftir sigurinn í undanúrslitaleiknum á móti Monterrey.

Sportpakkinn: Átján ára hollenskur landsliðsmaður hetja Bayern í sínum fyrsta leik
Bayern er enn fjórum stigum á eftir efstu liðum þýsku deildarinnar eftir leikina í gær en það munaði ekki miklu að munurinn væri enn meiri. Arnar Björnsson skoðaði leiki gærdagsins í þýsku bundesligunni og óvænta hetju Bæjara.

Sportpakkinn: Buffon jafnaði met en ótrúlegt NBA-hopp CR7 stal fyrirsögnunum
Cristiano Ronaldo hefur kannski verið óvenjulítið í umræðunni að undanförnu en það breyttist í gærkvöldi þegar magnað skallamark hans kom Juventus aftur í toppsæti deildarinnar. Arnar Björnsson skoðaði leikinn og þetta mark Cristiano Ronaldo sem svo margir eru að tala um.

Sportpakkinn: Buffon jafnar leikjamet Maldini í kvöld
Juventus sækir Sampdoria heim í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sportpakkinn: Enska vonarstjarnan Jadon Sancho skoraði í sjöunda leiknum í röð
Arnar Björnsson skoaði leik Dortmund og Leipzig í þýsku Bundesligunni í gærkvöldi en hann var frábær skemmtun. Liðin eru bæði í toppbaráttunni og buðu upp á markaleik þar sem Dortmund gætur tvö töpuð stig.

Sportpakkinn: Barcelona og Real jöfn á toppnum fyrir áhugaverðan „El Clásico“
Barcelona og Real Madrid mætast í kvöld í spænsku 1. deildinni í fótbolta. Upphaflega áttu liðin að spila 26. október en leiknum var frestað vegna átaka í Barcelona í kjölfar dóms á nokkrum leiðtogum katalónskra sjálfstæðissinna. Arnar Björnsson skoðaði kringumstæður leiksins í kvöld.

Sportpakkinn: Sanngjarnt að hafa þetta uppi á borðinu og sleppa feluleiknum
Gunnar Magnússon færir sig um set frá Haukum til Aftureldingar í sumar.

Sportpakkinn: Tvö á toppnum á Ítalíu
Arnar Björnsson fór yfir gang mála í ítalska fótboltanum um helgina en umferðin klárast síðan með hörku leik í beinni á Stöð 2 Sport 3 í kvöld.

Sportpakkinn: 84 ára í ellefu klukkutíma maraþoni á Suðurpólnum
Hann kom ekki fyrstur í mark en vakti samt líklega mestu athyglina í hinu árlega maraþonhlaupi á Suðurpólnum. Arnar Björnsson skoðaði aðeins betur hinn magnaða 84 ára gamla Roy Jorgen Svenningsen.

Sportpakkinn: „Björgvin hefur staðið sig betur og betur í Danmörku“
Guðmundur Guðmundsson segir stöðuna á íslensku landsliðsmönnunum í handbolta almennt góða.

Sportpakkinn: Nýr þjálfari Fylkis vill fjölga bestu dögum liðsins
Fylkismenn vilja gera betur næsta sumar en í fyrra.

Sportpakkinn: Lárus vill að Ísland verði í fararbroddi þegar kemur að skotum í höfuð markvarða
Lárus Helgi Ólafsson, markvörður Framara í Olísdeild karla í handbolta, hefur að eigin sögn fengið fimmtán skot í höfuðið á þessu tímabili. Guðjón Guðmundsson hitti Lárus Helga og ræddi áhyggjur hans af því að veta ítrekað skotinn niður í markinu.

Sportpakkinn: Nýr íþróttamaður ársins hjá fötluðum vann jólalagakeppni Rásar tvö fyrr í dag
Már Gunnarsson og Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir voru í dag valin íþróttafólk ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra.

Sportpakkinn: Tiger Woods ekki kátur eftir fyrsta dag Forsetabikarsins
Heimsúrvalið er óvænt komið með góða forystu eftir fyrsta daginn í Forsetabikarnum í golfi en Bandaríkjamenn töpuðu fjórum af fimm fjórleikjum sínum í nótt. Arnar Björnsson skoðaði þessa óvæntu byrjun í Melbourne.

Sportpakkinn: Íþróttafólk á Íslandi hefur þurft að hætta á toppnum vegna peningaleysis
Þrír fulltrúar íslenskra afreksíþróttamanna mættu í mennta- og menningarmálaráðuneytið í hádeginu og afhentu ráðherra bréf undirritað af hópi íþróttamanna sem vekja athygli á réttindaleysi afreksíþróttamanna. Arnar Björnsson hitti íþróttafólkið í dag.

Sportpakkinn: 556 dagar Carlo Ancelotti hjá Napoli
Carlo Ancelotti missti starfið sitt hjá ítalska félaginu Napoli í gær þrátt fyrir 4-0 stórsigur og sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Arnar Björnsson skoðaði tíma Carlo Ancelotti og viðbrögð leikmanna Napoli við brottrekstri hans.

Sportpakkinn: „Golfnördinn“ Tiger Woods mætir með sitt lið til leiks í Forsetabikarnum
Forsetabikarinn í golfi er framundan á Stöð 2 Golf og þar mun reyna á Tiger Woods bæði sem kylfing og sem fyrirliða bandaríska liðsins. Arnar Björnsson skoðaði betur Forsetabikarinn sem hefst í Ástralíu í kvöld.

Sportpakkinn: Valur á flugi
Valsmenn eru komnir í gang eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

Sportpakkinn: „Aldrei gaman að geta ekki greitt fólki“
Knattspyrnudeild FH hefur átt í fjárhagserfiðleikum og hefur gripið til niðurskurðaraðgerða.

Sportpakkinn: Fyrstu sigur HK í efstu deild í 56 mánuði
Davíð Svansson var hetja HK þegar hann varði lokaskot leiksins og tryggði þar HK sín fyrstu stig í deildinni

Sportpakkinn: Syndir í tvo sólarhringa til styrktar átaki UNICEF
„Ég hef það fínt en það eru bara ekki allir svo lánsamir“, Einar Hansberg Árnason er hálfnaður með tveggja sólarhringa sund til styrktar átaki Unicef, "Stöðvum feluleikinn.“

Sportpakkinn: „Ég vil vinna og sé fyrir mér að ég geti gert það hjá Stjörnunni“
Gunnar Ólafsson er genginn í raðir Stjörnunnar.

Sportpakkinn: Leikmenn Gróttu fá ekki greidd nein laun í Pepsi Max deildinni næsta sumar
Ágúst Gylfason, nýráðinn þjálfari Gróttu, ætlar ekki að breyta þeim gildum sem skiluðu Gróttu óvænt sæti í efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Sportpakkinn: Grafa hitamæla ofan í Laugardalsvöll og leita til fjölda sérfræðinga
Knattspyrnusamband Íslands og starfsmenn Laugardalsvellar þurfa að gera miklu miklu meira en að leggja hitadúk yfir Laugardalsvöllinn ef völlurinn á að vera klár fyrir umspilsleikinn á móti Rúmeníu í mars.

Sportpakkinn: Rapinoe hefur farið með kvennafótboltann í rétta átt
Arnar Björnsson fór betur yfir magnað ár hjá hinni bandarísku Megan Rapinoe sem á árinu 2019 vann allar viðurkenningar sem hún gat unnið á þessu magnaða ári sínu. Þar á meðal er Gullboltann sem hún fékk í gær.

Sportpakkinn: FH gekk betur að hemja Hauk en önnur lið í vetur
Íslandsmeistarar FH eru komnir niður í sjötta sæti Olís deildar karla eftir að FH-ingum tókst að halda markahæsta leikmanni deildarinnar, Hauki Þrastarsyni, í fjórum mörkum í sannfærandi sigri sínum á Selfossi í gær. Arnar Björnsson skoðaði betur leikinn í Hleðsluhöllinnni í gær.

Sportpakkinn: „Það eru spennandi tímar hjá Liverpool og hollenska landsliðinu“
Lionel Messi vann Gullboltann í sjötta sinn í gær en Arnar Björnsson skoðaði betur manninn sem endaði í öðru sætinu en Virgil van Dijk átti magnað ár með Liverpool og hollenska landsliðinu.

Sportpakkinn: Hamilton bjóst aldrei við svona tímabili
Lewis Hamilton vann yfirburðasigur í formúlu eitt á þessu tímabili en hann var löngu búinn að tryggja sér sigurinn áður en kom að síðustu keppninni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær. Arnar Björnsson skoðaði endapunktinn á ótrúlegu tímabili breska heimsmeistarans.

Sportpakkinn: Besta byrjun Inter í 88 ára sögu félagsins
Góðir hlutir eru að gerast hjá Internazionale í ítalska boltanum sem tók toppsætið af Juventus um helgina. Arnar Björnsson skoðaði betur hvað gerðist í fjórtándu umferð Seríu A.

Sportpakkinn: Tveir bestu menn deildarinnar mætast á Selfossi í kvöld
Selfoss og FH mætast í síðasta leiknum í 12. umferð Olísdeildar karla í handbolta á Selfossi í kvöld. Þetta verður þriðja rimma liðanna í vetur og Arnar Björnsson skoðaði nánast stórleik kvöldsins.