Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
Fimm leikjum frestað vegna smitsins
KSÍ hefur frestað fimm leikjum eftir að leikmaður Breiðabliks í fótbolta kvenna greindist með kórónuveirusmit. Ekki stendur til að fresta öðrum leikjum en leikjum Breiðabliks og KR í Pepsi Max-deild kvenna.
Ráðuneytisfólk í sóttkví eftir að starfsmaður greindist með Covid-19
Starfsmaður sagður hafa smitast af knattspyrnukonu úr Kópavogi.
Boða til blaðamannafundar klukkan 16
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum klukkan 16. Efni fundarins er skimun ferðamanna á landamærum.
Mögulegt að 20 milljónir Bandaríkjamanna hafi fengið veiruna
Sérfræðingar hjá Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, telja að allt að 20 milljónir Bandaríkjamanna hafi sýkst af kórónuveirunni sem valdið getur Covid-19. Tæplega tvær og hálf milljón hafa greinst með veiruna í Bandaríkjunum, samkvæmt opinberum tölum.
Rannsókn á máli Rúmenanna lokið
Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á málum þriggja Rúmena, sem grunaðir eru um búðarhnupl, er lokið.
Dómarar, Blikar og KR-ingar í sóttkví en ekki Selfyssingar
Dómarar, leikmenn og þjálfarar í leik Breiðabliks og KR í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta síðasta þriðjudag þurfa að fara í sóttkví eftir að leikmaður Breiðabliks greindist með kórónuveirusmit í dag.
Leikmaður Breiðabliks smitaður
Leikmaður kvennaliðs Breiðabliks í fótbolta hefur greinst með kórónuveirusmit. Liðsfélagar og þjálfarar hennar, sem og leikmenn og þjálfarar KR, þurfa nú að fara í tveggja vikna sóttkví.
„Ég sá lík borið út af hjúkrunarheimilinu“
Jóhannes Kr Kristjánsson blaðamaður og Sævar Guðmundsson leikstjóri hafa elt þríeykið svokallaða baksviðs undanfarna mánuði til þess að gera heimildarþætti um Covid faraldurinn á Íslandi.
Framlengja samning um lágmarksflug til Boston
Samningurinn kveður á um að flogið verði minnst tvisvar í viku til Boston á tímabilinu.
Þrír greindust með veiruna við landamærin annan daginn í röð
Þrír greindust með kórónuveiruna við landamæraskimun síðasta sólarhringinn, samkvæmt nýjustu tölum á Covid.is.
„Búið að vera mjög erfitt og ég hef aldrei unnið eins margar vaktir á ævi minni“
Mikið hefur verið rætt um aðgerðir sænskra sóttvarnaryfirvalda vegna Covid-19 faraldursins en Svíar hafa beitt mun vægari aðferðum til að hefta útbreiðslu veirunnar en flestar aðrar þjóðir og lokuðu til að mynda aldrei kaffihúsum og veitingastöðum.
Fólk frá ákveðnum ríkjum Bandaríkjanna sæti tveggja vikna sóttkví
Yfirvöld í New York, New Jersey og Connecticut hafa ákveðið að fólk sem kemur frá ríkjum þar sem kórónuveiran er enn í miklum vexti skuli sæta tveggja vikna sóttkví við komuna til ríkjanna.
Eiffel-turninn opnaður á ný
Eiffel-turninn í París hefur verið lokaður í rúma þrjá mánuði vegna faraldurs kórónuveirunnar.
Johnson fullyrti að ekkert land væri með smitrakningarapp sem virkar
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi breska Íhaldsflokksins, hefur verið nokkuð harðlega gagnrýndyr eftir að hann fullyrti að aðgerðir breskra stjórnvalda til að auðvelda rakningu á kórónuveirusmitum gengju vel, og að ekkert land hefði enn komið á fót smitrakningarappi sem virkar.
Vonast eftir því að skimun á Keflavíkurflugvelli verði hætt sem fyrst
Forstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals útsýnar segist vonast til þess að skimunum vegna kórónuveirunnar á Keflavíkurflugvelli verði hætt sem fyrst. Þórunn Reynisdóttir, forstjóri ferðaskrifstofunnar ræddi við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Ólíklegt að Bandaríkin teljist til öruggra landa
Ólíklegt er að Bandaríkjamenn fái að koma til Íslands þegar ytri landamæri Schengen verða opnuð um mánaðarmótin að sögn dómsmálaráðherra. Sóttvarnarlæknir telur áhyggjuefni að hleypa bandarískum ferðamönnum til landsins.
Undirrituðu samninga um stuðningslán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Seðlabankinn hefur undirritað við samninga við fjóra banka um veitingu stuðningslána til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Ekki spenntur fyrir komu Bandaríkjamanna
Ekki liggur fyrir hvernig opnun ytri landamæra Schengen-svæðisins verður háttað en þó er stefnt að sameiginlegri framkvæmd ríkjanna í þeim efnum.
Vill að skimað verði út júlí hið minnsta
Aðeins tveir ferðamenn af þeim um það bil átta þúsund sem farið hafa í skimun vegna kórónuveirunnar á landamærum Íslands hafa reynst með virkt smit. Sóttvarnarlæknir vill að skimað verði áfram út næsta mánuð hið minnsta.
Segja niðurgreitt sumarnám í háskólum bitna hart á einkareknum fræðslufyrirtækjum
Félag atvinnurekenda hefur sent menntamálaráðherra erindi vegna útfærslu á stuðningi stjórnvalda við sumarnám sem viðbrögð við áhrifum kórónuveirunnar.
2000 megi koma saman 13. júlí og lengdur opnunartími skemmtistaða til skoðunar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst leggja það til við heilbrigðisráðherra á næstunni að takmörkunum vegna kórónuveirunnar verði næst aflétt 13. júlí næstkomandi.
Svona var 79. upplýsingafundur almannavarna
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur boðað til upplýsingafundar klukkan 14:00 í dag.
Hvorki Guðni né Guðmundur halda kosningavöku
Hvorki Guðmundur Franklín Jónsson né Guðni Th. Jóhannesson, frambjóðendur í forsetakosningnum, munu halda opinberar kosningavökur að kvöldi kjördags, næstkomandi laugardagskvöld, líkt og venja er.
Byrja að fljúga Íslendingum til Alicante og Tenerife í júlí
Beint áætlunarflug frá Íslandi til Alicante og Tenerife á Spáni hefst á ný í júlí.
Þrír greindust með veiruna við landamæraskimun
Virk smit á landinu eru nú níu, en voru átta í gær. Tveir hafa þá náð bata síðan í gær.
Sex sveitarfélög fái samtals 150 milljónir króna
Sex sveitarfélög fá samtals 150 milljóna króna framlag frá ríkinu nái tillögur meirihluta fjárlaganefndar fram að ganga. Þá er gert ráð fyrir allt að 4,5 milljarða króna heimild til Ferðaábyrgðasjóðs vegna endurgreiðslu pakkaferða.
Boðað til upplýsingafundar í dag
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur boðað til upplýsingafundar klukkan 14:00 í dag.
Metfjöldi nýsmitaðra á Indlandi
Yfirvöld Indlands opinberuðu í dag að 16 þúsund nýsmitaðir af Covid-19 hafi greinst þar í landi og hefur sú tala aldrei verið hærri. Her Indlands hefur verið kallaður til til að byggja sjúkrahús í Nýju Delí, höfuðborg Indlands.
Tripical bíður eftir næstu skrefum ríkisstjórnarinnar
Elísabet Agnarsdóttir, eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical, segir ekkert liggja fyrir um framhaldið hjá ferðaskrifstofunni fyrr en ríkisstjórnin hefur ákveðið næstu skref.
Fjárfesta í tvöfaldri vinnuaðstöðu og fjölga starfsfólki
Stjórnendur CCP gera ráð fyrir að í framtíðinni muni starfsfólk vinna að hluta til heiman frá og að hluta til á staðnum. Fyrirtækið fjárfestir í veglegum heimaskrifstofum fyrir tugi milljóna og fjölgar starfsfólki.