
Afturelding

KR tryggði sér sæti í Pepsi Max deild kvenna | FH og Afturelding mætast í úrslitaleik
Þrem leikjum í Lengjudeild kvenna er nú lokið í dag. KR tryggði sér sæti í Pepsi Max deildinni með 2-0 sigri gegn Haukum, Afturelding vann ÍA 2-0, en FH var eina liðið í toppbaráttunni sem tapaði stigum þegar að liðið tapaði 4-2 gegn Víking R.

Kórdrengir halda lífi í baráttunni um sæti í efstu deild
Nú rétt í þessu lauk tveimur leikjum í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Kórdrengir unnu mikilvægan 4-0 heimasigur gegn föllnum Víkingum frá Ólafsvík og halda því enn í vonina um sæti í efstu deild. Á sama tíma gerðu Afturelding og Vestri 2-2 jafntefli.

Þrjú rauð spjöld á loft þegar KR endurheimti toppsæti Lengjudeildarinnar
Heil umferð var á dagskrá í Lengjudeild kvenna í kvöld. KR-ingar unnu Aftureldingu 3-0 í toppslag deildarinnar þar sem að þrjú rauð spjöld fóru á loft, Grótta vann 2-1 sigur á Aftureldingu, Haukar unnu Augnablik 3-2, Víkingur vann 4-1 sigur gegn ÍA og Grindvíkingar gerðu 4-4 jafntefli gegn FH.

Haukar sigruðu Ragnarsmótið á Selfossi
Leikið var til úrslita á Ragnarsmótinu í handbolta á Selfossi í dag, en spilað var um fyrsta, þriðja og fimmta sætið. Ríkjandi deildarmeistarar Hauka höfðu betur gegn Fram í úrslitaliknum, 27-20.

Þrjú efstu liðin með sigra í Lengjudeild kvenna
Þrjú efstu lið Lengjudeildar kvenna, KR, FH og Afturelding, unnu öll sína leiki í kvöld. Afturelding vann 3-0 sigur gegn botnliði Augnabliks, KR vann 6-0 stórsigur gegn Víking R. og FH vann 3-2 sigur gegn fallbaráttuliði HK.

FH með tveggja stiga forskot á toppi Lengjudeildarinnar
Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í kvöld. FH náði tveggja stiga forskoti á toppnum með 1-0 sigri gegn ÍA á meðan að KR gerði 3-3 jafntefli gegn Grindavík. Afturelding fer upp í annað ætið eftir 4-2 sigur gegn Gróttu og HK lyfti sér upp úr fallsæti með 2-1 sigri gegn Haukum.

Kórdrengir halda í við toppliðin og toppliðið fór létt með botnliðið
Kórdrengir og Framarar taka þrjú stig með sér á koddann úr þeim tveim leikjum sem fram fóru í Lengjudeild karla í kvöld. Kórdrengir unnu sterkan 2-1 sigur þegar Afturelding mætti í heimsókn og Topplið Fram vann öruggan 3-0 sigur gegn botnliði Víkinga frá Ólafsvík.

ÍBV og Afturelding með mikilvæga sigra í toppbaráttu
Tveir leikir fóru fram í dag í Lengjudeildum karla og kvenna. ÍBV og Afturelding unnu sitt hvorn mikilvægan sigurinn.

Þjóðhátíðarsigur í Vestmannaeyjum
Einn leikur fór fram í íslenskum fótbolta í dag og var hann leikinn á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum þar sem ÍBV tók á móti Aftureldingu.

Afturelding fær túniskan landsliðsmann
Aftureldingu hefur hlotist liðsstyrkur fyrir komandi átök í Olís-deild karla í handbolta. Þeir sömdu við Túnisbúann Hamza Kablouti.

Kórdrengir nálgast toppbaráttuna og Grótta og Afturelding fjarlægjast botnbaráttuna
Þrem leikjum var að ljúka í Lengjudeild karla. Kórdrengir sóttu þrjú stig á Selfoss með 1-0 sigri, Grótta vann sterkan 2-1 sigur gegn Fjölni á heimavelli og Afturelding átti ekki í vandræðum með Víking frá Ólafsvík þegar þeir unnu 6-1.

Stjarnan fær liðsstyrk úr Mosfellsbæ
Handboltalið Stjörnunnar hefur gengið frá þriggja ára samningi við markvörðinn Arnór Frey Stefánsson, sem kemur til liðsins frá Aftureldingu.

Markaregn á Selfossi og sterkur sigur Aftureldingar
Tveim leikjum er nú lokið í Lengjudeild karla í dag. Hrvoje Tokic skoraði þrennu fyrir Selfyssinga sem unnu 5-3 sigur gegn Víkingum frá Ólafsvík og Afturelding náði í tigin þrjú gegn Þrótti R. með sterkum 3-1 útisigri.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Afturelding 5-0 | Auðvelt í Kópavogi
Breiðablik er komið í undanúrslit í Mjólkurbikarnum eftir sannfærandi sigur á Aftureldingu á Kópavogsvelli. Lokatölur 5-0.

„Stefnum á að vinna titla á næsta ári“
„Alla leið. Eins langt og ég get komist,“ segir hinn 19 ára gamli Blær Hinriksson, aðspurður hvert hann stefni. Blær var í gær útnefndur efnilegasti leikmaður Olís-deildarinnar í handbolta í vetur eftir að hafa stimplað sig vel inn á sinni fyrstu leiktíð með Aftureldingu.

Rut og Árni Bragi best og Rakel Sara og Blær efnilegust
Rut Jónsdóttir og Árni Bragi Eyjólfsson voru valin bestu leikmenn Olís-deildanna í handbolta á lokahófi HSÍ.

KR enn á toppnum eftir jafntefli í toppslag Lengjudeildar kvenna
Fimm leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í dag. KR og Afturelding gerðu 1-1 jafntefli í toppslag deildarinnar, FH sigraði Grindavík 1-0, Haukar unnu góðan 3-1 útisigur gegn Augnablik, HK sigraði Gróttu 2-1 og Víkingur R. vann 5-1 stórsigur gegn ÍA á Akranesi.

Grindavík lagði 10 Gróttumenn í lokin - Martin með tvö í Mosfellsbæ
Grindavík fór upp fyrir Kórdrengi í annað sæti Lengjudeildar karla í fótbolta í kvöld eftir 3-1 sigur á Gróttu. Þá voru sex mörk skoruð í Mosfellsbæ.

Hefur skrifað sína 76.918. og síðustu frétt
Magnús Már Einarsson hefur látið af störfum sem ritstjóri Fótbolta.net. Hann hefur unnið hjá vefnum undanfarin nítján ár, eða síðan hann var þrettán ára.

Afturelding áfram á toppnum og fyrsti sigur HK
Afturelding vann 3-1 sigur á Gróttu í 5. umferð Lengjudeildar kvenna og er því Afturelding áfram á toppi deildarinnar.

Dramatík í Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi
Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Mikill hiti var í tveimur af þremur leikjum kvöldsins.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Afturelding 36-22 | Gat vart verið þægilegra hjá deildarmeisturunum
Haukar voru í einkar góðum málum fyrir leik kvöldsins gegn Aftureldingu en deildarmeistararnir unnu fyrri leik liðanna með tíu marka mun. Leik kvöldsins unnu þeir með 14 marka mun og einvígið með 24 mörkum hvorki meira né minna.

Gunnar um tímabilið: Feginn að tímabilinu sé lokið
Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingar var stoltur af sínu liði eftir leik sem datt út í 8-liða úrslitum á móti deildarmeisturum Hauka.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Afturelding 0-2 | Mosfellingar í 8-liða úrslit
Afturelding er komin í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í fótbolta eftir 2-0 sigur á Grindavík suður með sjó í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Haukar 25-35 | Óárennilegir deildarmeistarar í kjörstöðu
Haukar unnu sannfærandi tíu marka sigur á Aftureldingu, 35-25 í Mosfellsbænum.

KR sótti þrjú stig í Hafnarfjörð og Afturelding á toppnum
KR vann 2-0 sigur á FH er liðin mættust í Skessunni í Hafnarfirði í fjórðu umferð Lengjudeildar kvenna.

Annar sigur Þórsara á heimavelli
Þór er komið með sex stig í Lengjudeild karla eftir að Þórsarar unnu 2-1 sigur á Aftureldingu á heimavelli í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Valur 25-34 | Valsmenn náðu 3. sætinu
Valur vann öruggan sigur á Aftureldingu, 25-34, í lokaumferð Olís-deildar karla í kvöld. Þar sem Stjarnan tapaði fyrir Fram á sama tíma endaði Valur í 3. sæti deildarinnar. Valsmenn mæta KA-mönnum í átta liða úrslitum.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Afturelding 27-27 | Mosfellingar náðu í stigið sem til þurfti
Afturelding þurfti stig til að tryggja sæti sitt í úrslitakeppni Olís deildar karla í handbolta. Það kom er liðið gerði 27-27 jafntefli við ÍBV í Vestmannaeyjum í dag.

Afturelding hristi ÍR-inga af sér á seinasta korterinu
Afturelding tók á móti föllnum ÍR-ingum í Olís-deild karla í dag. Leikurinn var nokkuð jafn fyrstu 45 mínúturnar, en þá náðu Mosfellingar góðu forskoti og kláruðu að lokum góðan sex marka sigur, 33-27.