Fótbolti
177 178 179 180 181 182 183 184 185 … 334 ›
Opnar sig um árásina: „Hélt að ég myndi bara liggja þarna“ Franska knattspyrnukonan Kheira Hamraoui átti sér einskis ills von þegar tveir grímuklæddir menn réðust að henni og börðu hana með járnröri, svo illa að hún hélt að hún gæti aldrei aftur staðið upp. Fótbolti 15.6.2022 12:01
Breiðablik vildi áfrýja leikbanni Omar Sowe: Beiðninni hafnað Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, óskaði eftir að áfrýja niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar Knattspyrnusambands Íslands í máli Omar Sowe. Hann var dæmdur í tveggja leikja bann eftir að stuðst var við myndbandsupptöku af atviki sem átti sér stað í leik Leiknis Reykjavíkur og Breiðabliks. Íslenski boltinn 15.6.2022 11:00
Bæjarar fengu einn eftirsóttasta mann Evrópu á gjafaprís Hollenski miðjumaðurinn Ryan Gravenberch er genginn í raðir Þýskalandsmeistara Bayern München. Hann kemur frá Ajax á sannkölluðu gjafaverði. Fótbolti 15.6.2022 10:31
Sögulegt tap Englands Ungverjar komu, sáu og gjörsigruðu er þeir mættu Englandi í Þjóðadeildinni í fótbolta á þriðjudag. Lokatölur 4-0 gestunum í vil og sögulegt tap Englendinga staðreynd. Fótbolti 15.6.2022 09:31
Elín Metta fór meidd af velli og EM mögulega í hættu Elín Metta Jensen, framherji Íslandsmeistara Vals og íslenska landsliðsins, meiddist er Valur heimsótti Selfoss í Bestu deild kvenna á þriðjudag. Gestirnir frá Hlíðarenda unnu 1-0 útisigur en Elín Metta þurfti að fara meidd af velli eftir rúmlega klukkustundarleik. Íslenski boltinn 15.6.2022 08:31
Apple kaupir réttinn að Arnóri, Róberti, Þorleifi og félögum í MLS-deildinni fyrir metfé Hugbúnaðarrisinn Apple hefur keypt sýningarréttinn að MLS-deildinni í fótbolta fyrir tvo og hálfan milljarð Bandaríkjadala. Samsvarar það tæplega 332 milljörðum íslenskra króna. Samningurinn gildir til tíu ára. Fótbolti 15.6.2022 08:00
Hlutabréf Man Utd aldrei lægri: Eigendurnir greiða sér samt arð Segja má að Manchester United hafi náð því sem virðist vera botninn með frammistöðu sinni innan vallar sem utan á liðnu tímabili. Það er allavega staðreyndin ef horft er á hvers virði félagsins er fjárhagslega. Enski boltinn 15.6.2022 07:02
„Auðvitað þarf að fagna góðum sigrum“ Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, varð eðlilega sáttur með 3-0 útisigur liðsins gegn Þrótti í Bestu-deild kvenna í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 14.6.2022 23:12
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R.-Breiðablik 0-3 | Blikar skutu sér upp í annað sæti Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur Breiðablik nú unnið þrjá leiki í röð. Liðið er komið upp í annað sæti Bestu-deildar kvenna í fótbolta eftir 0-3 sigur gegn Þrótti í kvöld. Íslenski boltinn 14.6.2022 19:30
Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA-KR 3-3 | Sex marka jafntefli fyrir norðan Þór/KA og KR buðu upp á markaveislu á Akureyri í kvöld þegar liðin skildu jöfn í Bestu deild kvenna, 3-3. Íslenski boltinn 14.6.2022 18:15
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss-Valur 0-1| Anna Rakel hetja Vals Valur gerði góða ferð á Suðurlandið og vann 0-1 sigur á Selfossi. Anna Rakel Pétursdóttir kom Val yfir á 19. mínútu og reyndist það vera sigurmark leiksins. Íslenski boltinn 14.6.2022 18:30
„Leikmennirnir sjá að þær geta spilað fótbolta“ „Þetta var góður leikur, mér fannst við vera aðeins betri en þær í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik var meira jafnræði með liðunum. Við hefðum geta tapað leiknum í lokin en sem betur fer gerðum við vel,“ sagði Christopher Thomas Harrington þjálfari KR eftir jafntefli á móti Þór/KA á SaltPay vellinum á Akureyri í kvöld. Sport 14.6.2022 21:30
„Ég er mjög ánægður með þessi þrjú stig“ Jonathan Glenn, þjálfari ÍBV, var sáttur með sigurinn á móti Aftureldingu í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Með sigrinum lyfti ÍBV sér upp í 2. sæti deildarinnar, í bili. Mark ÍBV kom undir lok fyrri hálfleiks, lokatölur 1-0. Fótbolti 14.6.2022 21:07
Ljóst hvaða liðum Ísland gæti mætt í EM-umspili U21 Nú er það orðið ljóst hvaða sjö lið fylgja íslenska U21 árs landsliðinu í fótbolta í umspil um laus sæti á EM 2023. Fótbolti 14.6.2022 18:06
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding-ÍBV 0-1 | Eyjakonur sóttu stigin þrjú Nýliðar Aftureldingar tóku á móti ÍBV í Bestu deild kvenna í fótbolta. Afturelding er í fallsæti á meðan ÍBV er í 6. sæti. Eina mark leiksins kom rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og var það Olga Sevcova sem kom ÍBV í 1-0. Íslenski boltinn 14.6.2022 17:15
Mourinho náði í Matic enn á ný Serbneski miðjumaðurinn Nemanja Matic hefur yfirgefið ensku úrvalsdeildina og skrifað undir samning til eins árs við ítalska knattspyrnufélagið Roma. Fótbolti 14.6.2022 16:31
Sjáðu Hlín svara hraustlega fyrir sig í nótt eftir EM-valið Hlín Eiríksdóttir er ein af þeim sem voru allra næst því að ná sæti í EM-hópi Íslands sem tilkynntur var síðasta laugardag en urðu að bíta í það súra epli að fá ekki sæti. Hún sendi landsliðsþjálfaranum skýr skilaboð með frammistöðu sinni í nótt. Fótbolti 14.6.2022 16:00
Hinn íslensk-ættaði Tomasson tekur við Blackburn Hinn 45 ára gamli Jon Dahl Tomasson hefur tekið við þjálfun Blackburn Rovers í ensku B-deildinni. Tomasson gerði Malmö FF í Svíþjóð að meisturum tvö ár í röð áður en hann sagði óvænt upp í desember á síðasta ári. Enski boltinn 14.6.2022 15:00
Stórleikir í Laugardal og á Selfossi Níunda umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta fer fram í kvöld. Tveir stórleikir eru á dagskrá og þá verða herlegheitin gerð upp í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport klukkan 22.00 í kvöld. Íslenski boltinn 14.6.2022 13:30
Lars myndi ekki spila eins og Arnar Þór Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, var sérfræðingur Viaplay á leik Íslands og Ísrael á Laugardalsvelli. Svínn fór yfir víðan völl er varðar landsliðið en eftir leik ræddi Lars meðal annars hvernig hann myndi spila ef hann væri við stjórnvölinn. Fótbolti 14.6.2022 11:01
Hlín eftir þrennuna í miðnætursólinni: „Frábær tilfinning í alla staði“ Hlín Eiríksdóttir reyndist hetja Piteå er liðið lagði Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í miðnætursólinni í Svíþjóð í gærkvöld. Hlín skoraði öll þrjú mörk Piteå í 3-0 sigri. Fótbolti 14.6.2022 09:30
Mál Greenwood enn til rannsóknar Fyrir skemmstu fór á flug sá orðrómur á samfélagsmiðlinum Twitter að Mason Greenwood væri laus allra mála og gæti mögulega snúið aftur í leikmannahóp Manchester United á næstu leiktíð. Sá orðrómar reyndust ekki á rökum reistur. Enski boltinn 14.6.2022 08:30
Ræddu að breyta innköstum í innspörk Alþjóðaknattspyrnuráðið, IFAB, hittist í Doha – höfuðborg Katar – á mánudag. Þar var meðal annars rætt að breyta innköstum í innspörk. Fótbolti 14.6.2022 08:01
Dagskrá í dag: Heil umferð í Bestu deildinni Í dag fer fram 9. umferð í Bestu deild kvenna þar sem öll lið eiga leiki. Sýnt verður frá öllum leikjunum á sport rásum Stöðvar 2. Sport 14.6.2022 06:00
Hákon Arnar Haraldsson: Það er draumi líkast að gera þetta með vini sínum Hákon Arnar Haraldsson byrjaði sinn fyrsta heimaleik með Íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í 2-2 jafnteflinu gegn Ísrael í kvöld. Hann var ánægður að fá að byrja en hefði viljað vinna leikinn. Sport 13.6.2022 23:30
Ánægja með markaskorarana á Twitter Jón Dagur Þorsteinsson og Þórir Jóhann Helgason fengu mesta athyglina hjá netverjum á Twitter á meðan á leik Íslands og Ísrael stóð í B-deild Þjóðadeildar karla í fótbolta á Laugardalsvellinum í kvöld. Fótbolti 13.6.2022 21:01
Danir á hraðferð í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar Eftir svekkjandi tap gegn Króötum í síðustu umferð eru Danir komnir aftur á sigurbraut eftir 2-0 sigur á Austurríki á Parken í kvöld. Fótbolti 13.6.2022 18:16
Ósammála vali Nadim en segir hana velkomna Nadia Nadim, landsliðskona Dana í fótbolta, er umdeild í Danmörku vegna sinna starfa sem sendiherra HM í Katar. Pernille Harder segir hana þó velkomna í danska landsliðshópinn. Fótbolti 13.6.2022 19:07
Byrjunarlið Íslands gegn Ísrael: Hákon Arnar kemur aftur inn í liðið Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, hefur tilkynnt um byrjunarlið Íslands fyrir leik liðsins gegn Ísrael sem hefst klukkan 18:45 á Laugardalsvelli í Þjóðadeildinni. Hákon Arnar kemur inn í annars óbreytt lið frá leiknum gegn Albaníu. Fótbolti 13.6.2022 17:28
Þjálfari Berglindar og Svövu tekur við tríóinu í Bayern Alexander Straus, þjálfarinn sem fékk þær Berglindi Björg Þorvaldsdóttur og Svövu Rós Guðmundsdóttur til Brann í Noregi, kveður félagið í þessari viku til að taka við öðru Íslendingaliði, Bayern München. Fótbolti 13.6.2022 14:31