Fótbolti
179 180 181 182 183 184 185 186 187 … 334 ›
Gylfi Þór ekki lengur leikmaður Everton Samningur Gylfa Þórs Sigurðssonar við enska knattspyrnufélagið Everton er runninn út. Hann hefur ekki spilað fyrir liðið síðan á þar síðustu leiktíð en leikmaðurinn var handtekinn síðasta sumar vegna meints brots gegn ólögráða stúlku. Enski boltinn 10.6.2022 14:13
Stefndu á að þrefalda áhorfið en tókst að fjórfalda það á einu ári Áhorf á úrvalsdeild kvenna í fótbolta á Englandi fjórfaldaðist á tímabilinu sem var að líða. Er deildin gerði nýjan sjónvarpssamning á síðasta ári var stefnt að því að þrefalda áhorf en það virðist ganga framar vonum. Enski boltinn 10.6.2022 14:03
Kári heldur áfram að láta landsliðið heyra það: „Hvað næst? Dimmalimm?“ Kári Árnason - fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, yfirmaður knattspyrnumála hjá Íslands- og bikarmeisturum Víkings og sérfræðingur Viaplay, hefur verið duglegur að láta íslenska A-landsliðið heyra það undanfarið. Á því varð engin breyting er Ísland marði San Marínó. Fótbolti 10.6.2022 13:32
Leggur skóna á hilluna eftir enn ein meiðslin og fer að þjálfa í heimalandinu Taylor Bennett, varnarmaður Aftureldingar í Bestu deild kvenna, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla á mjöðm. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins. Íslenski boltinn 10.6.2022 13:01
Chelsea fær Evrópumeistara Kadeisha Buchanan hefur skrifað undir þriggja ára samning við Englandsmeistara Chelsea. Hún kemur frá Frakklands- og Evrópumeisturum Lyon. Enski boltinn 10.6.2022 12:30
Vill að Evrópa gefi efnilegum leikmönnum utan álfunnar tækifæri Arsène Wenger er hvað frægastur fyrir að hafa stýrt enska knattspyrnufélaginu Arsenal frá 1996 til 2018. Á þeim tíma gaf hann fjölda efnilegra leikmanna tækifæri og oftar en ekki um að ræða leikmenn sem voru uppaldir utan Evrópu. Hann vill sjá Evrópu gera slíkt hið sama nú. Fótbolti 10.6.2022 12:01
Salah og Kerr best | Son ekki í liði ársins Leikmannasamtök Englands, PFA, völdu Mohamed Salah, leikmann Liverpool, og Sam Kerr, leikmann Chelsea, sem bestu leikmenn tímabilsins 2021/2022 á Englandi. Manchester City átti bestu ungu leikmennina og þá vakti athygli að Son Heung-Min var ekki í liði ársins. Enski boltinn 10.6.2022 10:30
Gríðarlegt ósætti með frammistöðuna: Fáum alltaf alvöru leik með Arnar Þór sem þjálfara Ísland marði San Marínó í vináttulandsleik í fótbolta í gærkvöld. Segja má að Twitter hafi logað á meðan leik stóð og eftir leik en frammistaða íslenska liðsins var ekki upp á marga fiska. Fótbolti 10.6.2022 09:29
Lið Óttars segir öldungardeildarþingmanni að halda sig frá félaginu Bandaríska fótboltaliðið Oakland Roots hefur sent öldungardeildarþingmanninum Ted Cruz skýr skilaboð eftir nýjasta útspil þingmannsins á Twitter-síðu sinni. Óttar Magnús Karlsson leikur með félaginu. Fótbolti 10.6.2022 08:31
„Sé annan brag á Kristínu Ernu núna en ég hef séð í langan tíma“ Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði sigurmark ÍBV er liðið lagði Keflavík 3-2 í 8. umferð Bestu deildar kvenna á dögunum. Farið var yfir frammistöðu Kristínar Ernu í Bestu mörkunum að leik loknum. Íslenski boltinn 9.6.2022 23:31
FH hirti toppsætið af HK FH hafði betur þegar sótti HK heim í Kórinn í Kópavogi í viðureign tveggja efstu liðanna í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. Fótbolti 9.6.2022 22:16
Dramatík í fyrsta sigri sumarsins hjá KV Selfoss og Fylkir skildu jöfn þegar liðin mættust í sjöttu umferð Lengjudeildar karla í fótbolta í kvöld. Grindavík og Fjölnir gerðu sömuleiðis jafntefli. KV innbyrti svo sinn fyrsta sigur í spennutrylli á móti Aftureldingu. Fótbolti 9.6.2022 21:22
Umfjöllun: San Marínó - Ísland 0-1 | Sigur í gæðasnauðum leik Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætti San Marínó í San Marínó fyrr í kvöld í vináttuleik sem náði aldrei neinu flugi. Leikurinn endaði með sigri Íslands 0-1 og í raun og veru þarf ekki að segja neitt meira um það. Fótbolti 9.6.2022 18:01
Silva lagði upp bæði mörk Portúgals Fjölmargir leikir voru á dagskrá í Þjóðadeild karla í fótbolta í kvöld. Portúgal og Spánn unnu sigra í leikjum sínum í riðli 2 í A-deilk keppninnar. Fótbolti 9.6.2022 20:50
Chelsea búið að sækja fyrsta leikmanninn eftir breytingu á eignarhaldi félagsins Ève Périsset varð fyrsti leikmaðurinn til að semja við Chelsea eftir að salan á félaginu gekk í gegn. Kemur hún á frjálsri sölu frá Bordeaux í Frakklandi. Enski boltinn 9.6.2022 17:01
Segir Barcelona þurfa tæplega hálfan milljarð evra til að „bjarga“ félaginu Eduard Romeu, varaforseti fjármáladeildar Barcelona, telur félagið þurfa 427 milljónir evra svo hægt sé að bjarga því frá glötun. Fótbolti 9.6.2022 16:00
Einn sigur á heilu ári fyrir skyldusigurinn í kvöld Á síðustu 365 dögum hefur íslenska karlalandsliðið í fótbolta aðeins unnið einn sigur en það var á heimavelli gegn Liechtenstein, 4-0, í október í fyrra. Í kvöld gefst kærkomið tækifæri á öðrum sigri, gegn San Marínó sem er neðst á heimslista FIFA. Fótbolti 9.6.2022 15:31
Félag dæmt í lífstíðarbann fyrir að skora 41 sjálfsmark í einum og sama leiknum Alls hafa fjögur knattspyrnufélög í 4. deildinni í Suður-Afríku verið dæmd í lífstíðarbann frá íþróttinni eftir að upp komst um svindl er tvö þeirra reyndu að sigra deildina og komast þar með upp í 3. deild. Í einum leiknum var 41 sjálfsmark skorað. Fótbolti 9.6.2022 15:00
Biðst afsökunar á að hafa beitt táragasi á stuðningsmenn Liverpool Lögreglustjóri Parísar hefur beðist afsökunar á að táragasi hafi verið beitt á stuðningsfólk Liverpool fyrir leik liðsins gegn Real Madríd í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leiknum lauk með 1-0 sigri Real. Fótbolti 9.6.2022 14:31
Segja Man Utd búið að bjóða í De Jong Spænski fjölmiðillinn Marca fullyrðir að Manchester United sé búið að bjóða í Frenkie de Jong, hollenskan miðjumann Barcelona. Talið er að tilboðið hljómi upp á 80 milljónir evra ef allar bónusgreiðslur eru teknar með. Enski boltinn 9.6.2022 13:31
Fóru yfir mögulegan EM hóp landsliðsins: Ekkert sem kom á óvart Hópur Íslands fyrir Evrópumótið í fótbolta verður tilkynntur á morgun, föstudag. Því ákvað Helana Ólafsdóttir, þáttastjórnandi Bestu markanna, að leyfa sérfræðingum þáttarins að velja sinn 23 manna hóp. Fótbolti 9.6.2022 12:30
Alfons spilað nánast sleitulaust undanfarna fjórtán mánuði Alfons Sampsted fær verðskuldað frí er samherjar hans í íslenska landsliðinu etja kappi við San Marínó síðar í dag. Um er að ræða vináttulandsleik í fótbolta. Fótbolti 9.6.2022 11:01
Vanda með áskorun til foreldra: „Þurfum að setja okkur inn í þennan veruleika“ Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, hvetur foreldra yngri iðkenda í fótbolta til að vera meðvituð um þann raunveruleika sem blasir við íþróttakrökkum á fámennari svæðum landsins. KSÍ skoðar nú hvort breyta þurfi reglum til að þeir krakkar fái að spila sína heimaleiki án vandræða. Fótbolti 9.6.2022 10:01
Fjalla um mál Gylfa Þórs: Segja fartölvuna hafa verið tekna af honum Á vef The Athletic er fjallað um ónefndan knattspyrnumann ensku úrvalsdeildarinnar sem er undir rannsókn vegna brots gegn ólögráða stúlku. Leikmaðurinn sem um er ræðir er Gylfi Þór Sigurðsson. Fótbolti 9.6.2022 09:08
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland 3-1 Hvíta-Rússland | Vonin um EM-sæti lifir enn Íslenska U21-landsliðið var ekki í miklum vandræðum með Hvít-Rússa í Víkinni í dag. Ísland vann 3-1 sigur og vonin um sæti í lokakeppni Evrópumóts U21-landsliða í fótbolta lifir enn. Fótbolti 8.6.2022 21:39
„Mikil áhætta í því fólgin að halda sig við þetta á meðan það gengur ekki betur“ „Það er alltaf gott þegar þjálfari er ánægður, þá er ekkert hægt að kvarta,“ sagði Helena Ólafsdóttir, stjórnandi Bestu markanna, eftir viðtal þjálfara Aftureldingar sem hafði rétt á undan tapað 6-1 fyrir Íslandsmeisturum Vals. Íslenski boltinn 8.6.2022 16:30
Sjáðu hraðþrennu Kötlu, sigurmark Hildar og Eyjakonur bæta fyrir mistökin Mörkunum rigndi í 8. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta og hér á Vísi má sjá öll mörkin úr umferðinni. Sautján ára leikmaður Þróttar skoraði þrennu á tuttugu mínútum. Íslenski boltinn 8.6.2022 14:01
Þrennuhetja Þróttar best og Hildur skoraði flottasta markið Áttunda umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta var gerð upp í síðasta þætti af Bestu mörkunum. Lið umferðarinnar var valið sem og besti leikmaðurinn ásamt besta markinu. Íslenski boltinn 8.6.2022 13:01
Dæmdur í tveggja leikja bann eftir að stuðst var við myndbandsupptöku Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur dæmt Omar Sowe, framherja Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta, í tveggja leikja bann. Íslenski boltinn 8.6.2022 12:02
Styttan af Zidane að skalla Materazzi til sýnis á nýjan leik Eitt frægasta atvik knattspyrnusögunnar var gert ódauðlegt er það var gert að tæplega fimm metra hárri bronsstyttu sem ber nafnið „Coup de tete.“ Styttan verður til sýnis á HM karla í knattspyrnu sem fram fer í Katar undir lok þessa árs. Fótbolti 8.6.2022 10:01