
Hernaður

Gerðu árás á flotastöð og skemmdu herskip
Úkraínumenn réðust á rússneska flotastöð nærri Novorossiysk við á Svartahafi í nótt og virðast hafa valdið skemmdum á herskipi. Litlir fjarstýrðir sjálfsprengibátar voru notaðir til árásarinnar en Rússar segjast hafa grandað þeim öllum.

Enn gerðar drónaárásir í Moskvu
Yfirvöld í Rússlandi segja dróna hafa hæft byggingu í Moskvu, tveimur dögum eftir að annar dróni hæfði sömu byggingu. Úkraínumenn virðast vera að auka framleiðslu á eigin drónum sem hægt er að nota til árása í Rússlandi.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Úkraínumenn sagðir gefa í og sækja fram í Saporisjía
Úkraínumenn eru sagðir hafa sett aukinn þunga í árásir þeirra gegn Rússum í Sapórisíjahéraði í suðausturhluta landsins. Þeir hafa einnig náð frekari árangri nærri Bakhmut í Dónetskhéraði.

Ráðvilltur gagnvart uppreisn Wagner
Þegar málaliðar Wagner Group lögðu undir sig borgina Rostov, þann 24. júní, og stór bílalest málaliða lagði af stað til Moskvu, var Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í losti og vissi ekki hvernig hann átti að bregðast við. Hann gaf hernum engar skipanir lengst af degi, þó hann hefði fengið viðvaranir frá öryggisstofnunum sínum með minnst tveggja daga fyrirvara.

Saka Úkraínumenn enn um hryðjuverkaárásir
Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur sakað Úkraínumenn um hryðjuverkaárás í Moskvu í morgun. Ráðuneytið segir að árás með tveimur drónum hafi verið stöðvuð og að þeir hafi brotlent í borginni en borgarstjóri Moskvu segir tvær byggingar hafi orðið fyrir skemmdum en engan hafi sakað.

Byrjaðir að nota klasasprengjur
Úkraínumenn eru byrjaðir að skjóta klasasprengjum að varnarlínum Rússa í suður- og austurhluta Úkraínu. Þá leggja bakhjarlar Úkraínu áherslu á að laga hergögn Úkraínumanna sem skemmast í þeim hörðu átökum sem eiga sér stað í landinu.

„Djöfulleg“ árás gerð á Odessa í nótt
Rússar létu sprengjum rigna yfir hafnarborgina Odessa í nótt en árásin beindist sérstaklega að höfn borgarinnar. Úkraínumenn lýsa árásinni sem djöfullegri en upplýsingar um skemmdir og mannfall liggja ekki fyrir. Þá þurftu á þriðja þúsund manns að flýja heimili sín á Krímskaga eftir árás Úkraínumanna.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vilja ekki gera hermenn að fallbyssufóðri eins og Rússar
Úkraínumenn hafa breytt um aðferðir í gagnsókn þeirra gegn Rússum í suður- og austurhluta landsins, eftir hæga og kostnaðarsama sókn undanfarnar vikur. Jarðsprengjur og þyrlur Rússa hafa reynst úkraínskum hermönnum sérstaklega erfiðar.

Beindu stýriflaugum og drónum að Odessa
Rússar skutu stýriflaugum og flugu sjálfsprengidrónum að höfninni í Odessa við Svartahaf í nótt. Árásin er sögð hafa valdið skemmdum á innviðum í höfninni, sem er mikilvæg fyrir kornútflutning Úkraínumanna.

Ætla að mynda bestu herdeildir Evrópu á næstu árum
Ráðamenn í Þýskalandi telja að innan nokkurra ára verði þeir með best búnu herdeildir (e. Division) innan Atlantshafsbandalagsins, að Bandaríkjunum undanskildum. Yfirmaður þýska hersins segist vongóður að fyrsta nýja herdeild Þjóðverja verði klár fyrir árið 2025.

Rússar sölsa undir sig dótturfyrirtæki Carlsberg og Danone
Stjórnvöld í Rússlandi hafa gert eignarnám í dótturfyrirtækjum bjórframleiðandans Carlsberg og jógúrtframleiðandanum Danone. Vladimir Pútín Rússlandsforseti undirritaði umrædda tilskipun, sem hefur fært félög fyrirtækjanna í Rússlandi undir eignaumsjónastofnunina Rosimushchestvo.

„Wagner málaliðahópurinn er ekki til“
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segist hafa boðið málaliðum Wagner group að berjast áfram í Úkraínu en að auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hafi hafnað því. Þetta mun hafa gerst á fundi þann 29. júní, nokkrum dögum eftir uppreisn Wagner og sókn málaliðanna að Moskvu.

Borgarar pyntaðir í haldi Rússa og neyddir til þrælkunarvinnu
Rússar halda þúsundum óbreyttra úkraínskra borgara í fangelsum, bæði á yfirráðasvæðum þeirra í Úkraínu og í Rússlandi. Verið er að undirbúa mögulega fangelsun þúsunda Úkraínumanna til viðbótar en margir borgarar eru þvingaðir til þrælkunarvinnu.

„Okkar æðstu yfirmenn stungu okkur í bakið“
Rússneskur herforingi sem leiddi hermenn í suðurhluta Úkraínu segist hafa verið rekinn fyrir að vekja athygli yfirmanna sinna á slæmu ástandi á víglínunum. Ivan Popov, yfirmaður 58. hers Rússlands, sendi frá sér skilaboð í gær þar sem hann sagði forsvarsmenn hersins hafa stungið hermenn í bakið.

Wagner hafi afhent Rússum þúsundir tonna af vopnum
Varnamálaráðuneyti Rússa greinir frá því að Wagner málaliðahópurinn hafi afhent rússneska hernum mörg þúsund tonn af vopnum. Rússar vinna nú að því að ná Wagner hópnum endanlega á sitt vald.

„Við erum ekki Amazon“
Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, hefur hvatt ráðamenn í Úkraínu til að sýna meira þakklæti á opinberum vettvangi fyrir vopnasendingar. Þegar honum barst beiðni frá Úkraínu um vopn í fyrra, svaraði hann með því að segja: „Við erum ekki Amazon“.

Wagner-liðar tóku stefnuna á kjarnorkuvopnageymslur
Þegar málaliðar Wagner stefndu hraðbyr að Moskvu í uppreisn þeirra í síðasta mánuði, breytti hópur þeirra um stefnu og keyrði í átt að rússneskri herstöð þar sem kjarnorkuvopn eru geymd. Málaliðarnir komust í allavega hundrað kílómetra fjarlægð frá herstöðinni, sem kallast Voronezh-45.

Á degi leiðtogafundar NATO í Litháen
Nú eru daprir tímar í sögu Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Flokkur ykkar er í ríkisstjórn sem styður og stendur að sívaxandi hernaðarbrölti. Nú hefur verið ákveðið að láta Úkraínumenn hafa svokallaðar klasasprengur, drápstól sem eru svo ógeðsleg og villimannleg að jafnvel hörðustu hernaðarsinnum ofbýður og hafna notkun þeirra, enda eru þau nær allstaðar bannaðar í hernaði.

Rússar reiðir eftir að Erdogan sleppti verjendum Maríupól
Fimm af leiðtogum úkraínskra hermanna í Maríupól fengu í gær að fara frá Tyrklandi til Úkraínu, í fylgd með Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Það að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi leyft þeim að fara til Úkraínu hefur reitt yfirvöld í Moskvu til reiði.

Verja klasasprengjusendingar til Úkraínu
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, varði í gær þá ákvörðun sína að senda klasasprengjur til Úkraínu. Hann sagði ákvörðunina erfiða en vopnin eru ólögleg í mörgum löndum heims.

Heimsótti Snákaeyju eftir fimm hundruð daga stríð
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fór nýverið til Snákaeyju á Svartahafi þar sem hann minntist þeirra hermanna sem féllu þar í átökum við Rússa. Þá markaði hann að fimm hundruð dagar eru liðnir frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst og hét því að frelsa öll þau svæði sem Rússar hafa hernumið.

Biden sendir Úkraínumönnum klasasprengjur
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur samþykkt að sjá Úkraínumönnum fyrir klasasprengjum, sem eru bannaðar í flestum ríkjum heims. Aðstoðin verður veitt á grundvelli undanþáguákvæðis vegna þjóðaröryggis.

Bandaríkin eyða síðustu efnavopnum sínum
Flugskeyti með saríngasi sem unnið er að því að eyða á herstöð í Kentucky eru síðustu efnavopn Bandaríkjanna. Síðustu birgðunum verður eytt fyrir lok september í samræmi við efnavopnasáttmálans sem 193 ríki skrifuðu undir árið 1997.

Saka hver annan um að ætla sér að ráðast á kjarnorkuverið
Úkraínumenn og Rússar saka hver annan um að ætla sér að ráðast á Zaporizhzhia-kjarnorkuverið í suðaustanverðri Úkraínu. Hvorugir þeirra hafa þó lagt fram sannanir fyrir fullyrðingum sínum.

Þrír drónar skotnir niður nærri Moskvu
Þrír drónar voru skotnir niður í Rússlandi í nótt, tveir nærri Moskvu og einn í Kaluga-héraði. Samkvæmt rússnesku fréttastofunni Tass voru drónarnir allir á leið í átt að höfuðborginni, á mismunandi tíma.

Segja aðgerðirnar á Vesturbakkanum geta varað í fleiri daga
Fulltrúi Ísraelshers segir að aðgerðir hans gegn vígahópum á Vesturbakkanum gætu varað í nokkra daga. Átta Palestínumenn eru nú sagðir látnir í aðgerðum Ísraelsmanna sem er lýst sem þeim umfangsmestu í tuttugu ár.

Rússar viðurkenna að hafa flutt um 700.000 börn frá Úkraínu
Rússar hafa viðurkennt að hafa flutt 700 þúsund börn frá Úkraínu og til Rússlands frá því að innrásin hófst. Þeir segja um að ræða aðgerðir til að vernda munaðarleysingja og börn sem hafa verið yfirgefin á átakasvæðum.

Segir Rússa hugsanlega ætla að sprengja kjarnorkuver
Úkraínuforseti segir að Rússar gætu verið að undirbúa sig fyrir það að sprengja Zaporizhzhia-kjarnorkuverið, stærsta kjarnorkuver Evrópu.

Telja hershöfðingja hafa vitað af áformum Prigozhin
Bandaríska leyniþjónustan telur að háttsettur rússneskur hershöfðingi hafi vitað af því að Jevgeníj Prigozhin, leiðtogi Wagner-málaliðahersins, ætlaði að gera uppreisn gegn hermálayfirvöld fyrir fram. Forseti Hvíta-Rússlands segist hafa komið í veg fyrir að Pútín Rússlandsforseti léti drepa Prigozhin.

Þrjú börn meðal tíu látinna eftir árás Rússa á Kramatorsk
Að minnsta kosti tíu eru látnir eftir árás Rússa á Kramatorsk í gær, þeirra á meðal þrjú börn. Sextíu eru sagðir særðir og þá var þremur bjargað undan húsarústum.