Hernaður
41 42 43 44 45 46 47 48 49 … 54 ›
Fundi ráðherranna lokið: Lavrov heitir því að Rússar verði aldrei aftur háðir Vesturlöndum Fundi Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, er lokið. Viðræður ráðherranna skiluðu ekki teljandi árangri en ekki er útilokað að þeir muni funda á ný á næstunni. Erlent 10.3.2022 10:36
Utanríkisráðherrarnir hittast í Tyrklandi til að ræða varanlegt vopnahlé Utanríkisráðherrar Rússlands og Úkraínu munu funda í Tyrklandi í dag en Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segist vonast til að á fundinum verði „dyrnar opnar“ fyrir varanlegu vopnahléi. Erlent 10.3.2022 06:36
Segir árásina á barnaspítalann til marks um þjóðarmorð Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sendi leiðtogum Vesturlanda tóninn í kvöld. Það gerði hann í nýju ávarpi, sem hann birti á netinu þar sem hann sagði Rússa hafa sannað að þeir ætluðu sér að fremja þjóðarmorð gagnvart Úkraínumönnum. Erlent 9.3.2022 23:44
Vaktin: Selenskí sendir vestrinu tóninn Úkraínumenn segjast hafa komið um fjörutíu þúsund manns úr nokkrum borgum Úkraínu sem Rússar sitja um í dag. Tímabundið vopnahlé náðist í morgun og lauk því klukkan sjö að íslenskum tíma. Erlent 9.3.2022 06:55
Óskar segir Rússa ráðast vísvitandi á flóttafólk Óskar Hallgrímsson sem býr með úkraínskri eiginkonu sinni Mariiku í Kænugarði sá í fyrsta skipti í dag þar sem flugskeyti var skotið frá borginni. Hann segir loftvarnir Kænugarðs hafa verið efldar til muna en í morgun hrukku þau hjónin upp við sprengjugný. Innlent 9.3.2022 22:00
Líf milljóna manna í algerri upplausn og neyð Líf milljóna manna er í algerri upplausn og að minnsta kosti hundruð þúsunda eru í algerri neyð vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Í dag voru gerðar tilraunir til að flytja þúsundir manna frá umkringdum borgum víðs vegar um landið. Nú hafa um 2,2 milljónir manna flúið Úkraínu. Erlent 9.3.2022 20:01
Sprengjum varpað á barnaspítala í Mariupol Barnaspítali og meðgöngudeild í úkraínsku borginni Mariupol er nú í rústum eftir að sprengjum var varpað á borgina í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir rússneska hermenn hafa verið að verki. Úkraínumenn hafa sakað Rússa um að brjóta gegn vopnahléi sem komið var á í dag. Erlent 9.3.2022 16:49
Ísraelar segja viðræður um vopnahlé þokast í rétta átt Axios hefur eftir háttsettum ísraelskum embættismönnum að viðræður milli Rússa og Úkraínumanna um vopnahlé þokist í rétta átt. Báðir eru sagðir hafa slakað á í afstöðu sinni en utanríkisráðherrar ríkjanna funda í Tyrkalandi á morgun. Erlent 9.3.2022 13:30
Sprengingar heyrast í Kænugarði: Í fyrsta sinn sem hann verður var við átökin, segir ljósmyndari Nú fyrir stundu heyrðust tvær miklar sprengingar í miðborg Kænugarðs. Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem býr í borginni, segist sjá reyk liggja upp frá miðbænum og hvíta rák eins og eftir flugskeyti. Erlent 9.3.2022 11:58
Óvíst hvort Úkraínumenn fá MiG-þoturnar en Bandaríkjamenn senda Patriot-kerfi til Póllands Algjör óvissa ríkir um það hvort Úkraínumenn fái MiG-29 herþotur frá Póllandi eftir nokkurn vandræðagang bandarískra og pólskra stjórnvalda. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, mun heimsækja Pólland í dag þar sem málið verður líklega á dagskrá. Erlent 9.3.2022 07:41
Vaktin: Pepsi, Coca-Cola, McDonalds og fleiri loka í Rússlandi Rússar hafa hótað að skrúfa fyrir gasútflutning til Evrópu en Evrópuríkin, Bandaríkin og Japan íhuga nú að hætta að kaupa olíu frá Rússlandi. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu. Erlent 8.3.2022 06:46
Segir Ísland hvorki varið fyrir innrás né hryðjuverkum Prófessor í stjórnmálafræði segir að Íslendingar verði nú að taka umræðuna um hvort sérstakar varnarsveitir hafi viðveru á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, í ljósi stríðs í Evrópu. Ísland sé hvorki varið fyrir allsherjarinnrás né sértækum hryðjuverkaárásum. Innlent 7.3.2022 21:35
Vaktin: Telja að Rússar muni brátt reyna að stöðva vopnasendingar til Úkraínu „Ef hann verður ekki stöðvaður í Úkraínu mun hann ekki láta staðar numið þar,“ sagði Gitanas Nauseda, forseti Litháen, við utanríkisráðherra Bandaríkjanna þegar þeir funduðu í dag um innrás Rússa í Úkraínu. „Árás á einn er árás á alla,“ var svar Antony Blinken. Erlent 7.3.2022 06:48
Safna fyrir fatlað fólk í Úkraínu Þroskahjálp, Átak - félag fólks með þroskahömlun, TABÚ og Öryrkjabandalag Íslands hafa sett af stað söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Þau segja fatlað fólk sérstaklega berskjaldað í stríðsátökum og stöðu þess í Úkraínu grafalvarlega. Innlent 7.3.2022 17:58
Bókstafurinn sem táknar stuðning við innrás Rússa Tákn sem birst hefur á myndum af stríðsvélum Rússa í Úkraínu og virðist upphaflega átt að þjóna þeim tilgangi að aðgreina stríðsgögnin hefur öðlast nýtt líf. Bókstafurinn Z er orðið tákn þeirra sem styðja Rússa og innrásina í Úkraínu. Erlent 7.3.2022 13:30
Íslensk öryggismál ekki á neinum tímamótum vegna Úkraínustríðsins Vegna Úkraínustríðsins hafa dúkkað upp skoðanir um að þess vegna þurfi að hyggja að nýju að hernaðarlegu öryggi Íslands. Umræða um öryggismál er af hinu góða en þarf að byggja á réttum forsendum. Þá kann hún að valda fólki óþörfu áhyggjum með tali um ógn við Ísland í tengslum við innrásina í Úkraínu og harmleikinn þar. Umræðan 7.3.2022 09:57
Halda þjóðaratkvæðagreiðslu um þátttöku Dana í varnarsamstarfi ESB Dönsk stjórnvöld munu auka framlög sín til varnarmála á næstu árum á þann veg að árið 2033 munu tvö prósent af vergri landsframleiðslu renna til málaflokksins. Þá stendur til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar um þátttöku Danmerkur í varnarsamstarfi Evrópusambandsins. Erlent 7.3.2022 08:49
Forsætisráðherra Ástralíu segir stríðið í Úkraínu ögurstundu fyrir Kínverja Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, hefur varið afstöðu þarlendra stjórnvalda til átakanna í Úkraínu. Hann segir þau munu tala fyrir friðarviðræðum. Samkvæmt New York Times neitar hann að kalla aðgerðir Rússa „innrás“. Erlent 7.3.2022 08:13
Rússar boða tímabundið vopnahlé til að greiða fyrir rýmingu fjögurra borga Interfax fréttaveitan hefur eftir heimildarmönnum innan varnarmálaráðuneytis Rússlands að árásum verði tímabundið hætt og öruggar flóttaleiðir opnaðar fyrir almenna borgara Kænugarðs, Maríupól, Kharkív og Súmí. Erlent 7.3.2022 06:25
Leita leiða til að sjá Úkraínumönnum fyrir MiG-herþotum Bandaríkjamenn skoða nú leiðir til að sjá Úkraínumönnum fyrir herþotum frá Póllandi en ein leiðin væri að Pólverjar sendu nágrannaþjóð sinni þotur gegn því að fá nýjar herþotur frá Bandaríkjunum. Erlent 6.3.2022 14:34
Ráðleggingar Erdogan fóru inn um eitt eyra og út um hitt Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hvatti Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag til að lýsa yfir vopnahléi í Úkraínu, hleypa almennum borgurum í öruggt skjól og komast að friðarsamkomulagi við Úkraínumenn. Erlent 6.3.2022 12:37
Segir mikilvægt að ræða varnarstefnu Íslands „Líklega þarf ekki nema áhöfn eins kafbáts eða einnar lúxussnekkju rússnesks auðjöfurs, sem lóna fyrir utan hafnir landsins öll sumur, til að taka yfir helstu stofnanir landsins,“ segir Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur í færslu á Facebook. Innlent 6.3.2022 12:17
Vaktin: Skelfilegt ástand í Mariupol Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með og flytja fréttir af þróun mála í Úkraínu á tíunda degi innrásar Rússa í landið. Rússneski herinn hefur samþykkt að leggja tímabundið niður vopn sín til að almennir borgarar geti flúið borgirnar Maríupol og Volnovakha. Erlent 5.3.2022 07:25
Á fjórða hundrað almennra borgara fallið í átökunum en líklega mun fleiri Að minnsta kosti 331 almennur borgari hefur fallið og 675 særst í innrás Rússa í Úkraínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna sem telur þó að talan sé mun hærri. Erlent 4.3.2022 14:35
Flugbann ekki í kortunum hjá NATO Leiðtogar Atlantshafsbandalagins ætla ekki að setja á flugbann yfir Úkraínu. Þetta tilkynnti Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, nú fyrir skömmu en málið var til umræðu eftir ítrekuð áköll ráðamanna í Úkraínu. Erlent 4.3.2022 13:31
Geislavirkni mælist ekki meiri í Zaporizhzhia Mælingar við Zaporizhizhia, kjarnorkuverið í suðurhluta Úkraínu, benda til að geislavirk efni hafi ekki lekið út í umhverfið eftir að eldur brann þar í nótt. Þetta segir Rafael Grossi yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA). Erlent 4.3.2022 12:47
Rússar loka á erlenda fjölmiðla Yfirvöld í Rússlandi hafa lokað vefsíðum BBC, Voice of America, Radio Free Europe, Deutsche Welle og Meduza. Fjölmiðlarnir eru allir sakaðir um að dreifa „falsfréttum“ um innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 4.3.2022 11:46
Telja Úkraínumenn ekki geta varist í lengri tíma Varnir Úkraínumanna gegn innrás Rússa hafa verið mun betri en sérfræðingar og embættismenn bjuggust við. Ólíklegt er þó að Úkraínumenn geti haldið aftur af Rússneska birninum til lengdar. Erlent 4.3.2022 11:18
Rússar ná Zaporizhzhia á sitt vald Rússneskar hersveitir hafa náð Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu á sitt vald. Um er að ræða stærsta kjarnorkuver Evrópu, sem hefur sætt stöðugum árásum síðustu daga. Eldur kom upp í verinu í nótt en nýjustu fregnir herma að engin hætta sé á ferðum eins og er. Erlent 4.3.2022 08:46
Segir Rússa vilja endurtaka Tjsernóbíl-slysið Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu sakar Rússa um að hafa viljandi skotið sprengjum á kjarnorkuver í nótt. Hann segir þá hafa verið fullmeðvitaða um hætturnar sem því fylgja og sakar þá um að vilja endurtaka harmleikinn í Tsjernóbíl. Erlent 4.3.2022 07:49