Árás á bandaríska þinghúsið
1 2 3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Húsleitir og stefnur vegna falskra kjörmanna Trump Alríkislögreglumenn gerðu húsleit og birtu hópi stuðningsmanna Donalds Trump stefnur víðsvegar um Bandaríkin í gær. Aðgerðirnar eru sagðar tengjast rannsókn á fölskum kjörmönnum sem stuðningsmenn Trump reyndu að tefla fram til þess að halda honum við völd í fyrra. Erlent 23.6.2022 11:49
„Eins og að ætla að tæma hafið með skóflu“ Stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta hótuðu kjörstjórnarfulltrúum lífláti vegna ásakana Trumps og stuðningsmanna hans um að kosningasvindl hafi verið framin í forstetakosningunum árið 2020. Erlent 21.6.2022 22:29
Efasemdir um kosningar gufuðu upp þegar þeir sigruðu sjálfir Frambjóðendur í forvali Repúblikanaflokksins sem hafa fullyrt fullum fetum að brögð sé í tafli í kosningum í Bandaríkjunum höfðu engar slíkar efasemdir um úrslitin þegar þeir unnu sjálfir sigra í síðustu viku. Vantraust á kosningum hefur aukist mikið vestan hafs eftir samsæriskenningar Trump, fyrrverandi forseta, og bandamanna hans. Erlent 20.6.2022 13:58
Vissu að það sem þeir báðu Pence um væri ólöglegt Donald Trump og ráðgjafar hans sem vildu að Mike Pence varaforseti neitaði að staðfesta úrslit forsetakosninganna vissu að ráðabrugg þeirra væri ólöglegt. Einn ráðgjafa Trump bað um að vera hafður með á sérstökum náðunarlista. Erlent 16.6.2022 23:20
Trump hunsaði ráðgjafa og var „aftengdur raunveruleikanum“ Nokkrir af nánustu ráðgjöfum Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sögðu að hann hefði hunsað ráð þeirra um að játa ósigur í forsetakosningunum árið 2020. Fyrrverandi dómsmálaráðherra Trump sagði hann hafa verið „aftengdan raunveruleikanum“. Erlent 13.6.2022 23:35
Biden segir árásina á þingið einn myrkasta atburð í sögu Bandaríkjanna Joe Biden forseti Bandaríkjanna segir árásina á bandaríska þingið hinn 6. janúar vera einn myrkasta kafla í sögu landsins. Frekari sönnunargögn um aðild Donalds Trump fyrrverandi forseta að árásinni verða gerð opinber eftir helgi. Erlent 11.6.2022 19:46
„Ofbeldið var engin tilviljun“ Donald Trump spilaði lykilhlutverk í árásinni á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar 2021 að mati þingnefndar. Formaður nefndarinnar segir ofbeldið ekki hafa verið neina tilviljun heldur hafi verið um að ræða tilraun til valdaráns. Erlent 10.6.2022 22:00
Sagði Pence ef til vill verðskulda að verða hengdur Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fór með lykilhlutverk í valdaránstilraun 6. janúar 2021, þegar stuðningsmenn hans réðust inn í þinghúsið í Washington og freistuðu þess að koma í veg fyrir staðfestingu kjörs Joe Biden sem forseta. Erlent 10.6.2022 06:50
Dómari segir Greene ekki hafa tekið þátt í uppreisn Marjorie Taylor Greene, bandarísk þingkona, má bjóða sig fram til endurkjörs, samkvæmt dómara í Georgíu í Bandaríkjunum. Hópur kjósenda í kjördæmi hennar höfðu reynt að koma í veg fyrir framboð hennar með því að höfða mál gegn henni. Erlent 6.5.2022 20:16
Tæplega átta tíma gat á gögnum Hvíta hússins frá 6. janúar Upplýsingar um símtöl Donalds Trump, fyrrverandi forseta, á tæplega átta klukkustunda tímabili vantar inn í gögn Hvíta hússins frá deginum þegar stuðningsmenn hans ruddu sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna. Þingnefnd sem hefur árásina á þinghúsið til rannsóknar kannar nú hvort Trump hafi notað aðrar og óformlegar leiðir til að ræða við starfsmenn sína og stuðningsmenn. Erlent 30.3.2022 10:49
Gagnrýnir landsnefndina fyrir að beita sér gegn andstæðingum Trumps Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjanna, gagnrýndi í kvöld landsnefnd flokksins fyrir að ávíta tvo þingmenn flokksins. Það gerði landsnefndin vegna þess að þingmennirnir tveir taka þátt í rannsókn fulltrúadeildarinnar á rannsókninni á þinghúsið í fyrra. Erlent 8.2.2022 23:53
Trump ætlar að náða óeirðaseggina ef hann vinnur Donald Trump segist ætla að náða þá sem voru dæmdir vegna árásarinnar á þinghúsið þann 6.janúar í fyrra ef hann verður forseti á ný. Hann hélt fjöldafund í Texas í gær þar sem hann gældi við mögulegt forsetaframboð. Erlent 30.1.2022 13:59
Hæstiréttur brást vonum Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í gær kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra fengi ekki aðgang að gögnum hans. Lögmenn Trumps höfðu vonast eftir því að koma í veg fyrir afhendingu gagnanna en nú er sú von úti. Erlent 20.1.2022 12:37
Vilja spyrja Giuliani spjörunum úr varðandi árásina á þinghúsið Bandaríska þingnefndin sem nú rannsakar árásina á þinghúsið í Washington í janúar í fyrra hefur nú stefnt Rudy Guiliani fyrir nefndina, en hann var um tíma persónulegur lögmaður Donalds Trump forseta. Erlent 19.1.2022 07:01
Ákærðir fyrstir fyrir uppreisn vegna árásarinnar á þingið Stofnandi og leiðtogi hægri-öfgasamtakanna Oath Keepers hefur verið handtekinn og ákærður vegna árásarinnar á þinghúsið í Bandaríkjunum í janúar í fyrra. Auk Stewart Rhodes hafa minnst tíu aðrir meðlimir og félagar samtakanna verið handteknir. Erlent 13.1.2022 22:01
Biden segir Trump halda hnífi að hálsi lýðræðisins Joe Biden Bandaríkjaforseti gagnrýndi forvera sinn í starfi, Donald Trump, harðlega í ræðu sem hann hélt í nótt. Ræðuna bar upp á ársafmæli árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna í Washington, þar sem fjöldi fólks ruddist inn og reyndi að koma í veg fyrir að kjör Bidens yrði staðfest. Erlent 7.1.2022 07:09
Biden segir Trump ógn við lýðræðið Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, ætlar í dag að marka það að ár er liðið frá því stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta, réðust á þinghúsið. Það gerðu þau með því markmiði að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020. Erlent 6.1.2022 14:14
Ár frá árásinni á þinghúsið: Tak Trumps á Repúblikanaflokknum hefur aldrei verið þéttara Ár er liðið frá því að stór hópur stuðningsmanna Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, ruddi sér leið í gegnum tálma lögreglunnar og reyndi að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020. Kosninga sem Trump tapaði gegn Joe Biden. Erlent 6.1.2022 09:11
Fara í hart gegn öfgahópum vegna árásarinnar á þinghúsið Ríkissaksóknari Washington DC hefur höfðað mál gegn öfgahópunum Proud Boys og Oath Keepers vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar. Karl A Racine ætlar að nota lög sem samin voru til að sporna gegn Ku Klux Klan til að krefjast bóta frá samtökunum vegna þess skaða sem unninn var í árásinni og vegna árása á lögregluþjóna þann dag. Erlent 14.12.2021 21:28
Þáttastjórnendur Fox News vildu að forsetinn gripi inn í óeirðirnar Þrír þekktir þáttastjórnendur hjá Fox News sendu Mark Meadows, sem þá var hægri hönd Donald Trump í Hvíta húsinu, skilaboð 6. janúar síðastliðinn og biðluðu til hans um að fá forstann til að hvetja fólk til að hverfa frá þinghúsinu í Washington. Erlent 14.12.2021 11:06
Reiðir yfir því að fá ekki boð á lýðræðisfund Bidens Joe Biden mun í dag loka tveggja daga stafrænum lýðræðisfundi sínum með því að beina athygli að mikilvægi þess að standa í hárinu á harðræðisstjórnum og einræðisherrum og það að tryggja sjálfstæða fjölmiðla. Erlent 10.12.2021 13:01
Lýðræði talið fara hnignandi í Bandaríkjunum í fyrsta sinn Bandaríkin eru í fyrsta skiptin talin á meðal ríkja þar sem lýðræði fer hnignandi í skýrslu norrænnar hugveitu um stöðu lýðræðis í heiminum. Meiri en helmingur ríkja heims er talinn í sömu sporum og Bandaríkin. Erlent 23.11.2021 13:13
„Seiðmaðurinn“ dæmdur í rúmlega þriggja ára fangelsi Jacob Chansley, sem gengur undir nafninu Qanon seiðmaðurinn, hefur dæmdur í 41 mánaðar fangelsi fyrir aðkomu hans að árásinni á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafði farið fram á þunga refsingu til að setja fordæmi í aðdraganda fleiri dómsmála gegn fólki sem tók þátt í árásinni. Erlent 17.11.2021 17:59
Afneita eigin þingkonu vegna gagnrýni hennar á Trump Repúblikanar í Wyoming í Bandaríkjunum samþykktu að afneita Liz Cheney, fulltrúadeildarþingmanni flokksins, og hvöttu landsnefnd flokksins til þess að reka hana. Staðföst gagnrýni Cheney á hlut Donalds Trump í árásinni á bandaríska þinghúsið fer fyrir brjóstið á flokkssystkinum hennar. Erlent 17.11.2021 13:28
Bannon gefur sig fram við lögreglu Steve Bannon, fyrrverandi aðstoðarmaður og einn helsti stuðningsmaður Donalds Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur nú gefið sig fram til alríkislögreglunnar í Bandaríkjunum. Erlent 15.11.2021 18:18
Trump skilur að stuðningsmenn sínir hafi viljað hengja Pence Það var heilbrigð skynsemi hjá stuðningsmönnum Donalds Trump að kyrja um að þeir ætluðu sér að hengja Mike Pence, varaforseta, þegar þeir réðust á bandaríska þinghúsið í janúar, að mati fyrrverandi Bandaríkjaforsetans. Erlent 12.11.2021 14:42
Þingnefndin sem rannsakar árásina á þinghúsið fær gögn Trump Dómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghús Bandaríkjanna megi fá aðgang að skjölum er varða Donald Trump fyrrverandi forseta. Erlent 10.11.2021 06:56
Ákærður fyrir árásina á þinghúsið og leitar hælis í Hvíta-Rússlandi Bandarískur karlmaður sem ákærður er fyrir hlutdeild í árásinni á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar á þessu ári hefur sótt um hæli í Hvíta-Rússlandi, að því er hvítrússneskir ríkisfjölmiðlar greina frá. Erlent 9.11.2021 21:30
Þingmenn vilja ákæra Bannon Meirihluti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings greiddi í kvöld atkvæði með því að ákæra Steve Bannon, fyrrverandi aðstoðarmann Donalds Trump, fyrrverandi forseta, fyrir að sýna þinginu vanvirðingu. Bannon hefur neitað að mæta á fund þingnefndar sem rannsakar árásina á þinghúsið þann 6. janúar og svara spurningum þingmanna. Erlent 21.10.2021 23:48
Trump ætlar að opna eigin samfélagsmiðil Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að hann hyggist opna nýjan samfélagsmiðil, sem eigi að standa gegn „ofríki stórra tæknifyrirtækja“. Erlent 21.10.2021 08:23