
Frakklandshjólreiðarnar

„Ekki vera þessi heimski náungi“
Ansi sérstakt atvik átti sér stað í Tour de France hjólreiðakeppninni í dag þegar áhorfandi hljóp inn á brautina og truflaði forystusauð keppninnar á nokkuð frumlegan hátt.

Danska súperstjarnan grét
Danski hjólreiðamaðurinn Jonas Vingegaard hefur unnið Frakklandshjólreiðarnar undanfarin tvö ár en árið í ár hefur reynst honum mjög erfitt.

Sektaður fyrir að kyssa konu sína og barn
Franski hjólakappinn Julien Bernard fékk enga miskunn frá yfirmönnum Frakklandshjólreiðanna um helgina.

Velur fæðinguna fram yfir hjólreiðarnar
Belgíski hjólreiðamaðurinn Wout van Aert hefur ákveðið að fara heim og klárar því ekki síðasta sprettinn í Tour de France mótinu. Ástæðan er sú að eiginkona hans á von á barni og hann vill vera á staðnum þegar það kemur í heiminn.

Meira en hundrað ára hefð út um gluggann: Tour de France endar ekki í París 2024
Frakklandshjólreiðarnar eða Tour de France eins og flestir þekkja þær hafa endað í París í meira en hundrað ár. Það verður hins vegar breyting á þeirri aldarhefð sumarið 2024.

Enduðu allar í einni stórri hrúgu eftir árekstur í Tour de France
Svakalegur árekstur setti mikinn svip á fimmtu sérleið Frakklandshjólreiða kvenna í gær og varð meðal annars til þess að danska hjólreiðakonan Emma Norsgaard varð að hætta keppni.

Nýtt nafn á lista sigurvegara í Tour de France
Hinn danski Jonas Vingegaard Rasmussen kom fyrstur í mark í Frakklandshjólreiðunum, Tour de France, en keppni lauk í hjólreiðakeppninni sögufrægu í dag.

Beið eftir helsta keppinautinum eftir fall en jók samt forskotið
Danski hjólreiðakappinn Jonas Vingegaard er nú með rúmlega þriggja mínútna forskot eftir átjánda legg Tour de France. Hann kom rétt rúmri mínútu á undan næsta manni, ríkjandi meistara Tadej Pogacar, í mark í dag, þrátt fyrir að hafa beðið eftir meistaranum.

Tileinkaði sigurinn bróðir sínum sem var drepinn af ölvuðum ökumanni
Kanadamaðurinn Hugo Houle vann 16. áfanga Frakklandshjólreiðanna, Tour de France, í gær. Houle tileinkaði bróðir sínum Pierrik sigurinn en Pierrik dó fyrir tíu árum síðan þegar ölvaður ökumaður keyrði á hann.

Hundur hljóp á veginn og felldi keppendur í Tour de France
Hundur hljóp í veg fyrir keppendur Tour de France hjólreiðakeppninnar í vikunni og tafði fjölda keppenda. Tveir féllu af hjólum sínum vegna hundsins.

Hálsbrotnaði eftir árekstur við áhorfanda
Daniel Oss neyðist til að draga sig úr Tour de France hjólreiðakeppninni eftir að hann hálsbrotnaði í árekstri við áhorfenda. Myndband af árekstrinum má sjá neðar í fréttinni en rétt er að vara viðkvæma við því.

Í dag komast Frakklandshjólreiðarnar loksins til Frakklands
Tour de France, frægasta hjólreiðakeppni heims, er nú á fjórða degi en fram til þessa hafa Frakklandshjólreiðarnar þó ekki verið hjólaðar í Frakklandi þrátt fyrir að þrír dagar séu að baki.

Fölsk niðurstaða úr Covid-prófi hafði næstum því af honum Tour de France
Danski hjólreiðakappinn Jakob Fuglsang missir ekki af Frakklandshjólreiðunum, Tour de France, eins og áður var talið.

Konan sem olli einu stærsta slysi í sögu Tour de France fær háa sekt
Frönsk kona sem olli einu stærsta slys í sögu hjólreiðakeppninnar Tour de France hefur verið sektuð um 1200 evrur, eða tæplega 180 þúsund krónur.

Sektuð um 180 þúsund krónur vegna hópárekstursins
Dómstóll í Frakklandi hefur dæmt konu til að greiða 1.200 evru sekt, um 180 þúsund krónur, fyrir að hafa valdið fjölmennum árekstri í Frakklandshjólreiðunum síðasta sumar.

Skiltakonan hugsaði ekki um neitt nema að koma sér í sjónvarpið
Frakklandshjólreiðarnar, Tour de France, eru í fullum gangi en hegðun eins áhorfandans stal svo sannarlega fyrirsögnunum á fyrstu dögum keppninnar.

Konan sem setti Tour de France í uppnám handtekin
Þrítug frönsk kona sem olli meiriháttar árekstri í fyrsta áfanga Tour de France-hjólreiðakeppninnar um helgina gaf sig fram við lögreglu. Konan er nú í varðhaldi sökuð um að hafa valdið líkamstjóni og sett líf fólks í hættu af gáleysi.

Leita áhorfanda sem olli stórum árekstri á Tour de France
Franska lögreglan leitar nú að kvenkyns áhorfanda sem olli meiriháttar árekstri fjölda keppenda í fyrsta áfanga Tour de France-hjólreiðakeppninnar í gær. Áhorfandinn hélt á skilti og hallaði sér í veg fyrir hjólreiðagarpana.

Tour de France gæti komið í veg fyrir EM í Kaupmannahöfn
Það gæti farið svo að EM í fótbolta verði ekki spilað í Kaupmannahöfn þegar það fer fram næsta sumar. Hjólreiðakeppnin Tour de France gæti komið í veg fyrir að fótboltinn verður spilaður á Parken sumarið 2021.

Tveir hjólreiðamenn reknir úr Tour de France
Frakklandshjólreiðarnar, Tour de France, eru nú í fullum gangi en sautjándi keppnisdagurinn fór fram í gær. Tveir keppendur geta þó farið að pakka saman þótt enn séu fjórar sérleiðir eftir.

Rosalegur árekstur í Tour de France
Simon Gerrans og Tom Dumoulin, sem var í þriðja sæti samanlagt, hafa þurft að hætta keppni vegna árekstursins.