Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi
Guðni reyndi að koma á sáttafundi Arons og meints þolanda
Guðni Bergsson, þáverandi formaður KSÍ, reyndi að leiða landsliðsfyrirliðann Aron Einar Gunnarsson og meintan þolanda hópnauðgunar í Danmörku árið 2010, saman til sáttafundar í sumar.
„Þeir héldu bara áfram með lífið eins og ekkert hefði gerst, dauðfegnir að þurfa ekki að taka neina ábyrgð“
Fyrrverandi vinkona Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar sér eftir því að hafa tekið afstöðu með þeim og hafa logið fyrir þá.
Klöru ráðlagt að sækja barn sitt ekki í leikskólann
Fjölmargar hótanir bárust Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, í haust. Henni var meðal annars ráðlagt að sækja barn sitt ekki á leikskóla. Þá gekk hún út úr höfuðstöðvum KSÍ eftir að hafa átt samtal við forseta Íslands.
„SOS Arnar er brjálaður, við þurfum að aðstoða hann“
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, var afar ósáttur við að stjórn KSÍ hafi tekið Kolbein Sigþórsson út úr landsliðshópnum í haust. Þetta kemur fram í skýrslu úttektarnefndar ÍSÍ.
Þurfi að takast á við þetta sem íþróttahreyfing og samfélag
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, fagnar nýrri skýrslu Úttektarnefndar ÍSÍ, sem var falið að fjalla um frammistöðu KSÍ í málum tengdum kynferðisofbeldi. Ábendingar í henni muni nýtast stjórn KSÍ mjög vel í þeirri vinnu sem framundan er.
Segir úttektina á KSÍ vera gaslýsingu á þolendur
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir segir að skýrsla úttektarnefndar vegna viðbragða KSÍ við kynferðisbrotamálum sé opinber gaslýsing á þolendur. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kynjafræðikennar segir skýrsluna hafa verið „pínu svekk“.
Dómari og starfsmaður yngra landsliðs sagðir gerendur í tveimur málanna
Tvö kynferðisbrotamálanna sem óháð úttektarnefnd ÍSÍ segir að stjórn KSÍ hafi fengið vitneskju um frá árinu 2010 tengjast annars vegar dómara og hins vegar starfsmanni yngra landsliðs. Hvorugur hefur starfað frekar fyrir KSÍ eftir að sambandinu var tilkynnt um mál þeirra.
Guðni segist hafa einblínt um of á form og trúnað
Guðni Bergsson fráfarandi formaður KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna skýrslu úttektarnefndar ÍSÍ.
Leitaði til almannatengils vegna gruns um heimilisofbeldi landsliðsmanns
Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formaður KSÍ, brást við upplýsingum um að lögregla hefði verið kölluð að dvalarstað landsliðsmanns vegna grunsemda um heimilisofbeldi með því að leita til almannatengils. Fyrrverandi eiginkona umrædds landsliðsmanns varð fyrir vonbrigðum með hvernig KSÍ tók á málinu.
KSÍ hafi mikið svigrúm varðandi val á landsliðsmönnum
Úttektarnefnd ÍSÍ, sem var falið að fjalla um frammistöðu KSÍ í málum tengdum kynferðisofbeldi, skilaði sinni skýrslu í dag. Rán Ingvarsdóttir lögmaður segir að KSÍ hafi mikið svigrúm varðandi val á landsliðsmönnum.
KSÍ vissi af fjórum málum | Guðni fékk tilkynningu frá starfsmanni KSÍ um kynferðisofbeldi
Úttektarnefnd ÍSÍ, sem var falið að fjalla um frammistöðu KSÍ í málum tengdum kynferðisofbeldi, skilaði sinni skýrslu í dag. Þar segir meðal annars að nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að innan KSÍ hafi verið vitneskja um alls fjórar frásagnir um að leikmenn eða aðrir tengdir sambandinu hafi beitt kynbundnu eða kynferðislegu ofbeldi.
Kynntu úttekt á viðbrögðum KSÍ vegna kynferðisbrotamála
Óháð nefnd ÍSÍ kynnti niðurstöður úttektar á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands á blaðamannafundi í dag. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.
Opið bréf til Arons Einars og Eggerts Gunnþórs
Í maí á þessu ári steig hugrökk kona fram og sagði frá kynferðisbroti sem hún hafði orðið fyrir árið 2010, hópnauðgun af hendi tveggja landsliðsmanna á þeim tíma.
Aron Einar og Eggert reikna með því að málið verði fellt niður
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, hefur gefið skýrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á kynferðisbroti í Kaupmannahöfn árið 2010. Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH og fyrrverandi landsliðsmaður, gaf skýrslu hjá lögreglu í sama máli í gær. Leikmennirnir segjast báðir reikna með því að málið verði fellt niður.
„Ég er að reyna að draga úr tíðni þessara brota“ kvartar misskilinn Jón Steinar
„Þú talar alltof mikið,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, við Helgu Völu Helgadóttur, þingmann Samfylkingarinnar, þegar þau tókust á um kynferðisbrot í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Segir að samtölin við landsliðsmenn verði á óformlegum nótum
Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanni KSÍ, líst vel á þær tillögur sem starfshópur sambandsins lagði til um breytingar „varðandi vinnulag, viðhorf og menningu“ innan KSÍ. Hún segir að samtöl sín við leikmenn karlalandsliðsins á næstu dögum verði á óformlegu nótunum.
Vilja að allir leikmenn í landsliðum og meistaraflokkum upplýsi um kærur vegna kynferðis- og ofbeldisbrota
Starfshópurinn sem vann að breytingum á vinnulagi, viðhorfi og menningu innan KSÍ leggur til að leikmenn í meistaraflokkum og landsliðum upplýsi um kærur vegna kynferðis- og ofbeldisbrota.
Starfshópurinn hvetur KSÍ eindregið til að gera samninga við landsliðsfólk
Starfshópurinn sem Knattspyrnusamband Íslands setti á laggirnar í storminum í haust hefur nú lokið vinnu sinni og skilað til KSÍ tillögum „varðandi vinnulag, viðhorf og menningu“.
Kolbeinn fékk leyfi á Íslandi en enn óvíst hvort hann snúi aftur til æfinga
Samkvæmt íþróttastjóra sænska knattspyrnufélagsins IFK Gautaborgar er enn óljóst hvort að Kolbeinn Sigþórsson æfi eða spili aftur fyrir félagið.
Telur að gullkynslóðin hafi fjarlægst raunveruleikann
Í ítarlegri grein The Athletic um meint kynferðis- og ofbeldisbrot leikmenn karlalandsliðsins í fótbolta er ýjað að því að gullkynslóðin svokallaða hafi misst tengslin við raunveruleikann eftir velgengni landsliðsins.
Vanda skoðar að láta landsliðsfólk skrifa undir samning
Til skoðunar er að láta leikmenn landsliða Íslands í fótbolta skrifa undir samning þar sem það samþykkir að fara eftir ákveðnum reglum. Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, ætlar að fara með karlalandsliðinu til Rúmeníu og Norður-Makedóníu í næsta mánuði og ræða við leikmenn þess.
Hafa rætt við fjölda fólks við rannsókn málsins
Ný gögn hafa komið fram í máli Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar. Frá þessu er greint í ítarlegri grein The Athletic um kynferðis- og ofbeldisbrot landsliðsmanna Íslands.
Lýsir andrúmsloftinu á neyðarfundi KSÍ: „Fólk var leitt, sorgmætt og sumir grétu“
Í afar ítarlegri grein The Athletic um meint kynferðis- og ofbeldisbrot leikmanna karlalandsliðsins í fótbolta er meðal annars fjallað um andrúmsloftið á neyðarfundinum þar sem stjórn KSÍ sagði af sér.
The Athletic fjallar ítarlega um KSÍ-málið: „Víkingaklappið er að eilífu eyðilagt“
Fjallað er ítarlega um meint kynferðis- og ofbeldisbrot leikmanna íslenska karlalandsliðsins í grein The Athletic sem birtist í morgun.
Lögregla tjáir sig ekkert um rannsókn málsins
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun ekkert tjá sig um rannsókn sína á kærumáli sem snerta tvo knattspyrnumenn. Meint brot átti sér stað árið 2010 en brotaþoli í málinu lagði fram kæru í málinu á dögunum.
Eggert Gunnþór hafnar alfarið ásökunum um kynferðisbrot
Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH og fyrrverandi landsliðsmaður, hafnar því alfarið að hafa brotið kynferðislega á konu eftir landsleik Íslendinga í Danmörku árið 2010.
Gylfi Þór áfram laus gegn tryggingu til 16. janúar
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður, verður áfram laus gegn tryggingu til 16. janúar 2022. Gylfi er til rannsóknar hjá lögreglunni í Manchester á Bretlandi grunaður um að hafa brotið kynferðislega á barni.
Enn ekkert nýtt í máli Gylfa
Talskona lögreglunnar í Manchester á Bretlandi segir enn engar fregnir hafa borist um mál Gylfa Þórs Sigurðssonar, knattspyrnumanns. Gylfi er laus gegn tryggingu en það fyrirkomulag rann út á laugardag og taka átti ákvörðun í máli hans sama dag.
Þolendur kynferðiofbeldis
Skiptar skoðanir hafa verið uppi um málefni KSÍ og ekki auðvelt að greina rétt frá röngu. Margir kollegar mínir hafa séð sig knúna til að deila skoðunum sínum á málinu og hafa réttilega bent á margar grunnstoðir réttarríkisins.
Enn ekki búið að taka ákvörðun í máli Gylfa
Lögreglan í Manchester hefur enn ekki tekið ákvörðun hvort Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður, verði ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni, hvort hann verði áfram laus gegn tryggingu eða hvort mál hans verði látið niður falla.