Endurtalning í Norðvesturkjördæmi
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Undirbúningskjörnefnd kemur saman á opnum fundi í dag Undirbúningskjörnefnd kemur saman á fundi í dag til að fara yfir kærur sem borist hafa vegna framkvæmdar þingkosninganna í Norðvesturkjördæmi. Innlent 11.10.2021 06:38
Ummæli Birgis Ármannssonar óheppileg Fráfarandi þingmaður segir að hringekja hafi breyst í rússíbana þegar endurtalning breytti jöfnunarsætum með þeim afleiðingum að hún datt út af þingi. Hún gagnrýnir formann kjörbréfanefndar fyrir að lýsa yfir sinni persónulegri skoðun áður en nefndin hefur komist að niðurstöðu um Norðvesturkjördæmi. Innlent 10.10.2021 19:31
Líst ekkert sérlega vel á að kjósa aftur Fólk er almennt ekki sérlega spennt fyrir uppkosningu þrátt fyrir annmarka á talningu í Norðvesturkjördæmi. Framkvæmdin þar hefur laskað traust almennings á kosningum ef marka má viðmælendur fréttastofu. Innlent 10.10.2021 08:45
„Það skiptir máli hvaða manneskjur setjast á þing“ Formaður Stjórnarskrárfélagsins hefur lagt fram kæru vegna Alþingiskosninganna og kallar eftir að þjóðin öll gangi að kjörstöðum að nýju. Vistaskipti Birgis Þórarinssonar, þingmanns í Suðurkjördæmi, sýni svart á hvítu hve miklu máli skipti hvaða fólk hafi komist inn á þing. Innlent 9.10.2021 13:01
Átta hafa kært framkvæmd talningar Allir frambjóðendurnir sem duttu út sem jöfnunarþingmenn eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi, auk tveggja borgara, hafa kært framkvæmdina. Formaður undirbúningskjörbréfanefndar segir að ákveðið hafi verið að hafa fundi hennar opna. Innlent 8.10.2021 20:19
Tæpur fjórðungur vantreystir niðurstöðum kosninganna Tæpur fjórðungur landsmanna treystir niðurstöðum nýafstaðinna Alþingiskosninga illa. Traustið er komið niður í það sem þekkist í nágrannalöndum eftir að hafa sögulega séð verið mjög mikið hér á landi. Innlent 8.10.2021 11:41
Búið að uppfæra þingmannalistann á alþingi.is til samræmis við úrslitin eftir endurtalningu Búið er að uppfæra þingmannalistann á Alþingisvefnum til samræmis við úrslit kosninganna. Athygli vekur að það hefur verið gert í samræmi við niðurstöður seinni talningarinnar í Norðvesturkjördæmi, þrátt fyrir að hún hafi verið kærð. Innlent 8.10.2021 10:11
Undirbúningskjörbréfanefnd þarf góðan tíma til að meta kosningaúrslitin Formaður undirbúningskjörbréfanefndar Alþingis telur nefndina þurfa nokkrar vikur til að ljúka vinnu sinni vegna kæra sem borist hafa í tengslum við meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Innlent 6.10.2021 19:31
Bætist í hóp kærenda Alþingiskosninganna Lenya Rún Taha Karim, frambjóðandi Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, kærði í dag endurtalningu í Norðvesturkjördæmi. Hún hefði náð sæti sem jöfnunarþingmaður hefði niðurstaða upphaflegrar talningar staðið. Innlent 6.10.2021 17:42
Fulltrúar frá landskjörstjórn koma fyrir undirbúningsnefnd í dag vegna Norðvesturkjördæmis Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa mun funda í dag kl. 13. Þetta er annar fundur nefndarinnar, sem kom fyrst saman á mánudag, en fyrir henni, og í framhaldinu, kjörbréfanefnd, liggur að finna lausn á hinum ýmsu álitamálum sem komin er upp vegna talningar atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Innlent 6.10.2021 10:20
Fundir kjörbréfanefndar verða ekki allir opnir Fyrsti fundur undirbúningskjörbréfanefndar sem fór fram í dag gekk vel að sögn formanns hennar. Nefndarmenn eru almennt á því að fundir eigi að vera opnir þegar hægt er og vonast til að geta myndað breiða sátt um lausn á ágreiningi um kosningarnar. Innlent 4.10.2021 18:52
Segir ótvírætt að þingið hafi lokaorðið um gildi kosninga Formaður undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar segir alveg ótvírætt að þingið hafi síðasta orðið um það samkvæmt stjórnarskrá hvort kosningar séu gildar og hvort þingmenn séu rétt kjörnir. Innlent 4.10.2021 18:32
Birgir Ármannsson verður formaður kjörbréfanefndar Birgir Ármannsson var kjörinn formaður kjörbréfanefndar á fyrsta fundi undirbúningsnefndarinnar í dag. Hann hefur gegnt því hlutverki áður og hefur jafnframt langmesta reynslu allra af störfum í nefndinni. Innlent 4.10.2021 12:39
Skipta út konu fyrir karl vegna jafnréttissjónarmiða Breyting hefur orðið á vali Framsóknarflokksins í kjörbréfanefnd. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur hefur verið skipt út fyrir Jóhann Friðrik Friðriksson. Innlent 4.10.2021 12:58
Ræða hvort fundirnir verði opnir öllum Undirbúningskjörbréfanefnd kemur saman klukkan eitt í dag á nefndarsviði Alþingis til að hefjast handa við að reyna að leysa úr þeirri flóknu stöðu sem er komin upp eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Á fundinum verður formaður nefndarinnar valinn og meðal annars rætt hvort fundir hennar verði opnir eða ekki. Innlent 4.10.2021 11:52
Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar fundar í dag Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar Alþingis fundar í dag og fer þar yfir þau kjörbréf sem landskjörstjórn gaf út fyrir helgi. Nefndinni er falið að undirbúa tillögur til þingsins um afgreiðslu kjörbréfanna en hún þarf einnig að taka til umræðu kærur sem hafa borist, eða munu berast, vegna nýliðinna kosninga. Innlent 4.10.2021 06:59
Kjörbréfanefnd fullskipuð Undirbúningskjörbréfanefnd tekur væntanlega til starfa eftir helgi. Níu manns sitja í nefndinni. Innlent 2.10.2021 18:01
Landskjörstjórn gefur út kjörbréf samkvæmt seinni talningu í Norðvesturkjördæmi Landskjörstjórn gaf í dag út kjörbréf þeirra sextíu og þriggja þingmanna sem náðu kjöri til Alþingis í kosningunum á laugardag miðað við seinni talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Undirbúningskjörbréfanefnd þingsins tekur kjörbréfin til skoðunar á fundi á mánudag. Innlent 1.10.2021 17:38
Yfirstjórn í NV biður kjósendur og frambjóðendur afsökunar Yfirkjörstórn í Norðvesturkjördæmi biður frambjóðendur til Alþingis og kjósendur afsökunar á þeim mistökum sem áttu sér stað við talningu atkvæða í kjördæminu. Yfirkjörstjórnin harmar þá stöðu sem upp er komin. Framkvæmd kosninga hefur bæði verið kærð til lögreglu og kjörbréfanefndar. Innlent 1.10.2021 15:39
Kærendur talningar í Norðvesturkjördæmi vilja ógilda kosningar í kjördæminu Magnús Davíð Norðdahl frambjóðandi í fyrsta sæti Pírata í Norðvesturkjördæmi í kosningunum á laugardag vill að kosningarnar í kjördæminu verði ógiltar og kosið aftur. Hann afhenti Alþingi kæru þessa efnis í dag sem frambjóðandi í kjördæminu, almennur kjósandi og sem umboðsmaður Pírata í málinu. Innlent 1.10.2021 14:54
Kæran komin í hendur forseta Alþingis Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi og lögmaður, segist trúa því og treysta að þingmenn skoði kosningakæru sem hann afhenti forseta Alþingis í dag af fullri sanngirni og alvöru. Innlent 1.10.2021 13:14
Telur að fjöldi muni leita réttar síns sama hvað verður ákveðið Samfylkingin virðist vera eini flokkurinn sem hefur þegar tilnefnt fulltrúa í kjörbréfanefnd til bráðabirgða. Hinir flokkarnir gera það síðar í dag. Oddviti Pirata hyggst kæra kosningarnar til Alþingis í dag. Þingmaður Samfylkingarinn segir líkur á að fjöldi einstaklinga muni leita réttar síns. Innlent 1.10.2021 12:00
Tveir flokkar fá ekki sæti í kjörbréfanefnd Á morgun kemur í ljós hverjir munu sitja í kjörbréfanefnd Alþingis, sem mun þurfa að leysa þá flóknu stöðu sem upp er komin eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Ákall er uppi um að störf nefndarinnar fari fram fyrir opnum tjöldum. Innlent 30.9.2021 19:31
Kosningaskandallinn og mögulegar lausnir í Pallborðinu Hin umdeilda staða sem upp er komin eftir kosningarnar og mistök við framkvæmd talningar í Norðvesturkjördæmi var til umræðu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14 í dag. Innlent 30.9.2021 12:48
Mjög mikilvægt að nefndin sé hlutlaus Starfandi forseti Alþingis segir mikilvægt að kjörbréfanefnd njóti trausts og sé hlutlæg. Hann telur að það yrði erfitt fyrir jöfnunarþingmenn eða þingmenn Norðvesturkjördæmis að taka sæti í nefndinni. Innlent 30.9.2021 11:31
Skipt um lás í Suðvesturkjördæmi og öryggisvörður gætti gagna í Ráðhúsinu Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis virðist hafa gengið hvað lengst til þess að tryggja öryggi kjörgagna á kjördag og eftir talningu atkvæða. Skipt var um lás á geymslunni þar sem kjörgögnin voru geymd og eini lykillinn að henni skilinn eftir í vörslu yfirkjörstjórnar. Innlent 30.9.2021 11:28
Fimm ástæður fyrir að endurtaka kosningarnar í heild sinni Eins og fram kom í fréttum í gær hefur Mannréttindadómstóllinn þegar komist að því að kerfi þar sem þingmenn úskurði sjálfir um lögmæti kjörs síns standist ekki 3. grein I. viðauka við lögfestan Mannréttindasáttmála Evrópu. Skoðun 30.9.2021 11:00
Alvarlegasti misbrestur í lýðveldissögunni Karl Gauti Hjaltason, fráfarandi þingmaður Miðflokksins, segir að þetta sé í fyrsta sinn í lýðveldissögu Íslands sem alvarlegur misbrestur hafi komið upp við framkvæmd kosninga. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, segir stöðuna vera fádæma klúður. Innlent 29.9.2021 23:52
Vilja ekki nýjar kosningar í Norðvesturkjördæmi: „Bíttar þetta svo miklu?“ Íbúar í Norðvesturkjördæmi eru fæstir á þeim buxunum að blása eigi til nýrra kosninga eftir að annmarkar á framkvæmd þeirra í kjördæminu komu í ljós. Innlent 29.9.2021 22:30
Íslendingar ættu ekki von á góðu í Strassbourg Mannréttindadómstóll Evrópu telur ótækt að þingmenn greiði sjálfir atkvæði um lögmæti eigin kjörs, eins og til stendur hér á landi. Lögfræðiprófessor segir Íslendinga enn geta komið í veg fyrir að kosningin í Norðvesturkjördæmi fari til Strassbourg, en þá þurfi að hafa hraðar hendur. Innlent 29.9.2021 20:30