

Berglind Björg Þorvaldsdóttir var nokkuð róleg við markaskorun í upphafi landsliðsferilsins en hefur skorað sex mörk fyrir landsliðið síðasta eina og hálfa árið. Eitt þeirra kom í 0-5 útisigrinum á Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM á fimmtudaginn.
Dagný Brynjarsdóttir lék sinn hundraðasta landsleik þegar Ísland rúllaði yfir Hvíta-Rússland, 0-5, í undankeppni HM á fimmtudaginn. Hún bjóst ekki endilega við að ná þessum áfanga og litlu munaði að hún þyrfti að spila tímamótaleikinn í nýjum takkaskóm.
Sif Atladóttir, aldursforseti íslenska fótboltalandsliðsins, á von á erfiðum leik gegn Tékkum í undankeppni HM á þriðjudaginn. Með sigri í honum komast Íslendingar á topp C-riðils undankeppninnar.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir segir að íslenska fótboltalandsliðið sé ánægt með hvernig það spilaði í 0-5 sigrinum á Hvíta-Rússlandi á fimmtudaginn. Á þriðjudaginn mætir Ísland svo Tékklandi í afar mikilvægum leik í undankeppni HM.
Agla María Albertsdóttir segir að íslenska kvennalandsliðið gangi sátt frá borði eftir 0-5 sigurinn á Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM í fyrradag.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, var sáttur með fimm marka sigur á Hvíta-Rússlandi er liðin mættust í undankeppni HM kvenna í fótbolta. Íslensku stelpurnar mættu öflugar til leiks og sigruðu leikinn 5-0.
Glódís Perla Viggósdóttir, sem spilaði sinn 100. landsleik í dag, var sátt með sigur á Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM kvenna í fótbolta. Íslensku stelpurnar opnuðu markareikninginn snemma leiks og lögðu jafnt og þétt inn á hann. Lokatölur 5-0.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir sýnir Úkraínu samstöðu með táknrænum hætti í landsleik Íslands og Hvíta-Rússlands sem nú stendur yfir í Belgrad í Serbíu.
Ísland mætti Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM kvenna í fótbolta í dag. Leikurinn fór fram á Bojan Majic Stadium í Belgrad. Íslensku stelpurnar mættu öflugar til leiks og sigruðu 5-0. Með sigrinum fara þær á topp riðilsins og mæta Tékklandi næsta þriðjudag, þær þurfa jafntefli í þeim leik til þess að tryggja sér sæti á HM.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir stendur á milli stanganna hjá íslenska landsliðinu í leiknum gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM 2023 í dag. Sara Björk Gunnarsdóttir byrjar á varamannabekknum.
Dagný Brynjarsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir eru báðar í byrjunarliði Íslands sem mætir Hvíta-Rússlandi klukkan 16 og ná því 100 landsleikja áfanganum á sama tíma.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, segir ekki koma annað til greina en að leggja allt í sölurnar í Belgrad í dag til að ná sigri gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM.
Íslenska U-19 landslið kvenna tapaði 2-1 gegn því belgíska í milliriðli undankeppni EM 2022. Leikið var á St. George's Park á Englandi í A-riðli.
Ekki var að heyra á Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur að nein togstreita hefði myndast varðandi fyrirliðahlutverkið í íslenska landsliðinu í fótbolta við endurkomu Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í hópinn.
Staðan á leikmannahópi íslenska landsliðsins er nokkuð góð fyrir leikinn mikilvæga við Hvíta-Rússland í Belgrad á morgun, í undankeppni HM kvenna í fótbolta.
Sara Björk Gunnarsdóttir segist hafa átt kost á því að taka son sinn með í verkefnið með íslenska landsliðinu. Hann verði hins vegar hjá föður sínum í Frakklandi á meðan því stendur.
Þegar er orðið uppselt á fyrsta leik Íslands á Evrópumóti kvenna í fótbolta í sumar, þegar liðið mætir Belgíu í Manchester 10. júlí.
Íslenska U17 ára landslið kvenna vann 1-0 sigur á Slóvakíu í milliriðlum undankeppni EM 2022. Riðillinn er allur leikinn í Dublin á Írlandi.
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari gat valið Elínu Mettu Jensen í landsliðshóp sinn í dag, í fyrsta sinn síðan í júní á síðasta ári. Hann var spurður út í sögusagnir þess efnis að Elín Metta hefði ætlað að hætta í fótbolta.
Á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag tilkynnti Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hvaða leikmenn færu í leikina mikilvægu við Hvíta-Rússland og Tékklandi í undankeppni heimsmeistaramótsins.