Landslið karla í handbolta
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 34 ›
Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur leik á HM í Zagreb næsta fimmtudagskvöld. Nýjar landsliðstreyjur úr smiðju Adidas eru enn ófáanlegar fyrir stuðningsmenn, og í versta falli fara treyjurnar ekki í sölu fyrr en eftir heimsmeistaramótið. Handbolti 10.1.2025 08:03
Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Íslenska karlalandsliðið í handbolta varð fyrir áfalli í kvöld þegar línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson meiddist í leik á móti Svíum. Handbolti 9.1.2025 22:01
Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 31-31 | Góð fyrirheit fyrir HM Ísland og Svíþjóð skildu jöfn, 31-31, í fyrri vináttulandsleik þjóðanna í handbolta karla í kvöld. Leikið var í Kristianstad. Svíar tryggðu sér jafntefli með því að skora síðustu tvö mörk leiksins. Handbolti 9.1.2025 17:18
Fengið spark í rassgatið frá Guðjóni Val Teiti Erni Einarssyni gefst stórt tækifæri á komandi heimsmeistaramóti að stimpla sig inn í íslenska landsliðið í fjarveru sveitungs síns Ómars Inga Magnússonar. Þetta er tækifæri sem Teitur hyggst grípa báðum höndum. Handbolti 9.1.2025 10:01
Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar Bjarki Már Elísson var nokkuð hress þrátt fyrir örlitla þreytu fyrir landsliðsæfingu handboltalandsliðsins í gærmorgun. Hann er klár í slaginn fyrir komandi heimsmeistaramót. Handbolti 8.1.2025 14:31
Gamli landsliðsmarkvörðurinn í íslenska teymið Roland Valur Eradze verður markvarðaþjálfari íslenska karlalandsliðsins á komandi heimsmeistaramóti í handbolta. Hann snýr aftur í stöðuna eftir að hafa gegnt henni í þjálfaratíð Geirs Sveinssonar. Handbolti 8.1.2025 11:15
Meiðslin sett strik í undirbúning Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, kveðst bjartsýnn fyrir komandi verkefni. Ísland leikur tvo æfingaleiki við Svía í vikunni áður en keppni hefst á HM í næstu viku. Handbolti 7.1.2025 19:01
Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Aron Pálmarsson, landsliðsmaður Íslands í handbolta, mun ekki spila með liðinu í riðlakeppninni á komandi heimsmeistaramóti vegna kálfameiðsla. Búist er við því að hann mæti til leiks í milliriðli. Handbolti 7.1.2025 11:07
„Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ Viggó Kristjánsson verður í burðarhlutverki í íslenska landsliðinu á komandi heimsmeistaramóti í ljósi fjarveru Ómars Inga Magnússonar og í aðdraganda mótsins hefur mikið gengið á. Handbolti 6.1.2025 08:33
Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu Elvar Örn Jónsson, einn af burðarásum íslenska handboltalandsliðsins, vonast til þess að geta brátt tekið fullan þátt í lokaundirbúningnum fyrir HM. Hann er á toppi þýsku 1. deildarinnar með liði sínu Melsungen. Handbolti 5.1.2025 10:45
„Við eigum okkur allir drauma“ Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, fór yfir stöðuna nú þegar lokaundirbúningur er hafinn af fullum krafti fyrir HM. Fyrsti leikur Íslands er við Grænhöfðaeyjar 16. janúar í Zagreb. Handbolti 4.1.2025 11:02
Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ Hryðjuverkin á jólamarkað í Magdeburg, þar sem að fimm manns létu lífið og um tvö hundruð særðust, snertu íslenska landsliðsmanninn Gísla Þorgeir Kristjánsson sem leikur með handboltaliði bæjarins djúpt. Gísli Þorgeir er nú mættur til móts við íslenska landsliðið sem undirbýr sig af krafti fyrir komandi heimsmeistaramót. Handbolti 4.1.2025 08:00
„Svakalega leiðinlegt fyrir bæði hann og okkur“ „Við dílum við þetta,“ segir Gísli Þorgeir Kristjánsson, liðsfélagi Ómars Inga Magnússonar í landsliðinu og hjá Magdeburg. Gísli er á leið á HM en nú án þess að hafa Ómar við hlið sér því sá síðarnefndi glímir við ökklameiðsli. Handbolti 3.1.2025 13:00
„Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ „Það er alltaf allt jákvætt svona í byrjun og svo þurfum við að halda því þannig,“ segir Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, ánægður með byrjunina á undirbúningi fyrir HM í handbolta. Hann hefur einnig notið þess í botn að snúa á ný í atvinnumennsku í vetur, með Veszprém, og fékk blíðar viðtökur hjá sínu gamla félagi þrátt fyrir viðskilnaðinn árið 2017. Handbolti 3.1.2025 11:54
Elvar og Aron taka ekki fullan þátt Elvar Örn Jónsson og Aron Pálmarsson gátu ekki beitt sér að fullu á æfingu íslenska handboltalandsliðsins í dag, annan daginn í röð. Báðir ættu hins vegar að vera klárir í slaginn þegar HM hefst en fyrsti leikur Íslands þar er eftir þrettán daga. Handbolti 3.1.2025 10:59
Ballið byrjar hjá strákunum okkar Íslenska karlalandsliðið í handbolta er byrjað að æfa fyrir heimsmeistaramótið sem brátt hefst í Króatíu, Danmörku og Noregi. Handbolti 2.1.2025 13:32
Strákarnir þurftu að sætta sig við silfur annað árið í röð Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum nítján ára og yngri þurftu að sætta sig við fjögurra marka tap í úrslitum Sparkassen Cup í Þýskalandi í kvöld. Handbolti 29.12.2024 20:03
Strákarnir komnir í úrslit Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum nítján ára og yngri er komið í úrslit á Sparkassen Cup í Þýskalandi eftir eins marks sigur á Serbíu í undanúrslitum, 28-27. Handbolti 29.12.2024 13:14
Íslensku strákarnir komnir í undanúrslit Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum nítján ára og yngri er komið í undanúrslit á Sparkassen Cup í Merzig í Þýskalandi. Handbolti 28.12.2024 17:32
Elín og Ómar valin handknattleiksfólk ársins Elín Jóna Þorsteinsdóttir og Ómar Ingi Magnússon hafa verið valin handknattleiksfólk ársins af stjórn HSÍ. Handbolti 28.12.2024 09:31
Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Þýska handknattleiksdeildin hefur nú samþykkt að heimaleik Magdeburgar við Erlangen, sem fara átti fram annan í jólum, verði frestað um ótilgreindan tíma vegna grimmdarverkanna á jólamarkaðnum í Magdeburg. Handbolti 23.12.2024 12:30
„Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ „Það er fínt að koma þessu frá sér að tilkynna hópinn. Núna tekur við smá bið. Ég hlakka til að fá þá í hendurnar og byrja að æfa,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, sem kynnti leikmannahópinn sem keppir fyrir Íslands hönd á HM í Zagreb í janúar. Handbolti 19.12.2024 18:00
Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, segir það í raun fínt að Ómar Ingi Magnússon sé ekki „spurningamerki“ fyrir heimsmeistaramótið í næsta mánuði. Meiðsli hans séu þannig að Snorri þurfti strax að finna leiðir til að spila án Ómars. Handbolti 19.12.2024 14:43
Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti í dag hvaða leikmenn fara fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramót karla í handbolta í næsta mánuði. Handbolti 19.12.2024 14:07
Snorri kynnti HM-hóp Íslands Strákarnir okkar hefja keppni á HM í handbolta í Zagreb 16. janúar. Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti í dag hvaða leikmenn verða í HM-hópnum, í beinni útsendingu á Vísi. Handbolti 19.12.2024 13:32
Ljóst hvar stórmótin í kringum HM á Íslandi verða Handknattleikssamband Evrópu, EHF, greindi frá því í dag hvar EM karla 2030 og 2032 verða haldin, og hvar EM kvenna 2032 verður haldið. Engar þjóðir sóttu um að halda EM kvenna 2030 og því óvíst hvar það fer fram. Handbolti 14.12.2024 13:32
Landsliðstreyjan ekki í sölu fyrir jól Ný landsliðstreyja HSÍ fer ekki í sölu fyrir jólin en stefnt er að því að hefja sölu á henni áður en HM karla hefst í næsta mánuði. Handbolti 11.12.2024 13:30
Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Ómar Ingi Magnússon, lykilmaður í íslenska landsliðinu í handbolta sem og stórliði Magdeburgar, segir því fylgja mikil vonbrigði og svekkelsi að hafa meiðst illa í síðasta leik með þýska liðinu. Að öllum sé það ekki séns fyrir hann að ná heilsu fyrir komandi Heimsmeistaramót. Handbolti 3.12.2024 14:05
Útilokar ekki að Ómar Ingi verði með á HM Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, segir það mikið högg ef Ómar Ingi Magnússon verður ekki með á HM í næsta mánuði. Hann er samt ekki tilbúinn að útiloka þátttöku hans á mótinu. Handbolti 3.12.2024 13:31
Ómar Ingi ekki með á HM Íslenski landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon mun ekki geta tekið þátt á HM með íslenska landsliðinu í næsta mánuði sökum meiðsla sem hann varð fyrir í leik með Magdeburg um síðastliðna helgi. Handbolti 3.12.2024 12:23
Umfjöllun: Egyptaland - Ísland 24-27 | Annar frábær sigur og átta liða úrslit í sjónmáli Handbolti
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent