
Ný þjóðarhöll

Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna
Einhverrar óánægju gætir vegna þess hvernig staðið hefur verið að úthlutun miða á mikilvæga landsleiki í körfubolta, líkt og í gærkvöld þegar Ísland mætti Tyrklandi í leik upp á sæti á EuroBasket. Framkvæmdastjóri KKÍ bendir á að nauðsynlegt sé fyrir sambandið að selja sem flesta miða.

Utan vallar: Hver ber ábyrgð á því hvað við erum glötuð?
Víkingar spila heimaleik í Helsinki í dag og Ísland spilar heimaleik í Murcia í næsta mánuði. Hverjum ber að þakka fyrir þessa ömurlegu stöðu í vallarmálum hér á landi, innan- sem utanhúss?

Þrjú teymi vilja hanna og byggja nýju þjóðarhöllina
Þrjú teymi hafa verið valin til þátttöku í samkeppnisútboði um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir í Laugardal í Reykjavík.

Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin?
Ný þjóðarhöll fyrir inniíþróttir, nýr knattspyrnuleikvangur og nýr frjálsíþróttaleikvangur eru á meðal þess sem íslensk landslið bíða eftir. Vísir spurði stjórnmálaflokkana sem bjóða fram á landsvísu í komandi Alþingiskosningum út í stefnu þeirra í þessum málum.

Þjóðarhöll sleppur við mat á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Þjóðarhöll í Laugardal skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands
Smíði nýrrar þjóðarhallar Færeyinga skotgengur og er stefnt að því að fyrstu kappleikirnir verði spilaðir í febrúar á næsta ári. Borgarstjóri Þórshafnar býður Íslendingum að nýta færeysku höllina undir landsleiki Íslands.

HSÍ keyri sig ekki aftur í þrot vegna HM
Alþjóðahandknattleikssambandið tilkynnti í dag að Ísland muni halda HM karla í handbolta árið 2031 ásamt Danmörku og Noregi. Framkvæmdastjóri sambandsins segir það mikil gleðitíðindi og spennan mikil fyrir verkefninu.

Spenntur fyrir að halda HM með Íslendingum
Kåre Geir Lio, formaður norska handknattleikssambandsins, segir það tilhlökkunarefni að halda heimsmeistaramót karla með Íslendingum og Dönum árið 2031.

„Verður ekki aftur snúið“
Stórt skref var stigið í átt að nýrri Þjóðarhöll í dag er verkið var auglýst fyrir samkeppnisútboð. Ráðherra og formaður Þjóðarhallar ehf eru bjartsýnir á framhaldið.

Ásmundur Einar: „Formleg yfirlýsing um pólitískan stuðning“
Stjórnvöld hafa lýst yfir stuðningi sínum við umsókn sameiginlegs framboðs Íslands, Danmerkur og Noregs um að halda HM í handbolta karla 2029 eða 2031.

Stjórnvöld leggja HSÍ til þrjár milljónir vegna HM-umsóknar
Stjórnvöld hafa lýst yfir stuðningi sínum við umsókn sameiginlegs framboðs Íslands, Danmerkur og Noregs um að halda HM í handbolta karla 2029 eða 2031.

Kaldar kveðjur til Þróttar og KR
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn segir ekki nægilega skýrt hvernig eða hvort brugðist sé við þeim bráðavanda sem myndast hafi í aðstöðumálum íþróttafélaga og grunnskóla í Laugardal með nýrri þjóðarhöll.

„Komin býsna mikil alvara í málið“
Ráðherra íþróttamála segir tímamótaskref hafa verið tekið í átt að byggingu nýrrar þjóðarhallar í vikunni. Stefnt er að því að höllin rísi árið 2027.

Verður formaður stjórnar Þjóðarhallar
Jón Arnór Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, hefur verið skipaður formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf., nýs félags ríkis og borgar sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal.

Næsta mál sé að ráðast í útboð, úthluta lóðinni og sjá bygginguna rísa
Undirritun samkomulags um stofnun félags um uppbyggingu Þjóðarhallar í Laugardal er risastórt hagsmunamál að sögn borgarstjóra Reykjavíkur, enda verði höllin lykilinnviður fyrir íþróttir. Næsta mál sé að ráðast í úrboð og úthluta lóðinni.

Þjóðarhöll enn og aftur hjálpað á koppinn
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að þau risastóru tímamót hafi orðið fyrr í dag að skrifað var undir samkomulag um stofnun félags um uppbyggingu Þjóðarhallar í Laugardal.

Styttist í hönnunarútboð Þjóðarhallar
Ásmundur Einar Daðason segir að hönnunarútboð nýrrar þjóðarhallar sé á næsta leyti. Kostnaðarskipting á milli ríkis og borgar sé langt komin.

Sammála Þorsteini: „Til háborinnar skammar“
Barna- og menntamálaráðherra fagnar gagnrýni landsliðsþjálfara kvenna í fótbolta á hans störf. Hann segir aðstöðumál afreksíþrótta á Íslandi vera til skammar.

Ásmundur lofaði Hasan Moustafa nýrri þjóðarhöll
Ásmundur Einar Daðason, ráðherra íþróttamála á Íslandi, hitti Hasan Moustafa, alræmdan forseta Alþjóðahandboltasambandsins, IHF, oftar en einu sinni í Stafangri síðustu daga. Hann lofaði Egyptanum að Ísland myndi reisa nýja þjóðarhöll áður en kæmi að HM sem fer mögulega fram að hluta á Íslandi, árið 2029 eða 2031.

Vill umbylta starfinu og byggja stjórnstöð: „Dauðafæri að vinna gullið“
Húsfylli var á ráðstefnu í Hörpu í vikunni þegar kynnt var til sögunnar ný stefna í afreksíþróttum hérlendis. Afreksstjóri ÍSÍ segir Ísland vera í dauðafæri að bæta árangurinn en ljóst er að ef stefnan gengur eftir mun það kosta sitt.

HSÍ sækir um að halda HM karla í handbolta
Handknattleikssamband Íslands er hluti af samnorrænu boði handknattleikssambanda Íslands, Danmerkur og Noregs sem vilja halda HM karla í handbolta árið 2029 eða 2031.

Ný þjóðarhöll mun aldrei rísa árið 2025
Ljóst er að ný þjóðarhöll fyrir innanhúsíþróttir mun ekki rísa árið 2025 líkt og stefnt hafði verið að. Hægt hefur verið á verkefninu og segist Gunnar Einarsson, formaður framkvæmdanefndar um þjóðarhöll, nú vonast til að þjóðarhöll verði risin í fyrsta lagi í árslok 2026.

Gera ráð fyrir þjóðarhöll í deiliskipulagsbreytingu
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur auglýst nýtt deiliskipulag fyrir Laugardal. Breytingin felur í sér rými fyrir þjóðarhöll en hámarks byggingarmagn hallarinnar er nítján þúsund fermetrar.

Hundruðum barna gert að víkja úr Höllinni
Mikil bikarhátíð í handbolta er að hefjast í Laugardalshöll á morgun og stendur hún yfir fram á sunnudag. Á þeim tíma falla niður æfingar hjá hundruðum barna í Laugardal.

Leikurinn í kvöld mögulega sá síðasti en HM gæti veitt landsliðunum líflínu
Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, ræddi við Gaupa í Laugardalshöll í dag fyrir leikinn við heims- og Evrópumeistara Spánar, í undankeppni HM. Vegna skorts á fjármagni óttast Hannes að þetta gæti orðið síðasti landsleikur Íslands í bili.

Heimurinn hrynji ekki þó tímalína raskist
Mennta- og barnamálaráðherra heldur fast í tímaáætlun þjóðarhallar og telur raunhæft að höllin muni rísa árið 2025. Kostnaður við uppbyggingu eru tæpir fimmtán milljarðar og skipting milli ríkis og borgar liggur ekki fyrir. Upphaflega sagðist Reykjavíkurborg eiga tvo milljarða til.

Þjóðarhöllin mun kosta ryksugubarka í opinbera sjóði
Þrír vinir rituðu um margt upplýsandi grein á visir.is í gær, föstudag, í nafni samtaka arkitektastofa, félags ráðgjafarverkfræðinga og félags verktaka sem bar heitið „Hvað kostar Þjóðarhöllin?“.

Hvað kostar Þjóðarhöllin?
Áætlaður kostnaður við byggingu nýrrar Þjóðarhallar er 15 milljarðar króna samkvæmt nýlegri kynningu forsætisráðuneytisins, mennta- og barnamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Framkvæmdin er umfangsmikil í samanburði við önnur mannvirki sem byggð hafa verið á Íslandi.

„Trúum ekki öðru en að stærsta innigrein landsins fái pláss“
Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambands Íslands, kallar eftir því að ráðamenn sýni að gert sé ráð fyrir fimleikum í nýju þjóðarhöllinni sem stefnt er að því að rísi í Laugardal árið 2025.

Svara þurfi spurningunum hver eigi, hver byggi og hver borgi
Fjármálaráðherra segir lykilatriði að fá á hreint hve stóran hlut ríki og borg þurfi að greiða fyrir nýja þjóðarhöll sem áætlað er að taka í notkun árið 2025. Vel gerlegt sé að reisa höllina á þeim tíma en þá þurfi allt að ganga upp.