Landsbankinn
1 2 3 4 5 6 7 8 … 9 ›
Kaup Landsbankans á TM: Um banka og samfélagið Fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM Tryggingum kom mörgum á óvart. Í kjölfar frétta af fyrirætlunum bankans fóru á flug gamalkunnugar yfirlýsingar um að ríkið eigi ekki að standa í fjármálastarfsemi – og sumir vilja alls ekki að fyrirtæki í eigu ríkisins auki við starfsemi sína. Einn ráðherra lýsti því yfir að verði af kaupunum þurfi að einkavæða Landsbankann, væntanlega í flýti. Skoðun 30.3.2024 22:31
„Einkafyrirtæki myndi ekki taka ákvarðanir sem gengu í berhögg við vilja eigenda“ Sérfræðingur í Evrópurétti telur að eftirlitsstofnun EFTA muni taka til skoðunar fyrirhuguð kaup Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni. Slík skoðun gæti tekið langan tíma, en kaupin mættu ekki fara fram meðan á henni stæði. Innlent 30.3.2024 20:24
Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Meirihluti þjóðarinnar er óánægður með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Þetta leiðir ný könnun Prósents í ljós. Viðskipti innlent 29.3.2024 09:40
Fundar með Bankasýslunni í dag Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra segir næsta skref hjá sér, vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum, vera að funda með Bankasýslu ríkisins. Boðað hefur verið til fundar um málið í dag. Viðskipti innlent 26.3.2024 11:53
Bankasýslan þögul sem gröfin Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, hyggst ekki veita viðtal um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM. Óljóst er hvort Bankasýslan fallist á frásögn formanns bankaráðs af símtali, þar sem hann segist hafa upplýst stjórnarformann Bankasýslunnar um óskuldbindandi tilboð bankans í TM. Viðskipti innlent 26.3.2024 10:54
Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Óljóst er hvort formaður bankaráðs Landsbankans hafi minnst á að óskuldbindandi kauptilboð hafi verið gert í TM tryggingar í símtali við stjórnarformann Bankasýslunnar í desember eða hvort tilefni símtalsins hafi verið að ræða tilboðið. Bankasýslan hefur ekki staðfest hvort tilboðið hafi verið rætt í símtalinu, sem formaður bankaráðs fullyrðir. Viðskipti innlent 26.3.2024 07:30
Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Tryggvi Pálsson, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, ætlar ekki að tjá sig um kaup Landsbankans á TM fyrr en í fyrsta lagi í vikunni fyrir aðalfund Landsbankans. Misræmi hefur verið í frásögn Bankasýslunnar og Landsbankans af því hvert innihald símtals milli Tryggva og formanns bankaráðs Landsbankans í desember var. Viðskipti innlent 25.3.2024 14:16
Athugasemdir við eignaumsýslu Landsbanka Íslands Allmikil umræða hefur skapast um vilja stjórnenda Landsbanka Íslands til að endurvekja Brunabótafélag Íslands í endurnýjaðri mynd með kaupum á Tryggingamiðstöðinni,TM. Eins og vant er hafa allir aðilar máls mundað fingurinn og benda sem ákafast hver á annan. Skoðun 25.3.2024 14:00
Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Formaður Bankaráðs Landsbankans segir ráðið telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýslu ríkisins um fyrirhuguð kaup á tryggingafélaginu TM. Bankasýslunni hafi fyrst verið greint frá áhuga bankaráðs á tryggingamarkaðnum síðasta sumar. Hún hafi ekki á neinum tímapunkti óskað eftir viðbótarupplýsingum um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM. Viðskipti innlent 22.3.2024 19:30
Íslandsbanki gerði tilboð í TM með fyrirvara um hækkun hlutafjár Þegar Íslandsbanki gerði skuldbindandi tilboð í TM þá var það meðal annars gert með því skilyrði að hluthafar, þar sem ríkissjóður er langsamlega stærstur, myndu samþykkja í kjölfarið að hækka hlutafé bankans til að standa undir kaupverðinu. Viðskiptin hefðu verið stærri í hlutfalli við eigin fé bankans borið saman við Landsbankann sem var með enga fyrirvara um samþykki hluthafafundar þegar tilboðið hans var samþykkt. Innherji 22.3.2024 18:53
Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Bankaráð Landsbankans segir Bankasýsluna hafa frá sumrinu 2023 hafa verið vel meðvitaða um áhuga bankaráðs á tryggingamarkaðnum og eftir atvikum kaupum á tryggingafélaginu TM. Samskiptin hafi farið fram í tölvupóstum, á fundum og símtölum. Helsta óvissan virðist vera um það sem fram kom í óformlegu símtali formanns bankaráðs og stjórnarformanns Bankasýslunnar í desember. Viðskipti innlent 22.3.2024 12:48
Lýsti yfir andstöðu við kaup á TM á fundi með stjórnendum Landsbankans Á fundi með lykilstjórnendum Landsbankans örfáum vikum áður en bankinn gerði skuldbindandi tilboð í allt hlutafé TM hafði fjármála- og efnahagsráðherra komið á framfæri andstöðu sinni við að bankinn myndi ráðast í slík kaup. Ráðherra, sem hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki beint tilmælum til Bankasýslunnar áður en kaupin færu fram, hefur sagt það óviðunandi að bankaráð Landsbankans hafi ekki upplýst stofnunina með formlegum hætti um áform bankans. Innherji 22.3.2024 10:59
Nær ómöglegt að hætta við kaupin Nær ómögulegt er fyrir Landsbankann að hætta við að kaupa TM að mati dósents við Háskóla Íslands. Hætti bankinn við séu allar líkur á að hann baki sér skaðabótaskyldu. Fjármálafyrirtæki hafi undanfarið keypt tryggingafyrirtæki og því ekkert óeðlilegt við kauptilboðið. Innlent 21.3.2024 21:00
Samfylkingin slær ryki í augu almennings Málflutningur Samfylkingarinnar í máli fyrirhugaðra kaupa Landsbankans á Tryggingamiðstöðunni veldur miklum vonbrigðum.Það var til að mynda ótrúlegt að hlusta á formann Samfylkingarinnar í Kastljósi í gærkvöldi. Í aðra röndina talaði hún um sjálfstæði Bankasýslunnar, en í hina lýsti hún mikilli furðu yfir því að fjármálaráðherra hefði ekki stigið sjálf fyrirfram inn í kaup Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni. Skoðun 20.3.2024 19:00
Tilboð Íslandsbanka í TM var með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Tilboð Íslandsbanka, sem er að minnihluta í eigu ríkissjóðs, í allt hlutafé TM var meðal annars háð því skilyrði að kaupin yrðu í kjölfarið samþykkt af hluthöfum bankans. Því var hins vegar ekki fyrir að fara hjá Landsbankanum þegar fallist var á skuldbindandi tilboð hans upp á samtals nálægt 30 milljarða króna í tryggingafélagið. Innherji 20.3.2024 17:00
„Sjálfgræðismenn“ vilji koma Landsbankanum í hendur auðmanna Stefán Ólafsson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, segir „sjálfgræðismenn“ í Sjálfstæðisflokknum hafa önnur áform en að láta rekstur Landsbankans skila góðum árangri á meðan hann er í eigu ríkisins. Pólitískt upphlaup Sjálfstæðismanna vegna kaupa Landsbankans á TM sé vegna þessa áforma. Innlent 19.3.2024 22:53
Landsbankinn gæti bakað sér bótaskyldu með því að hætta við Fari svo að Landsbankinn dragi skuldbindandi kauptilboð í allt hlutafé TM trygginga af Kviku banka til baka gæti síðarnefndi bankinn að öllum líkindum krafist skaðabóta. Fjármálaráðherra hefur sagt að kaupin gangi ekki í gegn með hennar samþykki nema söluferli á Landsbankanum hefjist samhliða. Það hefur forsætisráðherra sagt ekki koma til greina á hennar vakt. Innlent 19.3.2024 21:46
Landsbankanum bar að upplýsa Bankasýsluna Landsbankanum bar að upplýsa Bankasýsluna um fyrirætlanir sínar um kaup á TM tryggingum að mati fjármálaráðherra. Það samræmdist ekki stefnu stjórnvalda að bankinn haslaði sér völl í Tryggingarstarfsemi. Innlent 19.3.2024 19:21
Bauð talsvert betur en Íslandsbanki í baráttunni um að kaupa TM Fjórum mánuðum eftir að Kvika hafði hrundið af stað formlegu söluferli á TM var það ríkisfyrirtækið Landsbankinn, stærsti banki landsins á alla helstu mælikvarða, sem skilaði inn álitlegasta tilboðinu í allt hlutafé tryggingafélagsins – og ætlar sér núna að blása til sóknar þvert á vilja eigandans. Bankinn naut ráðgjafar fyrrverandi forstjóra annars tryggingafélags til margra ára við kaupin og er sagður hafa augljóslega langað mest allra tilboðsgjafa að komast yfir TM. Innherji 19.3.2024 15:03
Aðalfundi Landsbankans frestað Bankaráð Landsbankans ákvað á fundi sínum í dag að fresta aðalfundi bankans sem fara átti fram á morgun. Að höfðu samráði við Bankasýslu ríkisins hefur verið ákveðið að halda aðalfundinn föstudaginn 19. apríl. Viðskipti innlent 19.3.2024 13:50
Vill samskipti Þórdísar við Bankasýsluna upp á borð Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, furðar sig á því að Bankasýsla ríkisins og fjármálaráðherra hafi ekki brugðist við orðrómi um að Landsbankinn hygðist kaupa TM. Viðskipti innlent 19.3.2024 12:49
Ekki í stjórnarsáttmála að ríkisvæða tryggingafélög Fjármálaráðherra segir það ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar að selja hlut í Landsbankanum fyrr en sölu á Íslandsbanka verði lokið. Það samræmdist heldur ekki eigendastefnu stjórnvalda að Landsbankinn haslaði sér völl í tryggingastarfsemi. Viðskipti innlent 19.3.2024 12:36
Skynsemi í rekstri Landsbankans Landsbankinn virðist hafa verið betur rekinn undanfarin ár en hinir bankarnir, einkabankinn Arion og Íslandsbanki sem hefur verið að hluta í einkaeigu. Afkoman hefur oft verið betri hjá Landsbankanum og hann hefur verið með langlægsta kostnaðarhlutfallið. Skoðun 19.3.2024 11:30
„Þetta er að verða komið gott“ Formenn Miðflokksins og Samfylkingarinnar eru sammála um að fyrirhuguð sala ríkisins á Landsbankanum fari gegn eigandastefnu ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin tali í kross og málið beri þess merki að hún sé ekki sammála um grundvallaratriði. Innlent 18.3.2024 22:48
Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að stofnuninni hafi verið alls ókunnugt um kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum. Landsbankinn haldi því fram að upplýst hafi verið um áhuga bankans á kaupunum í óformlegu símtali til stjórnarformanns Bankasýslunnar. Innlent 18.3.2024 22:28
Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar Bankasýsla ríkisins hefur lýst yfir vonbrigðum með ákvarðanatöku og upplýsingagjöf bankaráðs Landsbankans um kaup bankans á TM. Bankasýslan krefst þess að aðalfundi Landsbankans verði frestað um fjórar vikur vegna fyrirséðra áhrifa kaupanna á dagskrá, umræður og niðurstöður fundarins. Innlent 18.3.2024 21:57
Bankastjóri segir það hennar hlutverk að reka Landsbankann Bankastjóri Landsbankans segist hlusta á fjármálaráðherra vegna fyrirhugaðra kaupa bankans á TM tryggingum. Það sé hins vegar hennar hlutverk að reka bankann og auka verðmæti hans. Innlent 18.3.2024 19:20
Tekur ekki þátt í að selja hlut í Landsbankanum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ljóst að hún muni ekki taka þátt í því að selja hlut ríkisins í Landsbankanum. Þetta sagði Katrín í svari við fyrirspurn Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Innlent 18.3.2024 16:22
Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Bankastjóri Landsbankans segir bankann ekki vera ríkisfyrirtæki heldur almenningshlutafélag nær eingöngu í eigu ríkisins. Bankinn muni halda áfram ferlinu við kaup á TM tryggingum þrátt fyrir andstöðu fjármálaráðherra. Viðskipti innlent 18.3.2024 13:09
Kvika tók kipp Gengi hlutabréfa Kviku banka hækkaði um tæplega fjögur prósent í fyrstu viðskiptum eftir að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 9:30 í morgun. Viðskipti innlent 18.3.2024 09:55