Titanic

Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina
Kafbáturinn Títan, sem fórst í leiðangri að flaki Titanic í fyrra, bilaði nokkrum dögum fyrir hinstu förina. Fimm létust í slysinu, þeirra á meðal Stockton Rush, forstjóri fyrirtækisins sem átti kafbátinn.

Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið
Starfsmaður fyrirtækisins sem átti kafbátinn sem fórst nærri flaki Títanik í fyrra segir að hægt hefði verið að komast hjá slysinu ef hlustað hefði verið á varnarorð hans. Ein síðustu skilaboðin sem bárust frá áhöfninn voru „allt í góðu hér“.

Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir
Vasaúr sem fannst á líki ríkasta mannsins sem var um borð í Titanic-skipinu þegar það sökk árið 1912 seldist á uppboði á rúmar 210 milljónir króna. Aldrei hefur minjagripur úr Titanic selst á hærra verði.

Sniðgekk hávaxna leikara til að spara pening
Leikstjórinn James Cameron réði bara aukaleikara sem voru undir 172 sentimetrar á hæð til að leika í Titanic. Þannig gat hann sparað 750 þúsund dollara, rúmar hundrað milljónir króna, við smíðar á kvikmyndasettinu.

Reyna að stöðva leiðangur að flaki Títaniks
Bandarísk stjórnvöld reyna nú að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðangur sem er ætlað að safna munum úr flaki Títaniks á botni Norður-Atlantshafsins. Þau telja að skilgreina skuli flakið sem helgan grafreit.

OceanGate hættir allri starfsemi
OceanGate, fyrirtækið sem átti og gerði út kafbátinn Titan, hefur hætt allri starfsemi. Frá þessu er greint á heimasíðu fyrirtækisins. Fimm létust þegar Titan fórst á dögunum.

Líkamsleifar fundust í flakinu af Titan
Líkamsleifar hafa fundist í brakinu af kafbátnum Titan, sem fórst skammt frá flakinu af Titanic fyrir um tveimur vikum síðan. Fimm voru innanborðs þegar slysið átti sér stað.

Titanic-leikarinn Lew Palter látinn
Leikarinn Lew Palter, þekktastur fyrir leik sinn í Titanic, lést þann 21. maí síðastliðinn á heimili sínu í Los Angeles af völdum lungnakrabbameins, 94 ára að aldri.

Fjölþjóðleg rannsókn á kafbátaslysinu í fullum gangi
Rannsakendur safna nú vísbendingum um um afdrif kafbátsins Títans sem fórst í Norður-Atlantshafi við flak Títanik saman á Nýfundnalandi. Fimm stofnanir frá fjórum löndum taka þátt í rannsókninni en ekki er ljóst hve langan tíma hún gæti tekið.

Polar Prince komið til hafnar og rannsókn á örlögum Titan hafin
Rannsakendur sáust ganga um borð í Polar Prince þegar skipið lagði að höfn í St. John's á Nýfundnalandi í dag. Skipið var stuðningsfley kafbátsins Titan, sem fórst á leið að flakinu af Titanic á sunnudag fyrir viku.

Áhafnar kafbátarins minnst um allan heim
Mannanna fimm sem létust um borð í kafbátnum Títan hefur verið minnst um allan heim undanfarinn sólarhring. Fjölskyldur þeirra hafa birt yfirlýsingar þar sem þær lýsa mikilli sorg vegna örlaga þeirra og segja þá munu lifa áfram í minningum þeirra.

Sjóherinn nam „frávik“ á sama tíma og samband rofnaði við Titan
Fregnir hafa borist af því að bandaríski sjóherinn hafi numið „frávik“ neðansjávar á sunnudag, sem var líklega sprengingin sem varð þegar kafbáturinn Titan féll saman vegna þrýstings.

Undravert hve lík örlög Titan og Titanic séu
James Cameron, leikstjóri Titanic og sjávarkönnuður, segir örlög kafbátsins Titan og skipsins Titanic ískyggilega lík. Hvort tveggja væru harmleikir þar sem skipstjórar voru varaðir við en hunsuðu ráðleggingar og héldu ótrauðir áfram út í dauðann.

Farþegar kafbátsins látnir
OceanGate, fyrirtækið sem stóð fyrir leiðangri kafbátsins Titan, hefur greint frá því að farþegar kafbátsins séu látnir. Talið er að kafbáturinn hafi sprungið eða fallið saman undan þrýstingi vegna galla.

Fundu brak sem sagt er vera úr kafbátnum
Brak fannst á svæðinu þar sem kafbátsins Titan, sem týndist í nágrenni við Titanic um helgina, er leitað. Samkvæmt köfunarsérfræðingi og vini farþega um borð í kafbátnum tilheyrir brakið Titan.

Nota fjarstýrðan kafbát en súrefnið á þrotum
Leitarmenn á Atlantshafi eru byrjaðir að nota franskan fjarstýrðan kafbát sem hægt er að nota til að senda myndir frá botni hafsins til yfirborðsins í rauntíma. Með honum geta leitarmenn séð botninn og leitað kafbátsins Títan, sem týndist á sunnudaginn er verið var að kafa honum að flaki skipsins Titanic.

Vonir um að bjarga fólkinu um borð í Titan dvína
Kafbáturinn Titan er enn ófundinn og jafnvel þótt von sé enn ekki úti um að finna hann segja sérfræðingar að afar erfitt yrði að ná honum upp á yfirborðið.

Leita á meðan vonin lifir
Leitin að kafbátnum Titan hefur enn engan árangur borið. Forsvarsmenn leitarinnar segja hana flókna og að áhersla sé lögð á að finna uppruna hljóðs sem heyrðist í gærkvöldi.

Hafa numið hljóð neðansjávar í leitinni að Titan
Kanadísk flugvél við leit að kafbátnum Titan hefur numið hljóð neðansjávar og uppruna þeirra er nú leitað. Þá vinna sérfræðingar í Bandaríkjunum að því að greina hljóðin.

Í kapphlaupi við tímann á miðju Atlantshafi
Umfangsmikil leit stendur nú yfir að kafbát sem hvarf nærri flaki Titanic á sunnudag. Talið er að fimm manns hafi verið um borð í skemmtiferð til að skoða flakið skipsins á tæplega fjögur þúsund metra dýpi.

Leita kafbáts sem hvarf nærri Titanic
Lítill kafbátur sem notaður er til að ferja ferðamenn að flaki Titanic er horfinn. Leit stendur nú yfir en talið er að allt að fimm manns hafi verið um borð í kafbátnum þegar hann hvarf.