
Fréttir ársins 2023

Mynd ársins af palestínskum flóttamanni
Kjartan Þorbjörnsson og Kristinn Magnússon hlutu í dag verðlaun fyrir mynd ársins og fréttamynd ársins. Tilkynnt var um valið á viðburði í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Þar var á sama tíma opnuð ljósmyndasýning sem stendur opin til 18. maí.

Þetta voru vinsælustu nöfnin á liðnu ári
Birnir var vinsælasta fyrsta eiginnafn drengja á síðasta ári og Emilía var vinsælast á meðal stúlkna. Þór var vinsælasta annað eiginnafn drengja og María á meðal stúlkna.

Barbie tekjuhæst og vinsælust á Íslandi í fyrra
Tekjuhæsta mynd ársins í kvikmyndahúsum á Íslandi var, eins og annars staðar í heiminum, kvikmyndin Barbie. Kvikmyndin halaði inn yfir 134 milljónum króna í miðasölu á Íslandi í fyrra.

Leikirnir sem beðið er eftir
Auk dauðans er tíminn eini fasti tilverunnar. Tíminn flæðir áfram eins og stórfljót og öll sitjum við föst í þungum straumum hans, þar til við sökkvum, eitt af öðru, og hverfum af þessu sviði sem alheimurinn er. Áður en maður veit af hafa árin svifið hjá og skilið lítið sem ekkert eftir sig, jú, nema tölvuleiki.

Árið 2023 það hlýjasta í sögunni
Árið 2023 var hlýjasta árið síðan mælingar hófust. Það var 1,48 gráðu hlýrra en að meðaltali miðað við hitastig frá því fyrir iðnbyltingu, að því er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins.

Á döfinni í fyrra: Vinnan okkar, verkefnin og líðanin
Á sunnudögum í janúar ætlum við að rifja upp verkefnin og viðtöl úr Atvinnulífinu í fyrra. Við byrjum á því að rifja upp alls kyns verkefni úr vinnunni okkar.

Færri viðvaranir í fyrra en oft áður
Samtals voru gefnar út 311 viðvaranir af Veðurstofu Íslands árið 2023. Frá árinu 2018 hafa að meðaltali verið gefnar út 380 viðvaranir árlega og var árið í fyrra því heldur undir meðallagi.

Vetrarparadísin höfðar til íslenskra bókakaupenda
Þá liggur það fyrir og kemur ekki á óvart; söluhæsta bók síðasta árs var Sæluríki Arnaldar Indriðasonar. Á hæla hans fylgja þau Yrsa Sigurðardóttir með Frýs í æðum blóð og Snjór í paradís eftir Ólaf Jóhann Ólafsson.

Þetta eru lög ársins á Bylgjunni
Bylgjan hefur tekið saman lista yfir vinsælustu lög stöðvarinnar árið 2023. Listinn er valinn út frá öllum Bylgjulistum ársins.

Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis
Vísir sendir lesendum sínum nær og fjær – til sjávar og sveita – bestu óskir um farsælt nýtt ár. Megi árið 2024 færa okkur öllum frið og hamingju í hjarta.

Grindvíkingurinn er maður ársins
Maður ársins hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, er Grindvíkingurinn. Valið var ekki erfitt að þessu sinni. Hver og einn íbúi bæjarins á hlutdeild í útnefningunni.

Vinsælustu lögin á FM957 árið 2023
Á þessum síðasta degi ársins er vert að fara yfir árið í tónlistarheiminum en útvarpsstöðin FM957 kynnti fyrr í dag vinsælustu lög ársins 2023.

Fannar bæjarstjóri maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar
Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík er maður ársins 2023 mati lesenda Vísis og hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Valið var kunngjört í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni rétt í þessu.

Mest lesið í sportinu: Jarðskjálftar, leikþættir og djöflabarn
Fjölbreytt efni var á meðal þess mest lesna í Sportinu á Vísi á árinu. Björgvin Páll Gústavsson var áberandi á fleira en einu sviði og þá var stórmót ársins í handbolta áberandi.

Svona horfir þú á Kryddsíld
Það verður nóg um að vera í dag á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þegar að Kryddsíld hefst klukkan 14:00 í beinni útsendingu á Stöð 2.

Annálar ársins 2023: Það góða, vonda og ljóta
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar hefur á síðustu vikum rifjað upp árið sem er að líða.

Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2023
Fjölmargir þjóðþekktir Íslendingar kvöddu á árinu 2023 sem senn er á enda.

Viðskiptafréttir ársins 2023: Sala áratugarins, vandræði Marel og heljarinnar gjaldþrot
Árið sem líður var, eins og nánast öll ár, viðburðaríkt hvað varðar viðskiptin. Árið einkenndist af ítrekuðum stýrivaxtahækkunum, síhækkandi verðalagi og mikilli lækkun hlutabréfaverðs en einnig stórum sigrum í atvinnulífinu.

Bak við tjöldin: Mistök og hlátursköst
Viðmælendur í hláturskasti, alls konar mistök og óþolandi tæknivesen. Við skyggnumst á bak við tjöldin hjá fréttastofunni í þessum síðasta annál ársins.

Frægir fjölguðu sér árið 2023
Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli þjóðþekktra landsmanna sem komu í heiminn á árinu 2023 og Vísir greindi frá.

Erlendur íþróttaannáll 2023: Óumbeðinn koss, endurkoma og langþráður titill
Íþróttaárið 2023 var viðburðarríkt að venju. Þar skiptust á skin og skúrir, sigrar og skandalar, nýjar stjörnur komu fram og svo mætti áfram telja.

Viðtöl ársins 2023: Leyndarmál í Eyjum, óvæntir þríburar og níræðar gleðisprengjur
Fjöldi fólks segir sögu sína á Vísi á ári hverju af ólíku tilefni. Þar er sagt frá afrekum, áföllum, gleði, missi, tímamótum og sorg. Sum eru löng, önnur eru stutt. Við tókum saman nokkur af þeim viðtölum sem vöktu hvað mesta athygli á Vísi árinu.

Þrautseigja Grindvíkinga
Föstudagskvöldið 10. nóvember var heilt bæjarfélag rýmt í skyndi eftir stanslausa skjálftahrinu. Eldgosið á Reykjanesskaga varði sögulega stutt og íbúar Grindavíkur vita lítið sem ekkert um framhaldið.

Innlendur íþróttannáll 2023: Ofurhetja, silfurmaður og endalausa biðin á enda
Íslenskt íþróttafólk var í sviðsljósinu á árinu 2023 og mörg þeirra náðu frábærum árangri á eftirminnilegu íþróttaári. Það er því af nægu að taka þegar við horfum aftur á bestu afrek ársins hjá okkar fólki.

Njósnaloftbelgir, stríð og kafbátaleit
Meintur kínverskur njósnaloftbelgur, rándýr leit að kafbáti sem var á leið niður að skipinu Titanic og íburðarmikil athöfn við krýningu Bretlandskonungs.

Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2023
Hvað er hægt að segja um kvikmyndaárið 2023? Það kom að mörgu leyti að óvart og þá sérstakla menningarfyrirbæri Barbienheimer. Þá eru vísbendingar um að við jarðarbúar séum að fá leið á ofurhetjumyndum.

Þau kvöddu á árinu 2023
Fjölmargir þekktir einstaklingar úti í heimi kvöddu þennan heim á árinu sem senn er á enda.

Fréttamyndbönd ársins 2023: Skitið á bíl, sprengingar og jarðskjálftar
Árið 2023 var svo sannarlega viðburðarríkt og við hæfi að líta yfir nokkur af þeim myndböndum sem birst hafa í fjölmiðlum á árinu. Margt gekk á, náttúruhamfarir, sprengingar en líka allskonar skemmtilegar uppákomur.

Anna og Jón algengust
Algengustu nöfnin, meðalaldur þjóðarinnar, hagvöxtur og mannfjöldaþróun er meðal þess sem tekið er saman í jóla-og áramótamyndbandi Hagstofunnar.

Brúðkaup ársins 2023
Á hverju ári greinum við á Vísi frá brúðkaupum og hér fyrir neðan má sjá yfirferð yfir þekkta Íslendinga sem gengu í hnappelduna á árinu 2023.