Borgarstjórn

Reksturinn jákvæður ef ríkið tæki slaginn með fötluðu fólki
Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar í janúar til júní á þessu ári var lagður fyrir borgarráð í dag. Í tilkynningu frá borginni er fullyrt að árshlutareikningurinn sýni jákvæðan viðsnúning, þrátt fyrir áframhaldandi áskoranir í rekstri sem rakinn er til vanfjármögnunar þungra málaflokka eins og aðstoð við fatlað fólk, þenslu í hagkerfinu og viðvarandi verðbólgu. Borgarstjóri segir borgina að vaxa úr vanda síðustu ára.

Perlan fer á sölu
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að heimila fjármála- og áhættustýringarsviði, eignaskrifstofu, að hefja söluferli á Perlunni auk tveggja vatnstanka í Öskjuhlíð. Fasteignamat eignanna er tæpir fjórir milljarðar.

Áætlaður kostnaður við sáttmálann nú 300 milljarðar í stað 160
Nýjustu sviðsmyndir sem kynntar hafa verið aðilum samgöngusáttmálans svokallaða sýna að áætlaður kostnaður vegna hans stendur nú í 300 milljörðum í stað 160 milljarða upphaflega.

Dagforeldrum heldur áfram að fækka þrátt fyrir átak borgarinnar
Aðeins einn hefur sótt um rekstrarleyfi sem dagforeldri í Reykjavík þrátt fyrir átak borgarinnar og heldur dagforeldrum áfram að fækka. Oddviti Framsóknar segir átakið tilraunarinnar virði.

Hoffmannsstígur verður að Elísabetarstíg
Stígur á milli Hringbrautar og Sólvallagötu verður nefndur í höfuðið á Elísabetu Jökulsdóttur skáldi. Til stóð að kenna stíginn við Pétur Hofmann. Elísabet segist orðlaus og þakklát að stígurinn, sem liggur meðfram húsi sem hún bjó í áratugum saman, verði kenndur við hana.

Göngum ekki frá ókláruðu verki
Flest okkar þurfa að koma og fara enda vilja sennilega fæst okkar vera alveg föst á sama stað. Í það minnsta þurfum við að eiga þess kost að ferðast hindrunarlítið á milli staða. Það er ólíkt eftir aðstæðum, þörfum og jafnvel tímabilum í lífi fólks hver ferðamátinn er.

Einkafíllinn
Ég tók þátt í ítarlegri umræðu um samgöngusáttmálanum í borgarstjórn og hér eru mín fimmtíu sent. Samgöngusáttmálinn snýst um úrbætur á samgönguinnviðum á höfuðborgarsvæðinu en ein meginforsenda hans og hvati er að samgöngumál á svæðinu hafa verið í ákveðnu öngstræti um langt árabil.

Pawel tekur við af Þórdísi vegna liðskiptaaðgerðar
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar og forseti borgarstjórnar, verður í veikindaleyfi til lok nóvember vegna liðskiptaaðgerðar sem hún gekkst undir í vikunni. Pawel Bartoszek tekur við sem borgarfulltrúi Viðreisnar á meðan.

Forseti borgarstjórnar í veikindaleyfi
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, er komin í veikindaleyfi.

Þegar gefur á bátinn
Á vordögum við afgreiðslu ársreiknings, sem sýndi nær sextán milljarða hallarekstur, sagði borgarstjóri gríðarlegan viðsnúning framundan í rekstri borgarinnar. Oddviti Framsóknar boðaði aðgerðir, nú skyldi tekið í hornin á rekstrinum.

„Bein afleiðing skipulags með ofuráherslu á einkabílaumferð“
Borgarstjóri segir að ógnarlangar bílaraðir undanfarna morgna á höfuðborgarsvæðinu vera beina afleiðingu skipulags með ofuráherslu á einkabílaumferð og áherslna sem voru lengst af ofan á á höfuðborgarsvæðinu, allt frá árinu 1960 eða svo.

136 tonn af svifryki svífa um borgina árlega
Við sem þjóð erum stolt af landinu okkar, stolt af landsins gæðum; vatninu sem við drekkum ferskt úr ám og lækjum, ósnortinni náttúru - sem er úfin og ófyrirséð og blessuðu loftinu sem við öndum að okkur.

Dóttir Hildar og Jóns komin með nafn
Yngsta dóttir Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Jóns Skaftason, stjórnarformanns Sýnar, er komin með nafn. Stúlkan heitir Hólmfríður Áslaug.

Lög eða ólög?
„Með lögum skal land vort byggja, en eigi með ólögum eyða.“ Þessi fleygu orð Norðurlandabúa komu upp í hugann þegar afleiðingar mannvonskulaga fyrrum dómsmálaráðherra komu í ljós á dögunum. Hann og þingheimur höfðu verið vöruð við, en eru nú farin að bregðast við eigin afglöpum með því að íhuga „búsetuúrræði með takmörkunum“ eftir að hafa reynt að vísa Svarta-Pétri til sveitarfélaganna án árangurs.

Dagur B og blaðafulltrúarnir
Smjörklípa er vel þekkt aðferð í stjórnmálum. Í henni felst að í stað þess að ræða um lausnir á óþægilegu máli á opinberum vettvangi þyrlar valdhafi upp moldviðri um önnur mál í fjölmiðlum í því skyni að draga athygli almennings frá því máli sem valdhafanum er þungt í skauti.

„Krossbrá“ þegar krafa Isavia barst í sumar
Borgarstjóri segir ekki halla á borgina, sem hafi uppfyllt sína samninga og átt í góðu samstarfi við Isavia undanfarin ár. Honum hafi því krossbrugðið þegar krafa barst um að fella tæplega þrjú þúsund tré í Öskjuhlíð vegna flugöryggis. Málið verði ekki notað sem tól í baráttunni um að fá flugvöllinn burt úr Reykjavík.

„Það er neyð á götunum og það er alvarlegt mál“
Reykjavík mun ekki þjónusta flóttafólk sem svipt hefur verið þjónustu án samtals eða verklags um verkefnið. Formaður borgarráðs segir verkefnið risavaxið og að það muni aðeins vaxa.

Isavia krefst þess að um þrjú þúsund tré verði felld í Öskjuhlíð
Innanlandssvið Isavia hefur krafist þess að 2.900 tré í Öskjuhlíð verði felld tafarlaust og til vara 1.200 hæstu trén. Erindi þessa efnis hafi verið lagt fyrir borgarráð í dag og hafi verið samstaða um þá málsmeðferð að beiðnin færi til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar.

Skilur ekkert í „furðulegu monti“ og Framsókn hafi engu breytt
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni segist ekkert skilja í furðulegu monti borgarstjóra þess efnis að Reykjavík bjóði upp á ódýrustu leikskólana. Fullyrðingar um góða stöðu séu hreinn dónaskapur við áhyggjufulla foreldra. Þá hafi innkoma Framsóknar í borgarstjórn ekki breyttu nokkrum sköpuðum hlut.

„Verðum áfram það sveitarfélag sem er hagstæðast fyrir fjölskyldufólk“
Staðan í leikskólamálum borgarinnar er betri en í flestum öðrum sveitarfélögum að sögn borgarstjóra, þrátt fyrir að hann telji stöðuna verða svipaða í ár og undanfarin ár. Reykjavík muni áfram vera hagstæðust fyrir fjölskyldufólk

Fyrsta skóflustungan að íbúðum VR í Úlfarsárdal
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum fjölbýlishúsum VR á lóð félagsins í Úlfarsárdal í dag. Byggðar verða 36 íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum sem verða leigðar til félagsfólks VR.

Staðan sé að versna í leikskólamálunum
Borgarfulltrúi segir allt stefna í enn verra ástand í leikskólamálunum en útlit var fyrir fyrr í sumar. Hún gagnrýnir að meðlimir skóla- og frístundaráðs geti litlar sem engar upplýsingar fengið yfir sumartímann.

Hækkun launa í Vinnuskólanum ekki forgangsmál
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir borgarfulltrúi Viðreisnar segir hækkun launa unglinga í Vinnuskólanum ekki forgangsmál. Það sé ánægjuefni að skólanum hafi verið haldið gangandi í miklum hagræðingaraðgerðum borgarinnar.

Samþykkja minni hækkun launa
Laun borgarfulltrúa hækka um 2,5 prósent frá fyrsta júlí síðastliðnum, í stað 7,88 prósent samkvæmt þróun launavísitölu frá nóvember 2022 til maí 2023. Borgarstjóri mun einnig óska eftir sömu breytingum á sínum launum.

„Leiðinlegt að koma fram við unglinga með þessum hætti“
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að svo virðist sem meirihluti borgarstjórnar telji sig hafa fundið breiðu bökin, sem eigi að axla byrðarnar í baráttunni við verðbólguna, með því að frysta kjör unglinga í Vinnuskóla Reykjavíkur.

Framsókn og Samfylking tapa fluginu
Fremsti framagosi Framsóknarflokksins gerðist staurfótur sísta Samfylkingarstjórans í Reykjavík. Viðreisn síðasta kjörtímabils var svo sem ekki tignarlegri, en þessi er grátleg. Við bundum nefnilega vonir við Einar Þorsteinsson, og að hann myndi verja þjóðarflugvöllinn með kjafti og klóm.

Íbúalýðræði í Reykjavík komið til að vera
Íbúalýðræði og íbúaráðin í Reykjavík hafa verið til umræðu síðustu misserin eftir íbúaráðsfund Laugardals fyrir stuttu en þar átti sér stað einstakt atvik sem búið er að biðjast afsökunar á. Atvik sem á engan hátt endurspegla mikilvægt starf íbúaráðanna í hverfum borgarinnar.

Telur hækkun bílastæðagjalda líklega brot á jafnræðissjónarmiðum
Sigríður Á. Andersen lögmaður, fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir hækkun bílastæðagjalda harðlega og telur hana til marks um skeytingarleysi í stjórnsýslu borgarinnar.

Ekki ég, ekki ég
Eitt sinn var lítil gul hæna. Hún vann hörðum höndum að því að baka brauð. Í hverju skrefi sem hún tók til að klára baksturinn spurði hún vini sína, hin dýrin, hvort þau vildu leggja hönd á plóg. Öll svöruðu þau, ekki ég.

Dagur les Peterson pistilinn
Kanadíski sálfræðingurinn og Íslandsvinurinn Jordan Petersson varar forsætisráðherra sinn Justin Trudeau um að „ganga of langt“ með „hinsegin tímabili“ hans. Tilefni þess var mynd sem Trudeau birti af sér á Twitter við regnbogastíginn á Skólavörðustíg í Reykjavík. Nú hefur Dagur B. Eggertsson blandað sér í umræðuna og les Peterson pistilinn á miðlinum.