
Gagnrýni

Pam & Tommy: Magni-ficent sjónvarp!
Sem lífstíðar Stjörnustríðs fanatíker átti ég seint von á að ég tæki Mötley Crüe og Baywatch fram yfir Star Wars, en s.l. miðvikudag komu samtímis inn á Disney+/STAR nýir þættir af The Book of Boba Fett og Pam & Tommy. Það er skemmst frá því að segja að ég horfði á Pam & Tommy fyrst.

Nightmare Alley: Oftast eru hinar troðnu slóðir betri
Bradley Cooper leikur Stanton Carlisle, dularfullan mann sem rambar í starf í ferðatívolí í Nightmare Alley, nýjustu kvikmynd Guillermo del Toro. Þessi nýjasta mynd mexíkóska Óskarsverðlaunahafans lítur mjög vel út á pappír en þegar á hólminn er komið ræður del Toro ekki við verkefnið.

The Lost Daughter: Smárabíó bjargar frábærri mynd úr klóm Netflix
The Lost Daughter var frumsýnd í flestum löndum á Netflix á gamlársdag. Hún kom hins vegar í Háskóla- og Smárabíó hér á landi sl. föstudag. Guði sé lof.

Don't Look Up: Mikil vonbrigði...að hún kláraðist
Don't Look Up var frumsýnd á aðfangadag. Myndin átti upprunalega að koma í kvikmyndahús og var það Paramount sem ætlaði að framleiða og dreifa. Áður en tökur hófust var hún svo skyndilega komin yfir til streymisrisans Netflix. Vissu Paramount lengra en nef þeirra náði?

The Matrix Resurrections: Misheppnuð endurlífgun
Sagt er að það eina sem geti lifað af kjarnorkuárás séu kakkalakkar. Það er örugglega rétt, en aldrei myndi ég veðja gegn því að kvikmyndabálkurinn The Matrix kæmi svo skríðandi út úr sveppaskýinu á eftir þeim.

Spider-man: No Way Home: Aðdáendaþjónkunarsvall í tíunda veldi
Spider-man: No Way Home er nú komin í kvikmyndahús og hefur aðsóknin í Bandaríkjunum a.m.k. verið mjög mikil. Sjálfur sá ég hana klukkan 14:00 á föstudegi og það var töluverður fjöldi fólks í salnum. Því má gera ráð fyrir að vinsældir hennar séu álíka miklar hér á landi

Antlers: Óþægileg hamskipti í metamfetamínbæli
Hryllingsmyndin Antlers hefur nú loks ratað í kvikmyndahús eftir nokkrar Covid-tengdar seinkanir. Jesse Plemon og Keri Russell leika systkini sem aðstoða tólf ára dreng að leysa ansi snúið heimilis- og foreldravandamál.

House of Gucci: Gucci á hundavaði
Ridley Scott hefur nú sent frá sér House of Gucci, sína aðra kvikmynd á skömmum tíma. Það er reyndar svo stutt síðan hin myndin hans, The Last Duel, kom út, að enn er hægt að sjá hana í Bíó Paradís.

The Power of the Dog: Gjá milli þings og þjóðar
The Power of the Dog er „art house“-kvikmynd sem ekki er sýnd í neinu kvikmyndahúsi, hvorki listrænu né öðru, heldur er hún aðeins á Netflix. Óskarverðlaunapískrið umlykur hana þessa dagana en undirritaður var hálf ringlaður eftir áhorfið.

King Richard: Mynd um tennissystur, en samt aðallega pabba þeirra
Kvikmyndin King Richard fjallar um fyrstu skref Williams-systranna Venus og Serenu í tennisheiminum, en hún sýnd í Sambíóunum og Háskólabíói þessa dagana. Faðir þeirra Richard Williams er þó aðalpersóna myndarinnar og dregur Williams-vagninn, líkt og í upphafi ferils systranna.

tick, tick...BOOM!: Tikk, tikk...of lítið búmm
Kvikmyndinni tick, tick...Boom!, sem Netflix frumsýndi nýlega, hefur verið spáð velgengni á næstu Óskarshátíð. Hún hittir á nokkrar réttar nótur en því miður eru þær fölsku hins vegar of margar.

The French Dispatch: Miðlungs Wes Anderson betri en flestir
Nýjasta kvikmynd Wes Andersons er nú komin í kvikmyndahús. Þó hún nái nú ekki þeim hæðum sem hans bestu verk ná, er hún þrátt fyrir allt hin fínasta ræma.

The Last Duel: Gerendameðvirknin bergmálar í gegnum aldirnar
Aðsóknin hefur ekki verið mikil á The Last Duel, sem kom í kvikmyndahús fyrir viku síðan. Það er miður, því hér um að ræða kvikmynd sem er merkileg fyrir margra hluta sakir.

You: Sjónvarpsheróín í boði Netflix
Þriðja þáttaröðin um vingjarnlega raðmorðingjann Joe Goldberg er nú komin á Netflix. Þegar við skildum við hann í lok annarrar þáttaraðar hafði hann barnað hina álíka gölnu Love.

No Time to Die: Gamli fær verðskuldað frí
Svanasöngur Daniels Craig í hlutverki James Bond, leynilega þjóns hennar hátignar, er nú kominn í kvikmyndahús. Almennt hafa viðtökurnar verið mun jákvæðari en á síðustu Bond-mynd, Spectre.

The Night House: Hrollvekjandi gáta
The Night House er hrollvekjandi mystería þar sem hin breska Rebecca Hall fer á kostum.

Dýrið: Stiklan spillir flottri mynd
Dýrið er fyrsta kvikmynd Valdimars Jóhannssonar í fullri lengd. Hún skartar Hollywood-stjörnunni Noomi Rapace í aðalhlutverki.

Dune: Eyðimerkurganga mömmustráks. Fyrri hluti.
Kvikmyndaútgáfa Denis Villeneuve af Dune hefur nú loks ratað á hvíta tjaldið, tæpu ári eftir að hún átti að koma út. Hér er engu til sparað og útkoman í takti við það. Stórglæsileg.

Malignant: Skemmtilega bilaður hrollur
Malignant er nýjasta kvikmynd hins stórtæka hrollvekjumeistara James Wan. Líkt og hann segir í viðtölum langaði hann til að gera eitthvað óvænt og tekst það sannarlega

„Hún er ógeðslega spennandi“
Marvel-liðið er í heimsreisu, hefur nú þegar farið til Afríku (Black Panther) og er nú statt í Asíu. Shang-Chi and the Legend of the Ten Rings heitir myndin og krakkarnir eru yfir sig hrifnir.

The Chair: Netflix gullmoli tæklar slaufunarmenningu
Netflix tók nýlega til sýningar gamanþáttaröð með hinu óspennandi nafni The Chair. Þættirnir eru hins vegar töluvert áhugaverðari en titillinn gefur til kynna.

Betri leikstjóri þýðir betri Suicide Squad
Kvikmyndin Suicide Squad kom út fyrir 5 árum síðan og er almennt talin mjög slöpp. Hún græddi hins vegar töluvert af peningum, því sáu DC og Warner Bros. að markaður er fyrir þessar andhetjur og hentu í framhaldsmynd.

Feel Good? Já takk
Þáttaröðin Feel Good á Netflix flaug undir radarinn fyrir rúmu ári síðan en þeir sem sáu voru samt yfir sig hrifnir. Sem betur fer hafði Netflix-fólk vit og rænu til að gefa þessum falda gimsteini annan séns, því þáttaröð númer tvö er nú komin á streymisveituna.

Allt fer úrskeiðis hjá konunni í glugganum
Woman in the Window átti að vera svokölluðu „prestige picture“ fyrir FOX 2000. Hér átti að hóa í mannskap sem myndi skila FOX-apparatinu Óskarstilnefningum. Svo fór því miður ekki, þar sem myndin endaði á Netflix, sem er hið nýja beint á VHS.

Myndin sem smíðakennarinn vill að þú sjáir
Laugarásbíó tók nýverið til sýningar Óskarsverðlaunamyndina Promising Young Woman, en hún hlaut verðlaunin eftirsóttu í flokknum besta frumsamda handrit. Það að horfa á hana nú í miðri annarri #metoo-bylgju gefur henni enn meira vægi og vigt.

Nobody: Hæst bylur í tómri tunnu
Í kvikmyndinni Nobody leikur Bob Odenkirk hinn frústreraða Hutch Mansell sem umturnast eftir að brotist er inn í húsið hans. Allir (karlmennirnir) í kringum hann sýna honum vanþóknun og eru á því að hann hefði átt að lúskra á innbrotsþjófunum þegar færi gafst. Þetta leggst á sálina á greyinu Hutch, sem verður til þess að litli óöryggi karlinn inni í honum verður að fá útrás. Og hver er sú útrás? Jú, að berja og drepa sem flesta.

A Teacher: Ólögmætur losti kennara og nema
Stöð 2 hefur nú tekið til sýningar sjónvarpsþáttaröðina A Teacher, sem fjallar um ástarsamband framhaldsskólakennarans Claire og sautján ára nema hennar Eric. Slíkt er að sjálfsögðu ekki aðeins „frowned upon“ eins og Ross Geller úr Friends taldi, heldur hreinlega ólöglegt, og ólíkt Ross yrði Claire ekki aðeins rekin, hún myndi lenda í fangelsi.

Exit 2: Tuskulegri typpastrákar betri en flest annað
Standpínustrákarnir frá Osló í sjónvarpsþáttaröðinni Exit voru að sjálfsögðu klappaðir upp eftir frábæra fyrstu þáttaröð og hafa nú snúið aftur á sviðið. Þeir eru reyndar búnir að spila öll bestu lögin sín, en þeirra síðri lög eru þó töluvert betri en bestu lög flestra annarra. Því kvartar maður ekki undan þessari nýjustu viðbót, þó hún nái ekki sömu hæðum og fyrirrennari hennar.

Judas and the Black Messiah: Að borða kökuna og geyma hana líka
Judas and the Black Messiah er ein þeirra mynda sem hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna í flokknum kvikmynd ársins. Hún byggir á sannsögulegum atburðum og fjallar um smákrimmann Bill O´Neal, uppljóstrara fyrir FBI, sem laumaði sér inn í samtök Svörtu pardusanna. Þar kemst hann í návígi við þeirra helsta leiðtoga, hinn hrífandi Fred Hampton.

Nomadland: Margverðlaunuð andkvikmynd
Bandaríska kvikmyndin Nomadland hefur verið hlaðin lofi af gagnrýnendum í heimalandinu og unnið öll þau helstu verðlaun sem nú þegar hafa verið veitt myndum sem komu út þarlendis í fyrra. Nú hefur hana loks rekið á fjörur okkar og er komin í kvikmyndahús.