Formúla 1
122 123 124 125 126 127 128 129 130 … 151 ›
McLaren í fyrsta og öðru sæti Heimsmeistarinn Lewis Hamilton var með besta tíma á seinni æfingu keppnisliða á Búdapest brautinni í dag og félagi hans Heikki Kovalainen var aðeins 47/1000 á eftir honum. Kovalainen var sneggstur á fyrri æfingunni. Formúla 1 24.7.2009 13:32
Alonso: Button enn líklegasti meistarinn Fernando Alonso telur að Jenson Button sé enn líklegasti Formúlu 1 meistarinn í ár, þó Red Bull liðið hafi unnið tvö síðustu mót. Button er með 20 stiga forskot á Sebastian Vettel og Mark Webber sem voru í fyrsta og öðru sæti í síðustu mótum. Formúla 1 24.7.2009 11:17
Kovalainen stal senunni í Búdapest Finninn Heikki Kovalainen á McLaren náði besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Búdapest í morgun. Hann náði tímanum í síðasta mögulega hringnum eftir 90 mínútna æfingatíma á brautinni. Formúla 1 24.7.2009 09:38
Mark Webber áfram hjá Red Bull Ástralinn Mark Webber hefur skrifað undir samning við Red Bull um áframhaldandi veru hjá liðinu 2010. Þetta var tilkynnt í dag í Ungverjalandi, en Formúlu 1 verður þar um helgina. Formúla 1 23.7.2009 14:33
Dauðaslys rætt í Rásmarkinu Hið hörmulega dauðaslys í Bretlandi um síðustu helgi verður rætt í Rásmarkinu á Stöð 2 Sport í kvöld. Henry Surtees lést í slysinu, en Kristján Einar Kristjánsson ók með honum í Formúlu 3 í fyrra. Formúla 1 23.7.2009 08:22
Brawn bjartsýnn á gott gengi Ross Brawn, framkvæmdarstjóri Brawn liðsins segir að bíll liðsins hafi verið endurbættur frá síðsta móti og liðið ætli sér stóra hluti í Ungverjalandi um næstu helgi. Brawn liðið er með forystu í stigakeppni ökumanna og bílasmiða. Formúla 1 22.7.2009 11:13
Pressan ekki Ferrari stjóranum ofviða Stefano Domenicali er ekki að kikna undan álaginu þó Ferrari hafi ekki gengið sem skyldi á þessu keppnistímabili og Red Bull og Brawn berjist um titilinn. Formúla 1 22.7.2009 08:51
Bretar í sjokki vegna kappakstursslyss Breskir áhugamenn um kappakstur og ökumenn í ýmsum mótaröðum í kappakstri Í Bretlandi eru í sjokki vegna dauðaslyss Henry Surtees á sunnudaginn. Hann lést eftir að dekk úr öðrum bíl sem keyrði á vegg lenti í höfði hans í miðri keppni. Formúla 1 21.7.2009 09:08
Vatanen ósáttur við forseta FIA Finninn Ari Vatnane sem býður sig fram til forseta FIA í október er ósáttur við framgöngu Max Mosley forseta FIA í síðustu viku. Þá sendi Mosley bréf frá sér til aðildarfélaga FIA og lýsti yfir stuðningi við Jean Todt, sem einnig ætlar að bjóða sig fram til forseta. Formúla 1 20.7.2009 09:56
Sonur frægs ökumanns fórst í kappakstri Sviplegt slys varð í Formúlu 2 keppni í Bretlandi í dag, þegar sonur frægs ökumanns lést í keppni. Henry Surtees, 18 ára sonur John Surtees lést eftir að hjól af öðrum bíl skall í höfði hans og hann rotaðist. Bíll hans endasentist á vegg og hann lést af sárum sínum á spítala. Formúla 1 19.7.2009 21:33
Ökumönnum Red Bull frjálst að kljást Þó mikið sé undir hjá Red Bull keppnisliðinu sem hefur unnið tvö síðustu Formúlu 1 mót, þá segir Christian Horner að Mark Webber og Sebastian Vettel sem frjálst að keppa af fullri hörku við hvorn annan. Liðið á góða möguleika á titlum í ár, eftir gott gengi. Formúla 1 17.7.2009 09:11
Jean Todt býður sig fram til forseta FIA Frakkinn knái Jean Todt hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta FIA í október, en þá verður kjörið milli hans og Ari Vatanen og fleiri ef einhverjir bjóða sig fram. Formúla 1 16.7.2009 13:41
Bourdais rekinn frá Torro Rosso Franski ökumaðurinn Sebastian Bourdais hefur verið sagt upp hjá Torro Rosso með formlegum hættum. Liðið tilkynnti þetta í dag. Formúla 1 16.7.2009 11:00
Alonso eygir enn Ferrari sæti 2010 Ferrari vill ná í Fernando Alonso fyrir árið 2010 og skipta honum út fyrir Kimi Raikkönen sem hefur ekki unnið mót síðan í Barcelona 2008. Svo mæla fróðir menn hjá Autosport stærsta Formúlu 1 riti heims, en Toyota hefur boðið Raikkönen starf á næsta ári og Brawn liðið hefur líika borið víurnar í hann. Formúla 1 16.7.2009 08:21
Max Mosley hættir sem forseti FIA Max Mosley sem verið hefur forseti FIA í 16 ár hyggst ekki bjóða sig fram enn eitt kjörtímabilið, en kosið verður í október. Hann sendi öllum aðildarfélögum FIA skeyti þess efnis í dag. Formúla 1 15.7.2009 10:54
Ecclestone heppinn að halda starfinu Stjórnarmaður CVC sem á og rekur sjónvarps og mótaréttinn á Formúlu 1 segir að Bernie Ecclestone sé heppinn að hafa haldið starfinu, eftir ummæli þar sem hann mærði atorku Hitlers í liðinni viku. Sir Martin Sorell segir að í öllum öðrum fyrirtækjum hefði Ecclestone verið látinn fara Formúla 1 15.7.2009 10:21
Barrichello runninn reiðin vegna taps Brasilíunaðurinn Rubens Barrichello var æfur út í Brawn liðið eftir kappaksturinn á Nurburgring á sunnudaginn. Taldi að liðið hefði klúðrað málum, þannig að hann tapaðiu af sigurmöguleikanum. Formúla 1 15.7.2009 08:38
Webber með titanium efni í fætinum Framkvæmarstjóri Red Bull, Christian Horner er mjög dagfarsprúður maður og stýrir liði sem hefur unnið tvö mót í röð og samfagnaði Mark Webber innilega. Formúla 1 14.7.2009 06:45
Webber stoltur af fyrsta sigrinum Ástralinn Mark Webber vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 með Red Bull, sem varð í fyrsta og öðru sæti, en Sebastian Vettel fylgdi í kjölfar Webbers. Webber fótbrotnaði illa og axlarbrotnaði í vetur, en með strangri endurhæfingu gat hann stigið um borð í Formúlu 1 bíl í upphafi tímabilsins. Formúla 1 13.7.2009 10:20
Webber og Vettel í fyrsta og öðru sæti Red Bull liðið vann glæsilegan tvöfaldan sigur á Nurburgring Formúlu 1 brautinni í dag: Mark Webber vann sinn fyrsta Formúlu 1 sigur á ferlinum og saman rúlluðu hann og Vetttel Brawn liðinu upp í þessu móti. Formúla 1 12.7.2009 15:12
Webber vonast eftir fyrsta sigrinum Fjórir fremstu ökumenn í stigamótinu í Formúlu 1 ræsa af stað í þýska kappaksturinn í hádeginu í dag og eru fremstu menn á ráslínu. Mark Webber er fremstur og Rubens Barrichello við hliði hans. Fyrir aftan eru Jenson Button og Sebastian Vettel, en þessir kappar berjast um titilinn og beint fyrir aftan verður Lewis Hamilton, núverandi meistari. Spáð er regnskúum á meðan keppni stendur, en svipað veður hristi upp í tímatökunni í gær. Formúla 1 12.7.2009 10:26
Webber fljótastur í ævintýralegri tímatöku Ástralinn Mark Webber var fljótastur allra í skrautegri og spennandi tímatöku á Nurburgring brautinni í Þýsklandi í dag. Veðurguðirnir stríddu ökumönnum, sem þurftu að taka mikilvægar ákvarðnir undir miklu álagi. En toppmennirnir í titilslagnum eru í fyrstu fjórum sætunum á ráslínu. Formúla 1 11.7.2009 13:10
McLaren og Ferrari aftur í toppslaginn Teikn virðast á lofti eftir lokaæfingu keppnisliða í Formúlu 1 á Nurburgring í morgun. McLaren og Ferrari eru aftur farinn að berjast um besta tíma því Lewis Hamilton á McLaren var með besta tíma dagsins, fyrir tímatökuna sem er í hádeginu. Formúla 1 11.7.2009 10:26
Hamilton kom öllum á óvart Bretinn Lewis Hamilton kom keppinautum sínum í opna skjöldu í fyrsta skipti á árinu með því að ná besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða í dag. McLaren liðið hefur ekki riðið feitum hesti frá mótum ársins og spurning hvort liðið sé loks að snúa við blaðinu. Formúla 1 10.7.2009 14:04
Ari Vatanen býður sig fram til forseta FIA Rallökumaðurinn og fyrrum heimsmeisati, Finninn Ari Vatanen hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta FIA. Miklar væringar hafa verið á milli Formúlu 1 liða og Max Mosley núverandi forseta FIA og vona margir aðilar að framboð Vatanen fái fylgi meðal meðlima FIA og klúbba sem starfa undir hatti sambandsins. Formúla 1 10.7.2009 13:02
Red Bull og Brawn hraðskeiðastir bíla í dag Red Bull og Brawn liðið var í fyrstu sætunum á fyrstu æfingi Formúlu 1 liða á Nurburgring brautinni í morgun. Mark Webber frá Ástralíu náði besta tíma, en Jenson Button frá Englandi varð annar. Flestir eiga von á slag um sigur á milli ökumanna Red Bull og Brawn í mótinu um helgina, en rigningu er spáð meira og minna alla helgina. Það var reyndar þurrt á brautinni í morgun. Formúla 1 10.7.2009 09:32
Wills tæknstjóri Red Bull óvænt rekinn Geoff Wills sem var tæknistjóri Red Bull hefur misst starf sitt hjá liðinu, þrátt fyrir gott gengi liðsins. Hann var hægri hönd Adrian Newey sem er aðalhönnuður liðsins. Formúla 1 10.7.2009 07:25
Upphlaup á fundi FIA og FOTA Forráðamenn Formúlu 1 liða gengu af fundi með samningarmönnum FIA í dag, þar sem verið var að ræða framtíðarreglur í íþróttinni. Er ljóst að grær ekki heilt á milli þessara aðila, sem þóttust þó hafa samið frið á dögunum. Málið er orðið einn allsherjar farsi og íþróttinni síst til framdráttar. Formúla 1 8.7.2009 19:20
Fimm þýskir ökumenn á heimavelli Það verður fjör á áhorfendapöllunum á Nurburgring í Þýskalandi um helgina. Heimamenn eiga fimm starfandi Formúlu 1 ökumenn og Sebastian Vettel vann síðustu keppni sem fram fór á Red Bull. Formúla 1 8.7.2009 07:23
Engar liðsskipanir í vændum hjá Brawn og Red Bull Engin hætta er á því enn sem komið er að forystuliðin í Formúlu 1 mótinu beiti liðsskipunum til að ráða því hvaða ökumaður eigi meiri sjéns í titilinn. Jenson Button og Rubens Barrichello hjá Brawn og Sebastian Vettel og Mark Webber hjá Red Bull er frjálst að keppa af fullri hörku gegn hvor öðrum. Formúla 1 7.7.2009 10:50