Íslenski boltinn

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - KR 2-5 | KR-ingar sigruðu í markaveislu í Egilshöll
KR vann 5-2 sigur á Fylki í sjö marka leik í Egilshöllinni í kvöld. Fylkir hefur nú tapað síðustu fjórum deildarleikjum sínum í röð.

Oliver: Flottasta mark sem ég hef skorað
Oliver Sigurjónsson var hetjan á Kópavogsvelli í kvöld þegar hann tryggði sínu liði, Breiðablik, dramatískan 2-1 sigur gegn Fjölni með glæsilegu aukaspyrnumarki í uppbótartíma.

Stjarnan og Grindavík þétta raðirnar
Félagaskiptaglugginn opnaði á Íslandi í gær og liðin í Pepsi-deild kvenna eru byrjuð að styrkja sig fyrir síðari hlutann.

Eysteinn Húni verður þjálfari Keflavíkur
Eysteinn Húni Hauksson mun taka að sér þjálfun karlaliðs Keflavíkur í Pepsi deild karla. Guðlaugur Baldursson lét af störfum sem þjálfari Keflavíkur í síðustu viku.

Ná Fjölnismenn að brjóta Blikamúrinn?
Breiðablik hefur heldur betur staðið vaktina vel varnarlega undanfarna leiki en í kvöld mætir liðið Fjölni í Pepsi-deild karla.

ÍR vann fallslaginn á Grenivík
ÍR sótti mikilvægan sigur á Grenivík í fallbaráttunni í Inkasso deild karla. Þór hélt í við liðin í toppbaráttunni með sigur á Leikni.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur - Keflavík 1-0 | Víkingar í 5. sæti eftir þriðja sigurleikinn í röð
Víkingar höfðu betur gegn fallbyssufóðri Keflavíkur. Með sigrinum fara Víkingar upp í 5. sæti deildarinnar á meðan Keflvíkingar eru á botninum.

Fyrsti heimasigur Þróttar kom gegn Skagamönnum
Þróttur vann sterkan sigur á Skagamönnum í 11. umferð Inkasso deildar karla í kvöld. Sigurinn kom í veg fyrir að ÍA endurheimti toppsæti deildarinnar af HK.

Dagný gæti snúið aftur í Pepsi deildina
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir á í viðræðum við Selfoss um að spila með liðinu í Pepsi deild kvenna

Skrefi nær annarri myndarlegri útborgun eftir sigrana frábæru
Valsmenn geta fengið enn meira ef þeim tekst það ótrúlega og leggja Rosenborg að velli.

Allt vitlaust þegar að mark var dæmt af KA: „Þið eruð búnir að horfa of mikið á HM“
Boðið var upp á algjörar senur í Grindavík þar sem KA vann mikilvægan sigur.

HK aftur á toppinn eftir öruggan sigur
HK endurheimti toppsæti Inkasso deildarinnar með sigri á Haukum. Víkingur Ólafsvík komst upp að hlið ÍA í öðru sætinu og Selfoss vann Njarðvík fyrir austan fjall.

Tufa: Verðum með fimm sjónvörp klár á Akureyrarvelli
„Ég er mjög ánægður. Að koma hérna á útivöll á móti liði sem ég virði mikið og Óla Stefán vin minn, taka þrjú stig og sýna svona frammistöðu þá verð ég að vera mjög ánægður með mína stráka,“ sagði Srdjan Tufegdzic eftir sætan sigur hans manna í KA gegn Grindvíkingum í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - KA 1-2 | Norðanmenn unnu eftir dramatík suður með sjó
KA vann sætan sigur á Grindavík í 10.umferð Pepsi-deildarinnar í kvöld. Sigurmarkið kom á 90.mínútu leiksins en leikurinn var fjörugur og umdeild atvik á báða bóga.

HK/Víkingur vann fallslaginn í Vesturbænum
HK/Víkingur vann mikilvægan sigur í fallslag við KR í lokaleik 9. umferðar Pepsi deildar kvenna í kvöld. Nýliðarnir eru nú fjórum stigum frá fallsæti.

Gunnleifur: Misst af tveimur og hálfum leik vegna meiðsla síðan 94
Gunnleifur Gunnleifsson stendur vörð í marki Breiðabliks eins og undanfarin ár í Pepsi deild karla. Hann hefur aðeins fengið á sig sex mörk í 11 leikjum.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Valur 1-0 | Breiðablik endurheimti toppsætið
Þór/KA tók toppsætið í Pepsi deild kvenna af Breiðabliki fyrr í kvöld. Blikar endurheimtu hins vegar toppsætið með sigri á Val í toppslag á Kópavogsvelli í kvöld.

FH lyfti sér af botninum með sigri
FH vann gríðarlega mikilvægan sigur á Grindavík í Pepsi deild kvenna í kvöld. Með sigrinum lyfti FH sér úr botnsæti deildarinnar.

Þór/KA á toppinn eftir sigur á Stjörnunni
Íslandsmeistarar Þórs/KA fóru í toppsæti Pepsi deildar kvenna með sigri á Stjörnunni á Akureyri. ÍBV sigraði Suðurlandsslaginn í Vestmannaeyjum.

Guðlaugur hættur með Keflavík
Guðlaugur Baldursson hefur látið af störfum sem þjálfari Keflavíkur í Pepsi deild karla. Félagið gaf frá sér tilkynningu þess efnis í kvöld.

Björgvin settur í agabann vegna misnotkunar á róandi lyfjum
Framherjinn leitar sér hjálpar og mun ekki spila með KR á næstunni.

Hilmar Árni með þremur mörkum fleira en Andri Rúnar á sama tíma í fyrra
Enginn þeirra sem eiga markametið í efstu deild karla í fótbolta voru búnir að skora meira en Hilmar Árni Halldórsson eftir tólf spilaða leiki og þrír af þeim skoruðu færri mörk í fyrstu tólf leikjum sínum.

Fimm sem gætu farið þegar að glugginn verður opnaður í Pepsi-deildinni
Félagaskiptaglugginn á Íslandi opnar aftur 15. júlí og hér er fimm leikmenn sme gætu haft gott af því að skipta um lið.

Pepsi-mörkin: Giskað í eyðurnar um agabann Björgvins
Björgvin Stefánsson, framherji KR, var í agabanni á móti Val.

Toddi tekur Fylki í gegn: Eins og appelsínugular keilur sem bara standa þarna
Þorvaldur Örlygsson lét Fylkismenn heyra það fyrir dapran varnarleik í fyrri hálfleik á móti Víkingi.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - Víkingur 2-3 | Víkingur sótti þrjú mikilvæg stig í Egilshöll
Víkingur er kominn í sjötta sæti Pepsi deildarinnar eftir 2-3 sigur á Fylki í Egilshöll í kvöld. Víkingur var 3-0 yfir í hálfleik.

Davíð Örn um markið sitt: Vissi ekki alveg hvað ég var að gera
Davíð Örn Atlason átti góðan leik í vörn Víkings er liðið sigraði Fylki, 3-2, í hörkuleik í Egilshöllinni í kvöld í Pepsi deild karla í fótbolta.

Spilar Kári Árna fyrsta leikinn sinn í kvöld og það á erfiðasta velli Pepsi-deildarinnar?
Lokaleikur tólftu umferðar Pepsi-deildar karla í fótbolta fer fram í Egilshöllinni í kvöld þegar Fylkismenn taka á móti Víkingum.

Ágúst: Með ólíkindum að við náum ekki að skora
Ágúst Gylfason, þjálfari Blika, var verulega ósáttur að fara ekki með þrjú stigin frá Vestmannaeyjum en Breiðablik gerði markalaust jafntefli við ÍBV í Pepsi-deildinni í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Breiðablik 0-0 | Annað markalausu jafnteflið í röð hjá Blikum
Blikum gengur illa að skora og það sást bersýnilega er liðið gerði annað markalausu jafnteflið í röð.