Innlent

Páll ráðinn í forsætisráðuneytið

Páll Þórhallsson hefur verið ráðinn lögfræðingur á aðalskrifstofu forsætisráðuneytisins samkvæmt auglýsingu sem birt var í byrjun desember. Hann mun m.a. sinna ráðgjöf, skjalagerð og úrlausn lögfræðilegra viðfangsefna á verksviði ráðuneytisins, einkum á sviði stjórnskipunar- og stjórnarfarsréttar. Páll lauk embættisprófi í lögfræði árið 1995 og framhaldsnámi í stjórnskipunarrétti og mannréttindum frá háskólanum í Strassborg 1998. Hann hefur undanfarin sex ár starfað sem lögfræðingur hjá Evrópuráðinu og hefur m.a. starfað við stefnumótunarvinnu á sviði opinberrar stjórnsýslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×