Engin afstaða til Finns og Halldórs 29. júní 2005 00:01
Minnisblað Ríkisendurskoðunar um hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra er verulegum annmörkum háð. Þetta kemur fram í álitsgerð hæstaréttarlögmannanna Sifjar Konráðsdóttur og Björns L. Bergssonar, sem unnin var að beiðni þingflokka stjórnarandstöðunnar. Í álitsgerðinni er verulegum efasemdum lýst yfir minnisblaði ríkisendurskoðanda sem dreift var á fundi fjárlaganefndar um miðjan mánuðinn en sjö spurningar voru lagðar fyrir lögmennina að ósk stjórnarandstöðunnar sem hafa nú skilað áliti sínu. Lögmennirnir segja að með álitsgerðinni séu þeir þó ekki að leysa úr því álitaefni hvort Halldór Ásgrímsson hafi verið hæfur eða vanhæfur til að fjalla um sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum árið 2003. Þess hafi ekki verið óskað af álitsbeiðanda né heldur telja lögmennirnir að nægjanlega mikil gögn liggi fyrir í málinu til þess að hægt sé að kveða upp slíkan úrskurð. 1. Ríkisendurskoðandi sem málsaðili Ríkisendurskoðandi er ekki réttur aðili til að fjalla um hæfi eða vanhæfi stjórnvaldshafa að mati lögmannanna. Það sé einkum hlutverk umboðsmanns Alþingis að fjalla um vanhæfi stjórnvaldshafa. Á það er hins vegar fallist með Ríkisendurskoðun af lögmönnunum að það geti verið eðlilegt að Ríkisendurskoðun hugi að hæfi Halldórs í ljósi tengsla hans sjálfs við S-hópinn. Sé það þess vegna athyglisvert að Ríkisendurskoðun hafi ekki gert slíkt þegar það gerði úttekt á einkavæðingu ríkisfyrirtækja í desember 2003 enda hafði þá þegar verið fjallað um tengsl Skinneyjar-Þinganess hf. og Hesteyrar hf. á opinberum vettvangi. 2. Lögformleg staða Halldórs Ásgrímssonar Ótvírætt virðist að mati lögmannanna að reynt hafi getað á hæfi Halldórs Ásgrímssonar í störfum ríkisstjórnarinnar sjálfrar en ekki aðeins í störfum hans í ráðherranefnd um einkavæðingu. Þannig hafi allir sem hafi stjórnsýslu með höndum hlutverk starfsmanns í skilningi stjórnsýslulaganna. Þannig er hafnað þeirri skoðun Ríkisendurskoðunar að þar sem ráðherranefndin sé ekki lögformlega varin þá falli hún utan gildissviðs stjórnsýslulaganna. 3. Hvort Halldóri hafi borið að víkja Halldór hefur í störfum sínum sem varaformaður ráðherranefndar annast stjórnsýsluverkefni að mati lögmannanna. Bein lagaskylda hvíli á öllum þeim sem slíkum verkefnum sinna að gæta að hæfi sínu. Þeim beri að vekja athygli formanns stjórnsýslunefndar á því hvort hæfi þeirra orki tvímælis. Halldóri hafi borið eins og öðrum að gæta að hæfi sínu. 4. Tímamörk hæfisskilyrða Veikindaleyfi Halldórs frá 14. október til 26. nóvember 2002 hefur enga afgerandi þýðingu við úrlausn álitaefnis um hvort hann hafi verið hæfur til að fjalla um sölu hlutar ríkisins í Búnaðarbankanum til S-hópsins að mati lögmannanna. Spurning um vanhæfi hljóti að hafa vaknað strax og S-hópurinn skilaði inn tilkynningu um áhuga á kaupum á kjölfestuhlut í bönkunum. 5. Tímamörk við eigendaskipti Lögmennirnir eru ekki sammála þeirri túlkun Ríkisendurskoðunar að eigendaskipti á bréfum Hesteyrar ehf. í Keri hf. hafi verið 12. nóvember eða þann dag sem samningur var gerður. Segir í álitsgerðinni að ganga eigi út frá þeirri dagsetningu þegar öll skilyrði samnings milli aðilanna voru uppfyllt eða 19. nóvember. 6. Prósentuhlutfall við hagsmunamat Í álitinu segir að ekki sé almennt augljóst að við þær aðstæður sem um ræðir varðandi hagsmuni Halldórs þegar meta á prósentu-hlutfall eignarhluta fjölskyldu hans í Skinney-Þinganesi, hafi ómálefnaleg sjónarmið haft áhrif á ákvörðunina. Ekki beri aðeins að líta til hlutfalls heldur einnig þess að um viðskipti fyrir um tvö hundruð milljónir hafi verið að ræða. 7. Vanhæfi á grundvelli tengsla við S-hópinn Einn helsti forsvarsmaður S-hópsins var Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, sem var náinn samstarfsmaður Halldórs um langt árabil. Lögmennirnir telja að óhjákvæmilegt hafi verið vegna tengsla Halldórs við Finn að taka afstöðu til þess að þeir höfðu starfað náið saman í gegnum árin. Ríkisendurskoðun bar að setja fyrirvara Í niðurstöðu álitsgerðarinnar segir að umfjöllun um hæfi Halldórs Ásgrímssonar í minnisblaði Ríkisendurskoðunar hafi verið mjög takmörkuð án þess að skýrt sé kveðið á um hvers vegna svo sé. Einnig kemur fram að Ríkisendurskoðun hafi borið að setja þá fyrirvara að umfjöllun hennar hafi aðeins beinst að afmörkuðum þætti álitaefnis og spurningum um hæfi Halldórs hafi verið haldið utan við athugunina að öðru leyti en varðar eignatengsl hans og vandamanna. Álitsgerð lögfræðinga stjórnarandstöðu.doc
Fréttir Innlent Salan á Búnaðarbankanum Stj.mál Viðskipti Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Fleiri fréttir Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Sjá meira