Fótbolti

Zlatan ekki með í bikarúrslitunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Inter.
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Inter. Nordic Photos / AFP

Zlatan Ibrahimovic er ekki í leikmannahópi Inter fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Roma á morgun.

Þau tíðindi koma talsvert á óvart þar sem Zlatan skoraði tvívegis í 2-0 sigri Inter á Parma á sunnudaginn eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Sigurinn tryggði Inter ítalska meistaratitilinn.

Zlatan hefur átt við meiðsli að stríða og er ekki ólíklegt að hann fái frí í þessum leik til að hann geti einbeitt sér að því að ná sér góðum fyrir EM í sumar.

Zlatan er ekki sá eini sem missir af leiknum en Marco Materazzi, og Julio Cruz eru báðir í banni í leiknum auk þess sem að Luis Figo, Esteban Cambiasso og Santiago Solari eru frá vegna meiðsla. Olivier Dacourt, Walter Samuel og Ivan Cordoba hafa allir verið lengi frá vegna meiðsla.

Christian Chivu hefur hins vegar náð sér af sínum meiðslum og er í leikmannahópi Inter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×