Fótbolti

Figo verður áfram hjá Inter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Luis Figo í baráttu við Emil Hallfreðsson, leikmann Reggina.
Luis Figo í baráttu við Emil Hallfreðsson, leikmann Reggina. Nordic Photos / AFP

Jose Mourinho hefur staðfest að Portúgalinn Luis Figo verði áfram í herbúðum Inter á næstu leiktíð.

Figo gaf áður til kynna að hann myndi ekki verða áfram hjá félaginu ef Roberto Mancini yrði áfram knattspyrnustjóri liðsins. Mancini var rekinn fyrir skömmu og Mourinho tók við starfi hans.

Engu að síður var óvíst hvort að Figo yrði áfram hjá félaginu en Mourinho hefur nú staðfest að svo verði.

„Ég átti gott samtal við Luis og hann sagði mér að hann vildi gjarnan vilja vera áfram. Hann hefði mikið fram að færa," sagði Mourinho. „Hvað mig varðar þá verður hann áfram. En hann þarf enn að útkljá sín samningsmál við forseta félagsins. En ég held að það verði engin vandkvæði með það enda er þeim ágætlega til vina."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×