Fótbolti

Nedved nær ekki að semja við Juventus

AFP

Annar fundur Tékkans Pavel Nedved með forráðamönnum Juventus um framlengingu á samningi hans við félagið fór fram í dag og gekk ekki vel. Hinn 35 ára gamli Nedved íhugar að hætta að leggja skóna á hilluna eftir sjö ár hjá Juventus.

"Hvernig gekk? Æðislega," sagði Nedved kaldhæðnislega við ítalska blaðamenn eftir fundinn í dag.

"Ég mun taka ákvörðun um framhaldið fljótlega, en það hefur verið sannur heiður að klæðast búningi Juventus öll þessi ár. Við höfum tvær vikur í viðbót til að ræða málin, en ég mun ákveða hvað ég geri fljótlega," sagði Tékkinn hárprúði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×