Fótbolti

Messi vill spila á Ítalíu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Leo Messi skokkandi.
Leo Messi skokkandi.

Stærstu lið Ítalíu eru væntanlega með augun opin eftir að faðir Leo Messi sagði í viðtali að draumur sonar síns væri að leika í ítölsku deildinni.

„Við hugsum bara um Barcelona í dag. Það er annað heimili Leo og hann vill bæta upp fyrir meiðslavandræði sín. Að spila á Ítalíu er draumur allra leikmanna og sonur minn er engin undantekning," sagði Jorge Messi.

„Það veit enginn hvað framtíðin ber í skauti sér en fyrr eða síðar er möguleiki á að draumar hans rætist."

Massimo Moratti, forseti Inter, hefur sagt að það væri draumur að fá Messi til félagsins og aldrei að vita nema félagið muni nú gera tilraun til þess eftir tíðindi dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×