Fótbolti

Beretta fær lögregluvernd

Elvar Geir Magnússon skrifar
Leikmenn Siena fagna öðru marka sinna gegn Inter í gær.
Leikmenn Siena fagna öðru marka sinna gegn Inter í gær.

Spennan í ítalska boltanum er gríðarleg en þegar ein umferð er eftir hefur Inter eins stigs forystu á Roma. Inter var að stinga af um mitt mót en hefur heldur betur gefið eftir.

Mario Beretta, þjálfari Siena, er undir verndarvæng lögreglu eftir að lið hans gerði 2-2 jafntefli gegn Inter í gær. Það var uppselt á leikinn og stuðningsmenn Inter biðu þess að sitt lið myndi tryggja sér meistaratitilinn.

Þegar Beretta yfirgaf völlinn var hann umkringdur af reiðum stuðningsmönnum Inter sem hótuðu honum öllu illu. Hann fékk lögreglufylgd af vellinum og er lögreglan nú með vökul augu á honum og fjölskyldu hans.

Beretta er þekktur stuðningsmaður AC Milan en hann og fjölskylda hans eru ekki á heimili sínu af öryggisástæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×