Fótbolti

Óvíst að Beckham komist í liðið

NordicPhotos/GettyImages

Hollenski miðjumaðurinn Clarence Seedorf hjá AC MIlan segir alls óvíst að David Beckham eigi eftir að spila leik fyrir liðið þegar hann kemur þangað sem lánsmaður í jánúar.

Beckham mun æfa með ítalska liðinu á meðan ekki er leikið í MLS deildinni í Bandaríkjunum og vonast til að geta haldið sæti sínu í enska landsliðinu fyrir vikið.

"Ég veit ekki hvort hann muni ná að spila fyrir okkur. Fyrsta takmark hans hlýtur að vera að koma sér í eins gott form og mögulegt er. Það er gott að æfa með liði eins og AC Milan og það á eflaust eftir að hjálpa honum að bæta sig, en hvort hann spilar eða ekki er allt annað mál," sagði Seedorf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×