Fótbolti

Quagliarella nefbrotnaði á æfingu

Eiríkur STefán Ásgeirsson skrifar
Fabio Quagliarella, til hægri, á æfingu með ítalska landsliðinu.
Fabio Quagliarella, til hægri, á æfingu með ítalska landsliðinu. Nordic Photos / AFP

Ítalski landsliðsmaðurinn Fabio Quagliarella var fluttur á sjúkrahús á Aþenu eftir að hann nefbrotnaði á æfingu ítalska landsliðsins sem mætir því gríska í kvöld.

Quagliarella er leikmaður Juventus en þetta var lokaæfing ítalska liðsins fyrir leikinn í kvöld.

Ekki er enn vitað hversu alvarleg meiðslin eru en talið er hæpið er að hann verði orðinn klár í slaginn fyrir leikinn í kvöld. Læknir ítalska landsliðsins reyndi að hlúa að honum á æfingunni en þar sem hann var sárþjáður var hann fluttur á sjúkrahús til frekari rannsókna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×